Neytendablaðið - 01.06.1993, Qupperneq 22
Gæði neysluvatns
Óhæft til drykkjar
vegna saurmengunar
Flestir landsmenn hafa gott neysluvatn og geta teygað það áhyggjulausir. En
goðsögnin um hið hreina og ómengaða vatn á ekki alls staðar við. Sums
staðar á landsbyggðinni telst vatn vera ónothæft vegna mengunar saurkólígerla,
en slík mengun getur verið vísbending um tilvist hættulegra sjúkdómsgerla á
borð við salmonellu. Franklín Georgsson hjá Hollustuvernd ríkisins segir að eina
leiðin til þess að tryggja að ekki komi til sýkingar vegna verulega gerlamengaðs
vatns sé að sjóða það. Samkvæmt upplýsingum Neytendablaðsins horfir þó til
bóta á nokkrum stöðum þar sem ástandið hefur verið gersamlega óviðunandi og
vatnið jafnvel hættulegt börnum, öldruðum, sjúklingum og öðrum sem viðkvæmir
eru fyrir sýkingum.
Upplýsingar um ástand
neysluvatns víða um land
koma fram í skýrslu sem Sig-
ríður A. Asgrímsdóttir verk-
fræðingur hefur unnið á veg-
um veitunefndar Neytenda-
samtakanna. Nefndin vekur
athygli á því að upplýsingam-
ar eru ekki nýjar og ekki er
ástæða til þess að ótti grípi
um sig. Niðurstöður eru
byggðar á sýnum sem tekin
voru á árunum 1985-1992.
Heilbrigðisfulltrúar á hverjum
stað sjá um sýnatöku og senda
Hollustuvernd ríkisins sýnin
til rannsóknar.
Niðurstaða skýrslunnar er
sú að heilbrigðisreglugerð sé
ekki alltaf framfylgt sem
skyldi.
„Skipulagi vatnsverndar-
svæða er ábótavant, frágangur
vatnsbóla er ófullnægjandi á
mörgum stöðum og upplýs-
ingar um dreifikerfí vatns-
veitna eru ófullnægjandi. Ibú-
ar sem að staðaldri búa við
gerlamengað vatn eru taldir
mynda mótefni í líkama sín-
um gegn skaðlegum áhrifum
og dregur það úr hættu á sýk-
ingum. Áhættan er meiri fyrir
ungaböm og aðra viðkvæma
einstaklinga, t.d. aldraða og
sjúka. Til dæmis er með öllu
óásættanlegt að í neysluvatni
skuli fínnast kólígerlar og þá
sérstaklega saurkólígerlar”,
segir í niðurstöðum skýrsl-
unnar.
■ Vestfirðir verstir
Athugunin nær til nær 60
þéttbýlisstaða en engar upp-
lýsingar bárust frá Suðurlandi
og Norðurlandssvæði eystra.
Sérstaka athygli vekur slæmt
ástand vatnsmála á sumum
stöðum á Vestfjörðum og
Austfjörðum. Sýni þaðan eru
frá ámnum 1985-1992.
Á þessum svæðum er víða
notað yfirborðsvatn. Það er
mjög viðkvæmt fyrir hvers
kyns mengun, enda eiga dýr
og fuglar að því greiðan að-
gang.
Fram kemur í skýrslunni
að meira en helmingur sýna
sem tekin voru í dreifíkerfi
Isfirðinga var talinn ónothæf-
ur vegna saurkólígerlameng-
unar, eða 67 prósent. Sam-
svarandi tala fyrir Hnífsdal
var 83 prósent. Vatn Súðvík-
inga var í öllum tilvikum
ónothæft af sömu ástæðu.
Sýni þaðan voru hins vegar
mjög fá. Ástandið hefur verið
svipað á Suðureyri. Þar voru
83 prósent sýna talin ónothæf
vegna saurmengunar. Annars
staðar á Vestfjörðum hefur á-
standið verið mun betra. Vatn
í Bolungarvík er síað og geisl-
að.
■ Magakveisur
Anton Helgason, heilbrigðis-
fulltrúi Vestfjarða, segir að
mjög horfi til bóta í vatnsmál-
um Vestfirðinga á næstu
ámm.
Sigríður Á. Ásgrímsdóttir,
verkfrœðingur Neytendasam-
takanna, vann skýrsluna um
gæði neysluvatns. Skýrslan er
unnin á vegum veitunefndar
samtakanna.
- Innfæddir finna lítið fyrir
mengun vatnsins en aðkomu-
fólk, til dæmis á ísafirði, hef-
ur orðið vart við magakveisur
vegna þess. Ég tel hins vegar
að innan þriggja ára verði
neysluvatn orðið gott á Vest-
fjörðum. Mjög víða er unnið
að úrbótum, segir Anton í
samtali við Neytendablaðið.
Hann segir að á undanfömum
mánuðum hafi neysluvatn
Isfirðinga verið í lagi. Þar er
unnið að því að koma upp
síu- og geislabúnaði, auk þess
sem fyrirhupað er að virkja
lindarvatn. I Súðavík er
einnig áformað að virkja lind-
arvatn og taldi Anton að jafn-
vel yrði unnið að úrbótum þar
í sumar. Ekki er vitað hvemig
leysa á vatnsmál íbúanna á
Suðureyri.
Á svæðinu frá Vopnafirði
til Hafnar í Homafirði em
sýni frá ellefu þéttbýliskjöm-
um og samkvæmt þeim er
„Innfæddir finna lítið fyrir mengun vatnsins en
aðkomufólk, til dæmis á ísafirði, hefur orðið
vart við magakveisur vegna vatnsins. Ég tel
hins vegar að innan þriggja ára verði neyslu-
vatn orðið gott á Vestfjörðum. Mjög víða er
unnið að úrbótum.”
Anton Helgason, heilbrigðisfulltrúi Vestfjarða
22
NEYTENDABLAÐK) - Júní 1993