Neytendablaðið - 01.06.1993, Side 18
Markaðskönnun
Rannsóknir sýna að heilsu
manna stafar engin hœtta af
mat sem matreiddur er í ör-
bylgjuofni fremur en í hefð-
hundnum ofnum.
Helsti kostur örbylgju-
ofna felst í því að
matargerðin tekur aðeins
örskamma stund og mat-
reiða má án feiti. Þessi
matreiðsluaðferð varð-
veitir bragð matarins vel,
einkum njóta fiskur og
Hröð og góð matreiðsla
grænmeti sín vel í ör-
bylgjunum. Rannsóknir
sýna að heilsu manna
stafar engin hætta af
mat sem matreiddur er í
örbylgjuofni fremur en í
hefðbundnum ofnum.
Næringargildi matarins
verður heldur ekki síðra
við matreiðslu í örbylgju-
ofni.
Mikilvægt er að nota mat-
reiðslubók fyrir örbylgjuofna.
Slík bók fylgir með flestum
ofnanna í könnun Neytenda-
blaðsins. Matreiðslubók á ís-
lensku fylgir ofnum sem seidir
eru í Húsasmiðjunni, Heima-
smiðjunni, hjá Einari Farestveit,
Smith & Norland og Fálkanum.
Engar bækur fylgja ofnum frá
Bræðrunum Ormsson og Heim-
ilistækjum en í öðrum tilvikum
eru matreiðslubækur á erlend-
um málum.
Ekki má miklu skeika í tíma
þegar matreitt er í örbylgjuofni.
Því er ráðlegt að stilla á nokkru
skemmri tíma en tilgreint er,
setja yfir matinn og láta hann
standa nokkra stund til þess að
jafna hitanum og smakka svo á.
Sé maturinn hafður of lengi í
ofninum er hætta á að hann
verði seigur og þuix.
Staðsetningin í ofninum
skiptir miklu. Hitinn er minnst-
ur í ofninum miðjum, svo best
er að láta vatnsmikið hráefni
standa í miðjunni, en mat á
borð við spagettí utar. Ráðlegt
er að hræra í matnum einu sinni
til tvisvar og snúa stórum kjöt-
stykkjum við á meðan á mat-
reiðslu stendur. Maturinn er
ekki tilbúinn fyrr en hann hefur
fengið að standa nokkrar mínút-
ur og hitinn hefur jafnast. Taka
verður tillit til þess þegar eldað
er á fleiri en einni hæð að ineira
magn kallar á lengri eldunar-
tíma.
ílát úr gleri, postulíni og
steinefnum, pólýetelín og
pólýsúlfon plasti henta vel í ör-
bylgjuofna. Leirílát má einnig
nota en varast ber að nota slík
flát með dökkri gljáhúð. Hún
drekkur í sig mikinn hita. Meg-
inreglan er sú að flát úr málmi
og flát með gullrönd og þess
háttar á ekki að setja í örbylgju-
ofn.
Athygli skal vakin á því að
matur getur mishitnað í ör-
bylgjuofni. Sé ungbarnamjólk
hituð í slíkum ofni ber því að
hrista hana vel eftir hitun (sjá
einnig baksíðu síðasta tölu-
blaðs).
Vetðmiðaðvið
staðgreiðslu
W
Itöflunni í opnunni hér á
undan er eingöngu birt
staðgreiðsluverð. Svonefnt
afborgunarverð er í flestum
tilvikum 5,3 prósent hærra
og staðgreiðsluafslátturinn
því um 5 prósent. Afborgun-
arverð er 1! ,1 prósent hærra
í Rafbúð Miklagarðs og
Hljómbæ og það sama gildir
um Gaggenau í Húsasmiðj-
unni og Heimasmiðjunni.
Staðgreiðsluafslátturinn er
því 10 prósent í þessum til-
vikum. Að sjálfsögðu bætast
lántökukostnaður og vextir
við airiorgunarverðið ef
greiðslum er dreift.
Hvaðan koma þeir og hvar fást þeir?
Hvaðan:
Bandaríkin: Electrolux,
Zanussi, Sharp.
Þýskaland: Gaggenau,
Bauknecht, Kuppersbusch,
Siemens.
Frakkland: Daewoo, AEG,
Moulinex.
Ítalía: Dé Lonjhi.
Svíþjóð: Philips.
Bretland: Panasonic (tvær
dýrustu gerðirnar í Japan).
Kórea: Melissa, Gold Star.
Japan: Toshiba, Funai,
Sanyo EM 880.
Singapore: Sanyo EM 64 T.
Hvar:
í flestum tilvikum er sami aðili
innflytjandi og söluaðili. Vöru-
merkin í könnuninni fást á
eftirtöldum stöðum:
Electrolux og Gaggenau:
Húsasmiðjan og Heima-
smiðjan
Panasonic: Japis
Dé Lonjhi: Fönix
Bauknecht og Melissa:
Rafbúð Miklagarðs
Kuppersbusch og Zanussi:
Rafha
Toshiba og Daewoo: Einar
Farestveit
Sharp: Hljómbær
Gold Star: Radíóbúðin
AEG: Bræðurnir Ormsson
Philips Whirlpool og
Sanyo: Heimilistæki
(Gunnar Ásgeirsson flytur inn
Sanyo)
Siemens: Smith & Norland
Funai: Húsasmiðjan, Heima-
smiðjan, Fálkinn
Örbylgjuofnar fást einnig í
Glóey (Moulinex Chef og
Funai MO 6 V1), Byggt og
búið (Melissa 270), Ljós og
raftæki (Electrolux NF 4031
og Melissa DMR 610) og
Hagkaup Kringlunni (Funai
M0 6V1).
Athugasemdir:
▲ Hjá Einari Farestveit og
Hljómbæ er námskeið um
notkun örbylgjuofnanna inni-
falið í verði.
▲ í sumum tilvikum er hægt
að kaupa festingar til að
festa ofninn undir skápa.
Einnig er í sumum tilvikum
hægt að kaupa ramma utan
um ofninn til að byggja inn í
eldhúsinnréttingu.
▲ Japis tekur gamla ofna
upp í nýja á 5.000 krónur.
▲ Hjá Hljómbæ fylgja matar-
ílát með í kaupunum.
18
NEYTENDABLAÐIÐ - Júní 1993