Unga Ísland - 01.02.1936, Síða 11

Unga Ísland - 01.02.1936, Síða 11
21 UNGA ÍSLAND í bænum með barninu sínu á meðan, því að hún vissi, að illvætti eru sjald- an á ferli, fyrr en sól er sest til viðar. En samt hélt hún sig innanbæjar all- an daginn, við ýmiskonar störf, því að hún vildi ekki yfirgefa drenginn sinn eitt augnablik. — Nú kvöldar að, og síðustu geislar sólarinnar roða skýin í vestri yfir heiðarbrúninni. Ekki kemur vikapilt- urinn til baka, og var þó orðið von á honum fyrir löngu. — Ásta svæfði barnið og lagði það í litlu vögguna. Síðan brá hún sér út á hlað, til að skyggnast um eftir piltinum. En það sást ekkert til ferða hans. Aftur á móti kom hún auga á það, að allar kýrnar hennar voru teknar á rás af túninu, og stefndu vestur engjarnar í áttina til heiðarinnar. Henni þótti þetta kynlegt í meira lagi, þar eð kýrnar voru vanar að una heima við, og tók hún sig því til og stökk á eftir þeim, norður og vestur allar engjar, og komst loks fyrir þær, eftir mikinn eltingarleik, og sneri þeim heim á leið. En þá heyrir hún allt í einu ein- hverjar undarlegar dunur og dynki, eins og eitthvert ógurlegt ferlíki væri á hlaupum þarna í grendinni. Þóttist hún vita, að ekki væri allt með felldu, skildi við kýrnar og flýtti sér sem ttiest hún mátti til bæjar. En þegar hún kemur heim, sér hún sér til mikillar skelfingar, að glugginn er brotinn úr baðstofunni, og barnið hennar horfið úr vöggunni. Hún leitaði örvingluð að bví um allan bæinn, en auðvitað var bað árangurslaust. Þá komu henni í bug orð kerlingarinnar frá því um sumarið, hún hljóp því út á hlað og ^stlaði að kalla á Heiðabrokku, en heyrir þá tröllslegan hlátur frá Gapa, og síðan var þessi ljóta vísa kveðin með þrumuraust og bergmálaði hátt í fjallinu við kveðskapinn: „Hóhó og hæhæ hérna ei' krakkinn og korriró. Déskoti er hann feitur drengurinn sá arna og dillidó“. Þá skildi Ásta hvers kyns var: Gomsagemsa var aftur flutt í Gapa, búin að ræna barninu hennar og ætl- aði sér að steikja það á glóandi tein- um. Vesalings heiðarkonan hrópaði því í dauðans angist hvað eftir ann- að: „Hjálpaðu mér nú, hjálpaðu mér nú, Heiðabrokka gamla!“ Allt í einu stóð ung og tígulega huldumær hjá henni og spurði þýð- lega: ,,Hvað viltu að eg geri?“ ,,Ekki ert þú Heiðabrokka“, sagði Ásta og horfði ráðþrota á þessa fögru mey. „Nei“, svaraði hún, „eg er dóttur- dóttir huldudrottningarinnar, sem stundum kallar sig Heiðabrokku, þeg- ar hún býst í gerviklæði. Hún gat ekki farið sjálf, af því að hún var lasin, og sendi mig fyrir sig. — Hvað viltu að eg geri?“ „Hjálpaðu mér til að frelsa barnið mitt frá óvættinni Gomsugemsu!" — Þá kallaði huldumærin og blæs í f lautu: % „Dularklæði, dularklæði dvergar mínir fljótt. Gomsagemsa skal deyja í Gapanum í nótt“. 1 sömu andránni komu sex dvergar svífandi, og báru einkennilegt klæði

x

Unga Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.