Neytendablaðið - 01.06.1993, Qupperneq 28
Upplýsingaskylda fasteignasala
Þótt þeir sem hug hafa á því að kaupa gamalt húsnæði sem þarfn-
ast endurbóta séu hér hvattir til þess að leita sér ráðgjafar um-
fram þá sem fasteignasalar geta veitt, láta fasteignasalar í té nauð-
synlegar upplýsingar um fasteignina í samræmi við 10. grein laga um
fasteigna- og skipasölu. Samkvæmt henni skal fasteignasali gera
yfirlit sem hafi að geyma eftirfarandi upplýsingar og atriði svo sem
kostur er (að nokkru orðrétt úr lögunum, stytt og endursagt að hluta):
1. Upplýsingar um söluverð, söluskil-
mála, hluta verðs sem staðgreiða á,
hvernig haga eigi greiðslum og
hvemig tryggja eigi þær.
2. Glöggar upplýsingar og gögn um
stærð húss og lóðar, fyrirkomulag
innanhúss, byggingarlag og bygging-
arefni húss, aldur þess og endurbygg-
ingar eða viðbyggingar, ástand húss,
þar á meðal um galla sem þekktir eru,
upphitun, gler, staðsetningu og atriði
sem skipta máli vegna byggingar- og
skipulagslaga. Teikning af húsi skal
vera fyrir hendi ef kostur er. Ef um
sameign er að ræða skal greina glögg-
lega eignarhlutdeild í húsi og lóð, svo
og um óskipta sameign.
3. Upplýsingar um matsverð eignar sam-
kvæmt fasteignamati og brunabóta-
mati, svo og önnur matsgögn ef til
eru.
4. Grein skal gerð fyrir veðskuldum og
öðrum eignarhöftum sem kunna að
hvíla á eigninni, stutt vottorði úr
þinglýsingarbókum. Greina ber hvers
eðlis eignarhöftin eru, þar á meðal
kvaðir sem á eign kunna að hvíla.
Greina skal glögglega um eftirstöðvar
veðskulda sem hvfla eiga á eign og
kaupandi tekur að sér að greiða, af-
borganir af þeim og vexti, hvort skuld
sé verðtryggð, hvenær henni eigi að
vera lokið og hverjar eftirstöðvar
hennar eru að viðbættri verðtrygg-
ingu. Þá skal greina kostnað við
samningsgerð, þinglýsingu og stimpl-
un skjala og í hvors hlut komi.
Vandasöm fasteignakaup
Góöur undirbúningur, þekking, skipulag, vandaöar áætlanir og þolinmæði.
Þessi hugtök eru kröfuhörö en ættu að vera forsenda og leiðarljós þeirra
sem kaupa gamalt og lúið húsnæði. Fasteignakaup gera misjafnar kröfur til
manna rétt eins og þarfir fólks og óskir eru með ýmsu móti. Sumir leita að hús-
næði sem þarfnast lítilla eða engra endurbóta. Aðrir sjá möguleika í gömlum
húsum í grónum hverfum og gera það að hugsjón sinni og tómstundaiðju að
endurbæta þau og innrétta eftir eigin höfði. í síðara tilvikinu er ævintýrið rétt að
hefjast þegar skrifað er undir kaupsamning. Langur og erfiður tími getur liðið
áður en hugsjónin verður að veruleika, en í upphafi skyldi endirinn skoða.
Eftir Garðar Guðjónsson og
Guðrúnu H. Sigurðardóttur
- Við fasteignasalar rekumst
óhjákvæmilega á dæmi um
fólk sem hefur keypt gamalt
hús í hrörlegu ástandi, ekki
undirbúið dæmið nægilega vel
og komist að því að endurbæt-
urnar voru bæði tímafrekari og
kostnaðarsamari en í upphafi
var ætlað. I sumum tilvikum
gefst fólk einfaldlega upp.
- Það er engin spuming að
fólk sem hyggur á kaup á slíku
húsnæði ætti að taka með sér
iðn- eða tæknimenntaðan ráð-
gjafa, hafi það ekki slíka þekk-
ingu sjálft. Þó tekur fólk auð-
vitað alltaf áhættu þegar keypt
er gamalt húsnæði. Það er svo
margt sem ekki er hægt að sjá
fyrir, jafnvel þótt tæknimennt-
aðir menn eigi í hlut, segir Jón
Guðmundsson, formaður
Félags fasteignasala, í samtali
við Neytendablaðið.
■ Þáttur fasteignasala
Áhugi á gömlum húsum hefur
verið mikill á undanfömum
ámm og margur „hjallurinn”
gengið í endumýjun lífdaga
með nýjum eigendum. Þegar
hugað er að fasteignakaupum
af þessu tagi er áríðandi að vel
sé vandað til undirbúnings.
Rétt er að gera sér grein fyr-
ir því að fasteignasalar hafa yf-
irleitt takmarkaða þekkingu til
þess að meta fasteignir sem
þarfnast mikilla endurbóta og
ekki er ávallt tekið fyllsta tillit
til ástands hússins við verðmat.
í sumum tilvikum felst verð-
Jón Guðmundsson, formaður Félags fasteignasala: Ég ráðlegg
fólki eindregið að leita ráðgjafar fagmanns áður enfest eru
kaup á eldra húsnœði.
matið einfaldlega í því hvað
seljandi telur eðlilegt að fáist
fyrir eignina. Enda hvetur Jón
Guðmundsson væntanlega
kaupendur til þess að hafa sér-
fræðinga með í ráðum.
- Þeir sem stunda fasteigna-
sölu em náttúrlega ekki iðn-
menntaðir eða byggingafróðir,
þótt margir hafi farið á nám-
skeið þar sem talsvert er fjallað
um byggingarfræði. Það hefur
verið mjög gagnlegt og tví-
mælalaust til mikilla bóta fyrir
fagið. En þegar um er að ræða
fasteignir sem við sjáum að
þarfnast mikilla endurbóta
bendum við fólki oftar en ekki
á að leita sér ráðgjafar. Við
reynum auðvitað að meta
ástand hússins, áætla kostnað
við endurbætur og taka tillit til
þess við mat á verði. En miðað
við þá þóknun sem er í boði
fyrir okkar starf er útilokað að
við getum tekið slík hús út eins
og vera ber. Ef ljóst er að veru-
legra endurbóta er þörf þurfa
fagmenn að koma til. Við lát-
um hins vegar í té ýmsar nauð-
synlegar upplýsingar, segir Jón
og vitnar til 10. greinar laga
um fasteigna- og skipasölu (sjá
rammagrein).
Þegar fundist hefur fasteign
sem leitarfólki líst á er hyggi-
legt að afla ýmissa upplýsinga
28
NEYTENDABLAÐIÐ - Júní 1993