Unga Ísland - 01.02.1936, Síða 3

Unga Ísland - 01.02.1936, Síða 3
(JN6F) l5L(=mQ 2. hefti Reykjauík, febrúar 1936 31. árg Um háttafímann. Leikrit í þrem þáttum. Leikendur: Óli Lokbrá, Bíbí, Elsa, Tveir varðmenn, Drottningin, Tvær hirðmeyjar, Konungurinn, Ráðherrann, Hirðfólk, Börn. 1. ÞÁTTUR. Óli Lokbrá situr á steini og mokar sandi í pokann sinn. Rétt hjá situr Bíbí og fléttar keðju úr blómum og raular: ,,Bíbí og blaka“. Ó 1 i L o k b r á (axlar poka sinn): Jæja, Bíbí tetrið, það er gaman að hlusta á söng þinn, en það dimmir óðum og ég verð að fara að vinna. Bíbí : Já, pabbi, börnin eru farin að bíða eftir okkur. (Elsa kemur hlaupandi inn lafmóð). Bíbí : Hver er þetta ? E 1 s a (án þess að skeyta um Bíbí): Ertu Óli Lokbrá, sem sáldrar sandi í augu barn- anna, svo þau syfji? Ó li : Já, sá er maðurinn og þetta er hún Bíbí litla dóttir mín. Hvað er þér á höndum, barnið gott? E 1 s a : Ég er komin til að aðvara þig. Kon- ungurinn er þér voða-reiður. Hann hef- • ir sent hermenn sína til að taka þig fastan. — Góði, flýttu þér á brott, svo þeir nái ekki í þig. Óli : Er konungurinn reiður við mig, enn einu sinni? Hvers vegna? E 1 s a : í öðrum löndum ertu kærkominn gest- ur, en þú veist að þetta er ríki glaums- ins. Konungurinn er allur upp á rallið. Þessa vikuna heldur hann upp á ríkis- ^tjórnar-afmæli sitt. Fram undir morg- un á að vera glaumur og gleði. Enginn má þreytast eða fara í rúmið. Hans há- tign hafði látið það boð út ganga, að börnin ættu að dansa fyrir hirðina á hverju kvöldi. En fjórða kvöldið, Ólaf- ur minn, vorum við orðin steinupp- gefin. Óli : Nú fer ég að kannast við þig. Fjórða kvöldið vorkenndi ég þér og hinum krökkunum og lét ykkur renna í brjóst.

x

Unga Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.