Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Page 69
Fjárfestingarstefna
Fjárfestingarstefna sjóðsins kveður á um markmið
eignasamsetningar verðbréfa eftir helstu eignaflokkum í
lok næsta árs með ákveðnum vikmörkum. Vikmörk hvers
verðbréfaflokks er 10-15%. Markmið eignasamsetningar
fyrir árið 2010 er sýnt er hér til hliðar.
í ljósi gjaldeyrishafta og í kjölfar bankahruns hafa fjár-
festingarkostir lífeyrissjóða takmarkast mikið. Fjárfest-
jrigarstefna endurspeglar skort fjárfestingartækifæra sem í
ooði eru. Ef borin er saman eignasamsetning sjóðsins í
arslok 2010 við fjárfestingarstefnu sjóðsins fyrir árið 2011
eru helstu breytingarnar þær að gert er ráð fyrir að
bankainnstæður lækki um 3,5 prósentustig (pst.), innlend
hlutabréf hækki um 2 pst., innlend skuldabréf hækki um
tsep 2 pst. en skuldabréf með ríkisábyrgð muni hækka
rneira á kostnað skuldabréfa banka og fyrirtækja. Sjóð-
félagalán muni aukast um 1 pst. Erlend skuldabréf muni
Isekka um 1,5 pst. og önnur erlend verðbréf muni standa í
stað sem hlutfall af verðbréfaeign sjóðsins
bjárfestingarstefnan skal rúmast innan ákvæða 36. gr. Laga
nr- 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starf-
semi lífeyrissjóða um hámark fjárfestingar í einstökum
tegundum eða flokkum verðbréfa eða bréfum útgefnum af
sama útgefanda.
Hámarksfjárfesting í hlutabréfum samkvæmt lögum er
60% af hreinni eign, hámarksfjárfesting í erlendum
verðbréfum er 50% og 20% í óskráðum eigum. í árslok 2010
var 22% af hreinni eign sjóðsins í hlutabréfum, hlutabréfa-
sjóðum og framtakssjóðum, 25% í eignum í erlendri mynt
°g 16% í óskráðum eignum.
Meðallíftími skuldabréfa, annarra en sjóðfélagalána, er
6/7 ár. Meðallíftími sjóðféíagalána er 10,8 ár. Reynt verður
að lengja líftíma skuldabréfasafnsins með því að leggja
áherslu á lengri skuldabréfaflokka. Markmið um meðal-
úftíma skuldabréfa er 6-10 ár.
Lífeyrissjóður verkfræðinga notar eftirfarandi vísitölur til
viðmiðunar um árangur ávöxtunar og eru þær jafnframt
viðmið sjóðsins varðandi áhættur í viðkomandi eignaflokki:
sjóðfélagalán
Hý lán til sjóðfélaga námu 221 m.kr. á árinu 2010 sem er
24% hækkun frá árinu á undan. Alls voru afgreidd 31 nýtt
an á árinu. Til samanburðar voru afgreidd 30 lán á árinu
2009 fyrir um 178 m.kr.
Heildarfjárhæð sjóðfélagalána var 6.426 m.kr. í árslok 2010,
sbr. mynd efst á næstu síðu. Fjöldi lána var 1.946 í árslok og
þar af voru 14 í vanskilum í meira en 90 daga, 11 einstakl-
'ngar í greiðsluaðlögun hjá umboðsmanni skuldara og
fjórir sjóðfélagar með lán í frystingu. Alls voru 845 lán í
greiðslujöfnun í lok árs eða um 43% af heildarfjölda lána.
/ \
Markmið eignasamsetningar fyrir áriö 2010.
Bankareikningar 8%
- Sjóðfélagalán 19%
- Innlend skuldabréf 47%
- Innlend hlutabréf 4%
- Erlend skuldabréf 2%
- Erlend hlutabréf 13%
- Sérsniðnar fjárfestingar V 7% y
Fjárfestingastefna 2011.
< \
Viömiðunarvísitölur um árangur ávöxtunar.
Eignaflokkur Heiti vísitölu
Innlend skuldabréf Samsett vísitala*
Innlend hlutabréf OMX16
Erlend skuldabréf JPM Global Bond Index
Erlend hlutabréf MSCI World Index
Aðrar fjárfestingar FIFRI FoF Diversf Index
* 80% OMXI-10Y-I, OMXI-5Y-I og 10% OMXI-5Y-N1 k. y
1.200
1.000
800
600
400
200
0
_________2006 2007 2008 2009 2010
Ný sjóðfélagalán (milljörðum krónaj
6 7
Félagsmál VFl/TFf