Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Page 191
séu í öðrum verkefnum þ.ám. frystiflutningum, auk fjölda leiguskipa í tíma-
bundnum verkefnum.
• Eimskip rekur fjórar siglingaleiðir á Norður-Atlantshafi með alls sex skipum auk
leiguskipa í sérflutningum. A Suðurleið sigla Brúarfoss og Selfoss, Norðurleið,
Dettifoss og Goðafoss. Á Austurleið siglir Blikur og á Ameríkuleið Reykjafoss.
I Sundahöfn er Eimskip með Gantry-krana og einn „mobile"-krana en Samskip með tvo
/,mobile"-krana. Fjárfestingar í gámakrönum taka mið af því gámamagni sem fer um
viðkomandi hafnarbakka. Alls staðar er þó lögmálið það sama, að losun og lestun gangi
hratt fyrir sig þannig að skip þurfi ekki að bíða lengur en nauðsynlegt er.
Sundahöfn umferð og umferðartengingar
Eins og á hefur verið bent eru umferðartengingar Sundahafnar lykilatriði og það skiptir
höfuðmáli að hafnarsvæðin hafi góðar vegtengingar við stofnbrautina, Sæbraut. í dag eru
þetta eftirfarandi vegtengingar taldar upp frá norðri til suðurs:
• Klettagarðar
• Sundagarðar
• Sægarðar
• Holtavegur
• Kleppsmýrarvegur
Umferðarmagn um þessar vegtengingar er mikið og í skýrslu sem unnin var á vegum
hafnar, Umferðarsköpun Sundahafnar í nútíð og framtíð, dags. í október 2004 og unnin af
verkfræðistofunni Línuhönnun, var gerð grein fyrir þessari umferðarþörf. Markmið
skýrslu var að gefa yfirsýn um umferðarmál Sundahafnar og aðliggjandi jaðarsvæða og
að glöggva sig á þróun umferðar á tíma aðalskipulags Reykjavíkur. Niðurstöður skýrslu
staðfesta þau sjónarmið hafnar sem áður voru sett fram varðandi umferðarmál.
Umferðarmagn var meira en menn miðuðu við í fyrri skipulagsforsendum. Fyrri
umferðarspár reiknuðu með nær engri aukningu umferðar á aðalskipulagstímanum þó
svo að allt svæðið væri í hraðri uppbyggingu. í aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024
korna aftur á móti fram þau sjónarmið að reiknað er með að Sundahöfn byggist í megin
atriðum upp á aðalskipulagstímanum. Umferðarmagn á þessum vegtengingum var á
ðrinu 2004 alls um 37.000 bílar á sólahring og reikna má með að í lok tíma aðalskipulags
yrði þetta umferðarmagn um 55.000-65.000 bílar á sólarhring. Á eftirfarandi atriði var þá
bent:
„skoða verður umferðartengingar svæðisins við Sæbraut og spyrja um pað til hvaða aðgerða purfi
að grípa til að tryggja hafnarsvæðinu góð umferðartengsl í framtíðinni. Vandinn liggur fyrst og
fremst í tengingum við stofnbrautina og á gatnamótum pessara tenginga, en innra umferðarkerfi
bafnarsvæðisins mun aftur á móti betur geta mætt pessari umferð íframtíðinni. Gæta parfpess að
ekki komi íframtiðinni á jaðarsvæði Sundahafnar starfsemi með pað mikinn umferðarpunga að pað
hefti nauðsynlega flutningsgetu peirra umferðartenginga sem farmstöðvarnar hafa."
Farið var í framhaldinu, á árunum 2006-2008, í endurbætur á nyrðri hluta Sæbrautar og
samhliða því var gengið frá nýrri vegtengingu. Klettagörðum að norðurhluta Sundahafnar
og gatnamót Sundagarða við Sæbraut voru bætt og loks voru gatnamót Holtavegar við
Sæhrautina endurgerð. Segja má að með þessum aðgerðum hafi náðst fram verulegar
endurbætur á vegtengingum við Sæbrautina fyrir flest svæði Sundahafnar. Þessum
framkvæmdum fylgdi að gengið var frá umhverfi við Sæbrautina, hljóðvistarmál bætt og
lokið frágangi gönguleiða og öðrum umhverfisfrágangi. Óhætt er að fullyrða að þessar
framkvæmdir tókust vel og um þær sátt jafnt hjá notendum hafnar og íbúum sunnan
Sæbrautar.
Kynning og tæknigreinar fyrirtækja og stofnana
1 8 9