Neytendablaðið - 01.06.1993, Síða 19
„Time-share”
Hvetur neytendur til varfærni
Viö höfum fylgst grannt með starfsemi Framtíöarferða og gagnrýnt
harðlega ýmislegt í þeirra starfsemi eins og til dæmis norska neyt-
endaráðið hefur gagnrýnt sambærilega starfsemi þar í landi. Það er
full ástæða til þess að hvetja fólk til varfærni í kaupum á svonefndu
“time-share”. Við ráðleggjum fólki að meta hagkvæmnina og fara vel
yfir samninga áður en gengið er frá kaupum, segir Jóhannes Gunnars-
son, formaður Neytendasamtakanna, í samtali við Neytendablaðið.
Jóhannes hefur, ásamt lögfræðingi samtak-
anna, haft starfsemi Framtíðaiferða til ná-
innar skoðunar á undanförnum mánuðum.
Eins og kunnugt er af umtjöllun fjölmiðla
selur fyrirtækið nokkurs konar búseturétt á
tilteknu hóteli erlendis, gjama í eina til
Ágreiningur við
Kreditkort hf.
Neytendasamtökin hafa skotið því
til úrskurðar samkeppnisráðs
hvort útreikningar Kreditkorta hf. á
dráttarvöxtum fái staðist samkeppnis-
lög. Kreditkort hf. reikna dráttarvexti á
vangreidda reikninga frá lokum hvers
tímabils. Neytendasamtökunum hafa
um árabil borist reglulega kvartanir frá
neytendum vegna þessa.
Ofangreind reikningsaðferð Kredit-
korta hf. þýðir til dæmis að korthafi,
sem ekki hefur greitt reikning sinn 3.
júlí næst komandi, verður krafinn um
dráttarvexti frá 18. júní. Visa ísland
reiknar dráttarvexti hins vegar frá
þeirn degi er korthöfum ber að greiða
reikninginn.
í bréfi til samkeppnisráðs segist
Jóhannes Gunnarsson, formaður Neyt-
endasamtakanna, telja einsýnt að skil-
málar Kreditkorta stangist á við 2.
málsgrein 37. greinar samkeppnislaga.
Þar segir að Samkeppnisstofnun geti
lagt bann við skilmálum greiðslukorta-
fyrirtækja sem samkeppnisráð telji að
feli í sér óréttmæt skilyrði sem aðeins
taki mið af hagsmunum kortafyrirtækis
eða komi illa niður á hagsmunum kort-
hafa eða greiðsluviðtakanda. Kredit-
kort hf. rökstyðja reikningsmáta sinn
með því að 18. hvers mánaðar sé
gjalddagi en 2. eða 3. hvers mánaðar
eindagi.
„Það er hins vegar ljóst að á svo-
nefndum „gjalddaga” Kreditkorta hf.
hefur reikningshöfum ekki borist neinn
reikningur vegna þessarar skuldar og
raunar er full ástæða til að efast um að
Kreditkort hf. sé tilbúið til að móttaka
greiðslu á „gjalddaga”, þar sem reikn-
ingar eru ekki tilbúnir,” segir í bréfinu
til samkeppnisráðs.
tvær vikur á ári, til 99 ára. Jafnframt fylgir
réttur til þess að skipta á vikunni á við-
komandi hóteli og viku í öðru landi á öðr-
um tíma, - gegn sérstöku gjaldi. Þetta hafa
Framtíðarferðir nefnt að ljárfesta í sumar-
leyfí. Á hinn bóginn mætti líta á greiðsl-
una sem fyrirfram greidda leigu til 99 ára.
Auk þess að greiða fyrir réttinn í upphafi
þarf að greiða árlegan viðhaldskostnað.
Bera fór á kvörtunum vegna þessarar
starfsemi í vetur. Eftir að hafa kynnt sér
málið gagnrýndu Neytendasamtökin
Framtíðarferðir harðlega fyrir ýmis ákvæði
í samningum og söluaðferðir. Mjög var
þrýst á viðskiptavini að ákveða sig strax
og skrifa undir. Þetta var meðal annars
gert með því að bjóða sérstök vildarkjör,
„aðeins í dag”.
Jóhannes segir að í Evrópu séu nú uppi
hugmyndir um að setja reglur um starf-
semi af þessu tagi, meðal annars með á-
kvæði um verulegan umhugsunarfrest.
Norska neytendaráðið hefur gagnrýnt
sambærilega staifsemi í Noregi og nánast
varað fólk við viðskiptunum. I fféttatil-
kynningu segir að samningar séu ekki
neytendum í hag, að söluaðferðir séu
gagnrýni verðar og að ekki sé hagkvæmt
að „ijárfesta í sumarfiíi” miðað við að
kaupa pakkaferðir.
SKILAR ÞU
umúÐum
A BtTTAN CTAfít
J|®
Umbúðir á eftirfarandi lista eru í umsjá
Endurvinnslunnar hf.:
Áldósir 33 cl og 50 cl.
Einnota plastdósir 33 cl.
Einnota plastflöskur 50 cl - 2 lítra.
Einnota glerflöskur fyrir öl og gosdrykki.
Margnota ölflöskur (bjórflöskur).
Afengisflöskur.
Á allar ofangreindar umbúÖir er lagt 6 kr. skilagjald sem er endurareitt
við móttöku i Endurvinnslunni hf. eða hjá umboðsaðilum um allt land.
Enmimuutiii
Nýtt úr notuðu!
NEYTENDABLAÐIÐ - Júní 1993
19