Neytendablaðið - 01.02.1977, Page 5
5
NEYTENDARÁÐSTEFNAN - NEYTENDARÁÐSTEFNAN - NEYTENDARÁÐSTEFNAN
Opnunartími matvöruverslana hér er
vandamál. Verslanir eru opnar frá kl. 9.00
til 17.30. Ein matvöruverslun er opin á
vetuma 9-12 á laugardögum. Nokkrar
sérverslanir hafa líka opið á þeim tíma.
Eitt bakarí er opið á laugardögum.
Það er því erfitt fyrir fólk sem stundar
vinnu að komast í verslun nema í hádeg-
ismatartíma. Astæðan fyrir þessum opn-
unartíma er ekki takmarkanir í reglugerð,
heldur segja verslunareigendur að þá sé of
kostnaðarsamt að borga yfirvinnu eða
vaktaálag.
Það getur því oft farið svo að fólk er
neytt til að aka til Reykjavíkur til þess
að versla t.d. ef kaupa á fatnað, sem
tekur tíma að velja.
Það er vitað mál að flutningskostnaður
bætist við vöruverðið þegar varan er flutt
út í dreifbýlið og því meira, sem lengra er
farið.
Kaup er aftur á móti það sama á land-
inu.
Þegar lög um neytendavemd verða
sen, sem ég vona að verði sem fyrst teldi
ég heppilegt að skipa umboðsmann neyt-
enda t.d. í hverjum landsfjórðungi eða
víðar.“
Iðunn er umboðsmaður neytenda á
Selfossi og tekur á móti kvörtunum.
Núverandi landbúnaðar-
stefna er rekin eingöngu
með tilliti til hagsmuna
framleiðenda, óskir neyt-
enda eru ekki virtar. Þetta
er veigamikið atriði, sem
snýr beint að Neytenda-
samtökunum. Þetta var
meðal þess sem rætt var í
líflegum umræðum sem
urðu um landbúnaðarmál
á ráðstefnunni og sýndist
sitt hverjum.
Það kom í ljós að framleiðsluráð
landbúnaðarins gerði könnun fyrir
u.þ.b. 4 árum. Fundið var úrtak sam-
kv. þjóðskrá. Fólk mátti velja sér kjöt
í matinn. Undrun vakti að flestir
völdu bita af stóru fé og feitu.
Einn sagði að hugarfarsbreytinga
varðandi fæðuval væri að koma á allra
síðustu árum.
Það sjást merki þess að neysluvenj-
ur þjóðarinnar eru að breytast. Hlut-
fall hitaeininga er nú 43% - heppilegt
væri að draga úr því niður í 35%
Fulltrúi bænda á ráðstefnunni,
Guðmundur Ingi kristjánsson, sagði
að á hverju vori væri haldinn fundur
með ráðunautum, sem eru að störf-
um víðsvegar um landið. Neytenda-
samtökin ættu endilega að sitja fundi
með þeim, því bændur vildu koma til
móts við neytendur.
Bjarni Bragi Jónsson, hagfr., sagði
að í kynbótastarfí sauðfjár þyrfti að
leggja áherslu á að ná fram miklum
holdvexti án fituvaxtar.
í hagskýrslum 19. aldar kom í ljós
að reynt var að framleiða mörmiklar
skepnur og fíturíka mjólk. Fitan var
verðmæt til útflutnings.
Menn voru sammála því að of-
framleiðsla væri á fítu bæði í mjólk og
kjöti. Fita í landbúnaðarvöru væri
verðmagnsmyndandi.
Að leggja niður landbúnað á Islandi
væri aðeins slagorð, engum dytti
slýkt í hug í alvöru.
landbúnaður er geysimikilvægur
atvinnuvegur. Um 10% Islendinga
vinna við hann. Það er hins vegar
spuming á hvaða þætti landbúnaðar-
ins ætti að leggja mesta áherzlu.
NEYTENDARÁÐSTEFNAN - NEYTENDARÁÐSTEFNAN - NEYTENDARÁÐSTEFNAN
Neytendasamtökin
ættu endilega
að sækja fund
ráðunauta bænda