Neytendablaðið - 01.06.1993, Page 13
Heimilið í ráttu Ijósi
Guðmundur
Viggósson,
augnlæknir og yfirlæknir
Sjónstöðvar íslands,
skrifar fyrir hönd Ljós-
tæknifélagsins
Þessi grein er sú fimmta í röð greina um lýsingu sem
Neytendablaðið birtir í samvinnu við Ljóstæknifélag
íslands. Markmið Ljóstæknifélagsins er að stuðla að betri
lýsingu og sjónskilyrðum og veita almenna, hlutlausa
fræðslu um allt er varðar lýsingu og sjónstarf.
lýsingar þau sömu fyrir full-
sjáandi sem sjónskerta, þótt
mikilvægara sé fyrir þá síðar-
nefndu að hafa hana í lagi.
■ Góð lýsing
Vanda ber til dæmis til lýs-
ingar í anddyri og útitröppum.
Stiga og ganga innanhúss þarf
að lýsa sérstaklega. Æskilegt
er að lýsa vel vinnuborð í eld-
húsi, til dæmis með ljósrörum
undir efri skápum og fá ljós
inn í skápa ef mögulegt er. I
baðherbergi er gott að hafa
Veigamikill þáttur
í hönnun húsa er
að skapa þar þcegi-
lega birtu, hvort
heldur sem er að
degi eða nóttu.
Góð lýsing bœtir
líðan bœði andlega
og líkamlega, eyk-
ur afköst við vinnu,
fœkkar óhöppum
og stuðlar að
meira hreinlæti.
11jós yfir baðkari og handlaug.
I svefnherbergjum vantar iðu-
lega lýsingu í skápa og skyn-
samlegt er að hafa þar nætur-
lýsingu, sérstaklega ef oft þarf
að fara á salerni að nóttu til.
Vinnulýsingu, bæði til lestrar
og handavinnu, er best að fá
frá stillanlegum lampabúnaði.
Stofan hefur vissa sér-
stöðu. Lýsing þar er fyrst og
fremst hvíldarlýsing og því er
ákjósanlegt að hægt sé að
dempa birtuna með ljósdeyfi.
Yfirleitt eru ljósir litir og
mattir æskilegastir innanhúss,
nema á dyraumbúnað, sem
æskilegt er að skeri sig úr. Að
jafnaði er bláleitt ljós óheppi-
legt fyrir sjónskerta, þar eð
það nýtist illa til sjónar.
I stuttu máli má segja að
góð lýsing bæti líðan bæði
andlega og líkamlega, auki af-
köst við vinnu, fækki óhöpp-
um og stuðli að meira hrein-
læti.
Aðeins lítill hluti raforku-
notkunar á heimilum er vegna
lýsingar, eða um 20 prósent.
Reikna má með að raforka til
lýsingar á heimili roskins
fólks kosti að meðaltali að-
eins um tíu krónur á dag. Bætt
lýsing er því einföld og ódýr
aðgerð til að auka öryggi okk-
ar, ungra sem aldinna, létta
okkur störfin og auka vellíð-
an, sem sagt búa okkur betra
líf.
NEYTENDABLAÐIÐ - Júní 1993
13