Unga Ísland - 01.02.1936, Qupperneq 8
UNGA ISLAND
18
gleggsta dæmi um það, hvernig þróun-
in hefir orðið í vöruskiftum þjóða á
milli, eftir því, sem aldirnar hafa liðið.
Árið 1262 gera íslendingar hinn
alkunna samning, gamla sáttmála,
við Hákon gamla Noregskonung. Þar
var tilskilið, að konungur skyldi sjá til
þess, að eigi færri en sex kaupskip
skyldu sigla á ári hverju milli Islands
og Noregs. Hvert þessara kaupskipa
um sig munu ekki hafa borið meira
vörumagn en sem svarar því, er nú er
flutt með stórum mótorbát (25—30
tonnj.
Um miðja 13. öld átti því þessi litli
skipastóll að fullnægja vöru- og fólks-
fluttningi frá landinu og til þess. Af
þessu sjáum við, að vörufluttningur til
landsins hefir Verið áætlaður um 150—
180 smálestir. En nú, nærri 7 öldum
síðar, er svo komið, að það mun láta
nærri, að á hverjum degi að meðaltali,
allan ársins hring, sé skip að halda úr
höfn til annarra ianda, eða þá koma
til hafnar frá útlöndum.
Nú eiga Islendingar sjálfir mikinn
hluta þess skipastóls, er flytur vörur á
milli íslands og annarra landa. Stærsta
skipafélag landsins, Eimskipafélag Is-
lands, á 6 skip, og er burðarmagn
þeirra allra, miðað við venjulegan
fluttning, 5500 smál.
Síðastliðið ár nam verðmæti útfluttr-
ar vöru 43,881,000 kr., en á sama tíma
var keyptur erlendur varningur fyrir
42,600,000 kr. Útflutt þungavara er að-
allega þessi:
Dettifoss, stærsta skip Eimskipafélags íslands.