Unga Ísland - 01.12.1937, Page 12

Unga Ísland - 01.12.1937, Page 12
UNGA ÍSLAND 150 Prófessor Guðjón Samúelsson, húsameistar'i ríkisins, sem gert liefir teikn- ingarnar af byggingum háskólans, og mestu ráhið um gerð þeirra. Af frœgum opin- berum byggingum, sem Guðjón hefir teiknað, má nefna Þjóðleikhúsiö og Sund- höllina í Beykjavík. Til kaupenda. Almanak skólabarna fyrir 1938 er nú í prentun. Það verður sent með nýárspóstun- um til allra skuldlausra kaupenda blaðsins. Þeir, sem fá blaðið hjá útsölumönnum, spyrji eftir almanakinu hjá þeim. Efnisyfirlit yfir 33. árgang verður að venju sent með janúarblaði næsta ár; er þetta gert til að ódrýgja ekki rúm jólablaðsins með efnisyfirlitinu. LARFA LÁKI AÐALSTEINN SIGMUNDSSON ÞÝDDI Tvísigld skonnorta lá uppi við bakkann, og hallaðist mátulega. Hún hafði legið þarna árum saman, og lét á sjá eftir tím- ans tönn. Tjargaði skrokkurinn var ekki svartur lengur, en þakinn þörungum og hrúðurkörlum. Kaðlarnir voru fúnir og trosnaðir; þilfarið gisið og götótt. Og þef af fúkka og úldnu vatni lagði upp úr lestinni. Síðustu dagana hafði orðið mikil breyt- ing á skipinu. Skrokkurinn hafði verið skoiaður, þilfarið þvegið, kaðlarnnir lag- færðir og smáhlutirnir, sem að vísu voru fáir, slípaðir með sandpappír, svo að þeir gljáðu — þar á meðal skipsnafnið „Edit“. Fánagarmur, sem bersvnilega hafði verið búinn til af vanefnum, blakti í hálfa stöng. Þeir, sem kunnugir voru. vissu, að Larfa-Pétur, ábúandi skipsins, en ekki eig- andi, var dauður. Grafarmennirnir höfðu horið hann til moldar, og öll líkfylgdin var T.jarfa-Láki, sonur hins látna, þrettán ára gamall. Það var morguninn eftir jarðarförina. Larfa-Láki kom upp um káetuopið, úfinn og óhreinn, og lygndi dapurlegum augun- um móti skínandi morgunsólinni. Iíann geispaði mikinn, reikaði aftur á og fór í hægðum sínum að losa um fánagarminn og draga hann upp að húni. „Svona nú. pabbi minn!“ hvíslaði hann. „Nú hefi ég gert það, sem ég get. Sofðu nú vel, þessa löngu frívakt." Það var sunnudagur og allt var kyrrt við höfnina. Larfa-Láki gekk hægt með-

x

Unga Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.