Neytendablaðið - 01.02.1977, Qupperneq 20
20
Þegar
kaupa á
reiðhjól
Hér á landi er notkun reið-
hjóla ekki eins algeng og víða
erlendis. Því veldur margt, m.a.
brattar götur, tillitsleysi öku-
manna gagnvart hjólreiða-
mönnum og hátt verð á reið-
hjólum.
Þeir sem sjást á reiðhjólum eru
helst böm og unglingar en svo virð-
ist sem notkun reiðhjóla leggist að
mestu leyti niður eftir að unglingar
hafa náð fjíórtán ára aldri.
Þegar keypt er reiðhjól er hægt að
velja um nokkuð margar tegundir
og mismunandi verð en í sambandi
við gerðir hjólanna, en ýmislegt ber
að athuga.
Prófun á sex
tegundum reiðhjóla
Sænska umferðar- og vegamála-
stofnunin hefur prófað sex mis-
munandi gerðir drengjareiðhjóla
með þeim hætti að tólf ára drengir
voru látnir framkvæma vissar æf-
ingar á hjólunum, svo hægt væri að
gera sér grein fyrir því hvernig hin-
ar mismunandi reiðhjólategundir
láta að stjóm í venjulegri umferð.
Sænsku athuganimar leiddu í
ljós að erflðara er að stjórna reið-
hjólum með háu stýri en hjólum
með venjulegu stýri og gilti einu
hvers konar reiðhjólategund um var
að ræða. Tískuhjól með háu stýri
(eftirlíking af mótórhjóli með háu
stýri) gaf verri niðurstöðu en hið
venjulega reiðhjól með algenga gerð
af stýri.
Ekki er auðvelt að sjá hvað það
er sem hefur áhrif á stýringuna en
ætla má að gerð hnakksins og inn-
byrðis afstaða hnakks við stýri vegi
þyngst á metunum.
Alyktað er að hjól sem sýna
slæma útkomu við prófanir séu
hættulegri í umferðinni. Prófanir
ættu að vera sem líkastar hinum
mismunandi aðstæðum í umferð-
inni.
Sænska umferðar- og vegamála-
stofnunin fullyrðir, á gmndvelli
þessara og fyrri prófana, að reiðhjól
með yfirstærð á stýrum séu hættu-
leg.
Við athuganirnar var oftast
mældur tími og fjöldi villa.
Mat á jafnvægi hjólreiðamanns-
ins var einnig þáttur í útkomunni.
Villa taldist m.a. að drepi fæti á
jörðina eða aka yfir markalínu.
Þýtt og endursagt úr
TÆNK 4 tbl. 1975.
1) Horft til baka
meðan hjólað er.
3) Hjólað milli kubbaraða
eins hratt og unnt er.