Neytendablaðið - 01.02.1977, Síða 6
6
- NEYTENDARÁÐSTEFNAN - NEYTENDARÁÐSTEFNAN - NEYTENDARÁÐSTEFNAN
Allir launþegar eru tryggðir gegn slysum við störf sín, að erlendum ríkisborgur-
um undanteknum. Þannig eru lögin í dag. Þá eru tryggðir nemendur við iðnnám,
stjórnendur aflvéla og ökutækja sem þeir hafa umráð yfir, útgerðarmenn, sem
sjálfir eru skipverjar og loks eru þeir tryggðir sem sannanlcga hafa slasast við
björgun mannslífa eða verðmæta eða tilraunar til björgunar í yfirvofandi háska".
Þetta kom meðal annars fram í erindi Guðrúnar Helgadóttur deildarstjóra. Þá
segir einnig:
Fjármögnun slysatrygginga
Atvinnurekendur bera kostnað af slysa-
trvggingum, en ríkið tekur engan þátt í hon-
um. Innheimta iðgjalda fer þannig fram, að
við skattálagningu er iðgjald tekið af atvinnu-
rekendum. Eftirtöldum mönnum skulu
tryggðar slysabætur við störf sín, nema tekið
sé fram í skattframtali að tryggingar sé ekki
óskað.
' n
Atvinnurekendum í landbúnaði, sem
vinna landbúnaðarstörf, mökum þeirra og
börnum á aldrinum 12-16 ára.
Atvinnurekendum, sem starfa að eigin at-
vinnurekstri í öðrum atvinnugreinum.
Launþegum, sem að staðaldri vinna lausa-
vinnu.
Þá geta framteljendur einnig tryggt heim-
ilisfólk yfir 16 ára aldri gegn slysum við
heimilisstörf. Iðgjaldið er þá innheimt með
sköttum framteljenda.
íþróttamenn skulu tryggðir er þeir taka
þátt í íþróttaæfingum og iðkunum, keppni
eða sýningum.
Hvað telst vinna?
Maður telst vera við vinnu
a) þegar hann er á vinnustað á þeim
tíma, sem honum er ætlað að vera að
störfum, svo og í matar- og kaffitímum,
b) í sendiferðum í þágu atvinnu-
rekstrar eða í nauðsynlegum ferðum til
vinnu og frá.
Slys telst ekki verða við vinnu, ef það hlýst
af athöfnum hins slasaða sjálfs og sem standa
ekki í neinu sambandi við vinnuna. Þó tekur
tryggingin til allra slysa á sjómanni, sem
verða um borð í skipi hans eða þegar hann
ásamt skipinu er staddur utan heimahafnar
skipsins eða útgerðarstaðar.
Þá getur komið til slysabóta, ef maður hef-
ur sannanlega að dómi lækna orðið fyrir skað-
legum áhrifum efna, geislaorku eða öðru
hliðstæðu, sem ríkjandi eru í hæsta lagi fáeina
daga og rekja verður til vinnunnar.
Þá hefur komið til bóta vegna tiltekinna
atvinnusjúkdóma.
Hvernig ber að tilkynna slys?
Atvinnurekandi eða hinn tryggði skal
senda slysadeild Tryggingarstofnunar ríkis-
ins tilkynningu um slysið á þar til gerðu
eyðublaði. Vanræki atvinnurekandi tilkynn-
ingu slyssins, má hinn slasaði snúa sér til við-
komandi lögreglustjóra, sem ber að ganga
eftir henni.
Þá skal koma til slysadeildar áverkavottorð
frá slysavarðstofu eða lækni.
Við umferðarslys er ævinlega beðið um
lögregluskýrslu og jafnan skyldi kalla til lög-
reglu, ef um alvarleg vinnuslys er að ræða.
Tryggingaráð úrskurðar slysamál, ef um
vafamál er að ræða.
Hverjar eru bætur vegna slysa?
Bætur slysatrygginga eru sjúkrahjálp, dag-
peningar, örorkubætur og dánarbætur.
1. Sjúkrahjálp
Nú veldur bótaskylt slys sjúkleika og
vinnutjóni í minnst 10 daga, ogskal þágreiða
nauðsynlegan kostnað vegna lækningar hins
slasaða og tjóns á gervilimum eða hjálpar-
tækjum.
Að fullu skal greiða
a. Læknishjálp samkvæmt samningum
hlutaðeigandi sjúkrasamlags.
b. Sjúkrahúsvist, svo lengi sem afleiðingar
slyssins gera hana nauðsynlega.
c. Lyf og umbuíðir.
d. Viðgerð vegna brots eða löskunar á heil-
brigðum tönnum eða vel viðgerðum.
Greiðslu fyrir sams konar viðgerðir á lélegri
tönnum má takmarka við kostnað, sem ætla
má að orðið hefði, ef þær hefðu verið heil-
brigðar.
e. Gervilimi, eða svipað hjálpartæki.
f. Sjúkraflutningar með sjúkraflugvél eða
sjúkrabíl fyrst eftir slys, eða þegar ella verður
nauðsynlegt að senda sjúkling með slíkum
farartækjum til meðferðar hjá lækni eða
sjúkrahúsi. Sama gildir um flutning í skipi.
g. Sjúkraþjálfun og orkulækningar.
Að hluta skal greiða:
a. Að hálfu ferðakostnað til læknis með
leigubíl, enda sé sjúklingur ekki fær um að
ferðast með áætlunarbíl eða strætisvagni.
Ekki skal þó greitt fyrir flutning með bifreið
manns af sama heimili eða sama bæ né bifreið
í eigu venslamanna hins slasaða.
b. Að 3/4 kostnað við sams konar ferðir
með áætlunarbíl eða skipi, enda sé um meira
en 15 km. vegalengd að ræða. Geti sjúkling-
ur ekki ferðast með áætlunarbíl, skal greiða
ferð með áætlunarflugvél að 3/4.
Heimilt er að greiða:
a. Hjúkrun í heimahúsum, veitta af vanda-
lausum.
b. Styrk upp í kostnað löskunar á tönnum,
þegar framkvæmdar hafa verið kostnaðar-
samar aðgerðir á þeim, sem ónýst hafa við
slys. Að svo miklu leyti sem samningar
sjúkrasamlaga eða sérstakir samningar slysa-
tryggingar ná ekki yfir sjúkrahjálp sam-
kvæmt framan sögðu, getur tryggingarráð
ákveðið endurgreiðslu, að nokkru leyti að
öllu.
Nú veldur slys ekki óvinnuhæfi í 10 daga,
en hefur þó í för með sér kostnað, sem um
ræðir í grein þessari, og má þá greiða hann,
að svo miklu leyti sem hann fæst ekki greidd-
ur hjá hlutaðeigandi sjúkrasamlagi.
Dagpeningar greiðast frá og með 8. degi
eftir að slysið varð, enda hafi hinn slasaði ver-
ið óvinnufær í minnst 10 daga. Dagpeningar
greiðast þangað til hinn slasaði verður vinnu-
Neytandinn og
slysatryggingar
- NEYTENDARÁÐSTEFNAN - NEYTENDARÁÐSTEFNAN - NEYTENDARÁÐSTEFNAN