Neytendablaðið - 01.06.1993, Side 15
Markaðskönnun
Örbylgjuofnar í framför
Gæðakannanir benda til þess að framfarir hafi orðið í framleiðslu örbylgju-
ofna. Þeir þjóna tilgangi sínum betur, bæði hvað varðar eldun og afþíðingu.
Þó er enn ekki svo að þeir geti leyst hefðbundna ofna af hólmi. Neytendablaðið
birtir á næstu síðum markaðsyfirlit með ítarlegum upplýsingum um 66 tegundir
örbylgjuofna af ýmsum gerðum. Flestir þeirra kosta á bilinu 16-40 þúsund krón-
ur en nokkrir ofnar eru talsvert dýrari, allt upp í tæplega 108 þúsund, staðgreitt.
Meirihluti ofnanna hefur sjálfvirkni af einhverju tagi og er greinileg fylgni milli
verðs og sjálfvirkni.
Val á örbylgjuofni verður að
byggjast á þörfum og fyrir-
hugaðri notkun, auk kaupget-
unnar. Þeir sem aðeins ætla
að nota ofninn til þess að
afþíða og hita upp mat geta
látið sér nægja einfaldan ofn.
Þeir sem á hinn bóginn hyggj-
ast nota ofninn mikið til mat-
argerðar gætu ef til vill haft
þörf fyrir flóknari ofn. I töfl-
unni í næstu opnu eru veittar
upplýsingar um stærð ofnanna
ytra og innra, eldunarmögu-
leika og fleira.
■ Góðviðbót
Venjulegir örbylgjuofnar fá
þá almennu einkunn í um-
fjöllun danska neytendablaðs-
ins Rád og resultater að þeir
séu góð viðbót við hinn hefð-
bundna bökunarofn, en geti
ekki leyst hann af hólmi,
einkum vegna þess að þeir
henti ekki ýkja vel til bökun-
ar. Örbylgjuofnar nýtast best
við upphitun smærri skammta
og afþíðingu. Þegar um um-
fangsmeiri matargerð er að
ræða er bæði ódýrara og fljót-
legra að nota hefðbundinn
ofn, að sögn danska blaðsins.
Margir örbylgjuofnar hafa
þann galla að geta ekki brún-
að kjöt og laðað fram stökka
pöru. Margir þeirra eru þó
búnir þessum eiginleikum,
einkum þeir sem kosta meira.
Ekki er þó algilt að greiða
þurfi háar fjárhæðir fyrir eig-
inleika af þessu tagi. í um-
fjöllun sænska neytendablaðs-
ins Rád och rön kemur fram
að miðað við eldri gæðakann-
anir sýni nýjustu ofnarnir
meiri árangur við eldun og af-
þíðingu. Sumir ofnanna bjóða
upp á sjálfvirka afþíðingu, til
dæmis samkvæmt þyngd.
■ Varasamt
Suma ofna er hægt að stilla
fram í tímann. Þá er hægt að
setja matinn í ofninn á tiltekn-
um tíma og láta ofninn fara í
gang síðar. Þetta getur verið
varasamt af heilbrigðisástæð-
um. Maturinn hefur ekki gott
af að standa lengi við stofu-
hita. Kjöthitamælir getur hins
vegar verið kostur af heil-
brigðisástæðum. Þá er hægt
að ganga úr skugga um að
kjöt nái því hitastigi sem þarf
til þess að drepa bakteríur
(70-80 stig á Celsíus).
Rád och rön og Rád og
resultater hafa nýlega birt
gæðakannanir á örbylgjuofn-
um og eru nokkrir ofnanna á
íslenska markaðinum þeirra á
meðal. Félagsmenn Neyt-
endasamtakanna geta kynnt
sér þessar kannanir hjá skrif-
stofu samtakanna.
■ Leiðbeiningar
Nauðsynlegt er að hafa góðar
leiðbeiningar um notkun ör-
bylgjuofna og varla er hægt
að vera án góðrar matreiðslu-
bókar með upplýsingum um
magn og eldunartíma (sjá
einnig á síðu 18).
Samkvæmt markaðskönn-
un Neytendablaðsins fylgir
leiðarvísir á íslensku með
ofnum af gerðinni Melissa,
Toshiba, Daewoo, AEG, Phil-
ips Whirlpool og Siemens.
Unnið er að gerð íslensks
leiðarvísis með Funai og sum-
um ofnum frá Electrolux. Is-
lenskur leiðarvísir fylgir með
Panasonic ofnum, nema
tveimur dýrustu ofnunum.
Unnið er að gerð leiðarvísis
fyrir Kuppersbusch, Zanussi
og Sharp ofna en með þeim
síðast töldu fylgir blað þar
sem lýst er hvemig ofninn
vinnur. Leiðarvísir með De
Lonjhi og Bauknecht er á
ensku.
Örbylgjuofnar eru orðnir
ómissandi í mörgum íslensk-
um eldhúsum. I markaðs-
könnun Neytendablaðsins er
að finna upplýsingar um
verð og gerð 66 ofna á mjög
mismunandi verði.
Sjá töílu á næstu opnu og nánarí upplýsingará blaðsíðu 18 ►
15
NEYTENDABLAÐIÐ - Júní 1993