Unga Ísland - 01.12.1937, Blaðsíða 5
143
UNGA ÍSLAND
Sólveig leit alvarlega yfir hópinn og
mælti:
„Maja grætur út af yfirsjón okkar
allra.“
Undrunin óx á hverju andliti. —
„Maja grætur út af því, að Pétri gamla
var ekki gefin nein jólagjöf,“ sag'ði hús-
freyja lágt og alvarlega.
Undrunarsvipur fólksins breyttist í
vandræðasvip. — Allir fundu til þess, hver
með sjálfum sér, að Pétur hafði orðið út-
nndan, jafnvel á þessu kvöldi.
„Hvað vilt þú gefa Pétri, Maja mín!“
sagði faðir hennar og klappaði hlítt á koll-
inn á henni.
„Jólatré með ljósum,“ svaraði Maja, og
glaðnaði við.
„En við liöfum ekki annað jólatré en
þetta,“ sagði faðir liennar. —
„Má ekki taka af því eina grein! spurði
Maja.
„Jú, það er hægt, greip móðir hennar
fram í.
Hjónin hjálpuðust að því. Þau tóku
þrjár smágreinar, svo lítið bar á. Pestu
þær á þríálmaðan kertastjaka, sem stóð á
borðinu, og réttu svo Maju hann.
Maja tók við lionum giöð í bragði, og
lagði af stað til herbergis Péturs gamla.
Pétur sat á rúminu sínu, þegar Maja
kom inn. Hann starði sljóum augum á
hana, og þrjú logandi ljósin, sem liún bar.
„Hérna kem ég með jólagjöf til þín, frá
okkur öllum,“ sagði Maja og lét kertastjak-
ann á borð, sem stóð við fótagaflinn á rúmi
Péturs.
Pétur starði á Maju, en sagði ekkert.
,,Ég var að segja,“ endurtók Maja og
hækkaði röddina lítið eitt, „að þetta væri
.iólagjöf frá okkur öllum, — til þín.“
„Þakka þér fyrir,“ sagði Pétur gamli,
tárin komu fram í augu hans. — „Ég gat
ekki fengið kærkomnari jólagjöf núna,“
bætti hann við í lægri róm.
„Guð gefi þér gleðileg jól,“ sagði Maja
og gekk út úr herberginu.
Eft-ir að Maja var farin, starði hann
eingöngu á ljósin þrjú. Löngu liðnir at-
burðir komu fram í huga hans.
Hann sá lítinn dreng með ljósa lokka
leika sér í þröngri og óvistlegri baðstofu-
kytru við að byggja sér hús úr spilum. —
Byggingin gekk illa. Húsið hrundi alltaf
löngu áður en það var að fullu byggt.
Fleiri atburðir, tengdir jólaminningun-
um,.komu fram í huga Péturs. — Greini-
legast mundi hann eftir aðfangadags-
kvöldi jóla fyrir 30 árum.
Hann var að koma inn frá því að hirða
skepnurnar. — Konan hans kom ekki fram