Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Side 84
ÞRÓUN EFNAHAGSMÁLA 2010
Landsframleiðslan 2010
Samantekt
Landsframleiðsla dróst saman að raungildi um 4% samkvæmt endurskoðuðum tölum
Hagstofunnar yfir þjóðhagsreikninga á árinu 2010. Þetta er verulega minni samdráttur en
árið 2009 þegar hann nam 6,7%.
Að árinu 2009 undanskildu var samdráttur landsframleiðslu á árinu 2010 sá mesti sem
mælst hefur frá árinu 1968, en þá nam hann 5,5%. Landsframleiðsla á árinu 2010 varð
svipuð að raungildi og landsframleiðsla ársins 2005.
Samdráttur þjóðarútgjalda á árinu 2010 varð nokkru minni en samdráttur landsfram-
leiðslu, eða 2,7%. Samdráttur varð í öllum þáttum þjóðarútgjalda, einkaneysla dróst
saman um 0,4%, samneysla um 3,4% og fjárfesting um 8%. Aftur á móti jókst útflutningur
um 0,4% og innflutningur um 4%. Þrátt fyrir þessa þróun er verulegur afgangur af vöru-
og þjónustuviðskiptum á árinu 2010, eða 154 milljarðar króna.
Þrátt fyrir lítillega aukinn halla á launa- og fjáreignatekjum frá útlöndum olli jákvæð
þróun vöru- og þjónustuviðskipta því að heldur dró úr viðskiptahalla. Á árinu 2010 nam
hann 163 milljörðum króna, 10,6% af landsframleiðslu, en árið áður nam hallinn 166
milljörðum króna, 11,1% af landsframleiðslu.
Viðskiptakjör bötnuðu til muna á árinu 2010 og minni halli á viðskiptajöfnuði en árið áður
olli því að þjóðartekjur drógust minna saman en landsframleiðslan eða um 2,2% saman-
borið við 4% samdrátt landsframleiðslu. Árið 2009 drógust þjóðartekjur saman um 9,2%.
Einkaneysla sem hlutfall af landsframleiðslu var 51,2% á liðnu ári. í sögulegu samhengi
hefur þetta þetta hlutfall verið mjög lágt síðustu þrjú árin. Samneyslan sem hlutfall af
landsframleiðslu var 25,9%. Síðastliðin níu ár hefur þetta hlutfall flest árin verið hærra en
nokkru sinni fyrir þann tíma.
Hlutfall fjárfestingar af landsframleiðslu var 13% á árinu 2010 og er það hlutfall nú í
sögulegu lágmarki. Sambærilegt hlutfall fyrir OECD-ríkin í heild hefur verið um eða
undir 20% undanfarinn aldarfjórðung. Að raungildi var fjárfestingin á síðasta ári svipuð
og árið 1996.
Hagvöxtur
Landsframleiðsla ársins 2010 er talin hafa numið 1.537 milljörðum króna en það er 39
milljörðum eða 2,6% hærri fjárhæð en árið áður. Að teknu tilliti til verðbreytinga dróst
landsframleiðslan saman að raungildi um 4% samanborið við 6,7% samdrátt árið áður.
Arbók VFl/TFf 2011