Unga Ísland - 01.12.1937, Blaðsíða 9

Unga Ísland - 01.12.1937, Blaðsíða 9
U1 UNGA ÍSLAND tekið við þeim. Gamallt hró á hvort sem er einu sinni að deyja. Það er ekki víst, að það sé verra að sálast úr kulda og díorti, en rnörgu öðru“. „Svona máttu ekki láta“, hrópaði Maja litla óttaslegin. „Nei, ég .meinti ekkert með þessu, Maja mín“, sagði gamli maðurinn g'óðlátlega. „Mér þyldr bara undur vænt um blessaðan klárinn minn“, bætti liann við. Og Jói gamli þurrkaði burt tár úr augnakrókunum með liandarbakinu. Hann vildi ekki láta litlu stúlkuna sjá, að liann væri að gráta. „Þegar jólin koma, þá verð- ur allt gott“, sagði hún með broslegu ör- yggi. “Já, Við skulum æfinlega vona allt hið besta“, sagði gamli jnaðurinn. — Maja kvaddi og flýtti sér niður í verslun H. Þéturssonar. En hún bað ekki um brúðu- liaus, eins og hún liafði ætlað sér, lield- Ur um einn happdrættismiða. Ef ske kynni uð.. . . í hljóði bað hún guð að stýra hendi sinni, er hún valdi miðann. Miðinn sem hún hitti á var nr. 872. Hún borgaði °g krónan hennar hvarf ofan í skúffu húðarmannsins. Nú fengi hún enga nýja hrúðu fyrir jólin. En það gerði ekkert til, sðeins ef...... Hún flýtti sé heim glöð í bragði, en hjnrta hennar barðist á milli vonar og ótta. III. Næstu nótt var Maju alltaf að dreyma eitthvað rugl um brúður, happdrætti og hesta. Og henni fannst næsti dagur aldrei ®tla að líða. Hún vissi, að i kvöldblaðinu ^iundu vinningarnir í happdrætti Ung- rnennafélagsins verða auglýstir. Loksins leið að þeim tíma, er blaðið kom út. Maja htla fór í kápuna sína og staulaðist niður í þorpið að ná sér í blað. Himininn var heiður og blár og mikið írost. Það marraði ónotalega í snjónum undir hækjunni. Nú stóðu jólainnkaupin sem hæst. Allir voru á ferð og flugi með böggla og pinkla í höndunum. — Maja litla náði sér í Kvöldblaðið. Jú, þarna var auglýsingin um vinningana. Aðalvinning- urinn: Reiðhestur, númer-----------. Maju sortnaði fyr'ir augulm, númer 892. — Hún missti blaSið úr höndum sér. Hún hafði 'ekki unnið, það munaði tuttugu. Það kom kökkur í hálsinn á lienni og henni lá við gráti. Var guð þá ekki góður, fyrst hann hjálpaði ekki þeim, sem bágt áttu? Henni yar kalt. Niðurbeygð og vonsvikin, haltraði þessi fatlaða, fátæka stúlka, heim á leið. Allir voru að flýta sér, énginn tók eftir henni. Allt í einu rakst einliver svo óþyrmilega á hana, að liún féll á götuna. Koskinn maöur á fínum frakka lijálpaði henni á fætur. Hann spurði, hvort hún hefði meitt sig. Nei, hún hafði ekkert meitt sig, en hún var svo loppin af kulda, að hún gat naumast haldið hækjunni. Maður- urinn gaf henni tvo peninga, klappaði fl kollinn á lienni og hélt leiðar sinnar. — Þetta voru tveggja krónu peningar, svo nú átti hún fjórar krónur. En þrátt fyrir það, þó hún ætti svona mikla peninga, þá var hún samt ekkert glöð. Hugsanir liennar voru bitrar, eins og desemberkuldinn. Af hverju er kjörum mannanna svo misskift, að sumir verða alltaf að þiggja hjálp af öðrum? Eða er það bara hnefarétturinn, sem ræður í heiminum? Hver verður að sjá um sig eftir bestu getu. — Á leiðinni kom hún við í verslun H. Péturssonar. Hún var búin að ákveða að kaupa brúðu fyrir peningana sína. „Því miður, sagði búðar- maðurinn, „við höfum þær ekki til; við vorum að selja þá síðustu rétt áðan“. Ilún reikaði út úr búðinni eins og í þoku- kenndri leiðslu. Ilún var orðin svo vön því að verða fyrir vonbrigðum.

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.