Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Page 317
vatnafar á ríflega helmingi af
flatarmáli landsins.
Sigurjón Rist (+1994) lét formlega af
störfum sem forstöðumaður Vatna-
mælinga í árslok 1987 eftir fjörutíu
ára starf, en á því ári varð hann
sjötugur. Fyrstu árin var hann einn í
föstu starfi en naut aðstoðar laus-
ráðins starfsfólks og verktaka eftir
þörfum. Fljótlega bættust fleiri starfs-
menn í hópinn, þótt aldrei yrðu þeir
margir í tíð Sigurjóns. Meðal sam-
starfsmanna hans um áratuga skeið
má nefna Eberg Elefsen, Davíð
Guðnason, Gunnstein Stefánsson,
Ásgeir Sigurðsson og Guðmundu
Andrésdóttur. Eberg var helsti
aðstoðarmaður Sigurjóns og frum-
kvöðull í vönduðum vinnubrögðum
við uppbyggingu mælakerfisins,
vatnshæðar- og rennslismælingarnar sjálfar svo og úrvinnslu þeirra. Þeir Davíð og
Gunnsteinn voru upphaflega gæslumenn vatnshæðarmæla á heimaslóðum í Hreppunum
og á Héraði samhliða bústörfum, en komu til fastra starfa við vatnamælingar í kjölfar
þess. Ásgeir byggði upp vandað úrvinnslukerfi vatnamælingagagna í tölvum, allt frá
fyrstu tíð slíkra tækja á íslandi árið 1964. Guðmunda teiknaði vatnshæðar- og rennslisferla
og vann aðra teiknivinnu við kort og línurit, samhliða þeirri listmálun sem hún er
landsþekkt fyrir. Árið 1980 varð Sigurjón fyrst var við nokkurn lieilsubrest, og fékk hann
m.a. í kjölfarið á því leyfi frá stjórnunarstörfum árið 1985. Staðgengill hans var dr. Árni
Snorrason vatnaverkfræðingur og tók hann formlega við sem forstöðumaður Vatna-
mælinga í byrjun árs 1988. Gegndi hann því hlutverki síðan þar til hann varð forstjóri
nýrrar Veðurstofu Islands 1. ágúst 2008.
I tíð Sigurjóns Rist voru starfsmenn
Vatnamælinga ætíð fáir, eða allt að
sjö mönnum, auk gæslumanna víða
um land. Á síðari árum hafa þeir
losað vel rúmlega þrjá tugi. Árið 2006
voru ársverkin 32 á Vatnamælingum
og veltan 386 m.kr. (sjá línurit fremst
í greininni).
Um Vatnamælingar og vatnamæl-
ingastarfsemina hafa á liðnum árum
og áratugum skapast ýmsar goð-
sagnir sem eiga sér mismikla stoð í
raunveruleikanum. Þekktar eru
sögur af Sigurjóni Rist sem helsta
fulltrúa og persónugervingi starf-
seminnar, er lýstu trú almennings á
nánast ofurmannlega hæfni hans í
viðureigninni við náttúruöflin.
Sigurjón var raunar mikið hraust-
menni, áræðinn en gætinn í senn, og
ratvís með afbrigðum. Mjög fá slys
hafa sem betur fer orðið við
Guðmunda Andrésdóttir og Asgeir Sigurðsson voru lykilstarfs-
menn við úrvinnslu og framsetningu gagna hjá Vatnamælingum.
Tækni- o g vísindagreinar | 3 1 S