Neytendablaðið - 01.06.1993, Side 30
Að kaupa gamalt
Opinberir styrkir og
lán til endurbóta
og lánum til endurbóta á húsnæði hjá þremur
Leita má eftir styrkjum
opinberum aðilum:
Húsafriðunarnefnd ríkis-
ins veitir eigendum friðaðra
húsa og húsa með langa og
merka sögu fjárstyrk til þess
að gera þau upp. Styrkirnir
eru auglýstir einu sinni á ári
og er hægt að sækja um
tvisvar vegna sama húss,
fyrst til undirbúnings
(teiknivinnu og áætlana-
gerðar) og svo til fram-
kvæmda. Styrkirnir geta
numið allt frá 100 þúsund
krónum upp í eina miljón.
Þeir eru ekki greiddir út fyrr
en reikningar fyrir fram-
kvæmdum liggja fyrir, en
mikilvægt er að sjálfsögðu
að sækja um áður en hafist
er handa.
Nánari upplýsingar á Þjóð-
minjasafni í síma 28888.
Húsverndarsjóður
Reykjavíkur veitir lang-
tímalán til viðgerða og end-
urbóta á gömlum húsum
sem talin eru hafa sérstakt
varðveislugildi af söguleg-
um eða byggingarsöguleg-
um ástæðum. Umhverfis-
málaráð Reykjavíkurborgar
metur umsóknir og gerir til-
lögur til borgarráðs um lán-
veitingar úr sjóðnum að
fenginni umsögn Árbæjar-
safns. Lán eru veitt einu
sinni á ári.
Nánari upplýsingar hjá
garðyrkjustjóra í síma
632460.
Húsnæðisstofnun ríkisins
veitir lán til meiri háttar
endurbóta á eldra húsnæði.
Lán geta numið 650 þús-
undum króna og allt að
þremur miljónum eftir því
hversu miklar endurbætur er
um að ræða. Skilyrði er að
liðin séu 15 ár frá því húsið
varð fokhelt og að kostnað-
ur sé ekki undir einni milj-
ón króna. Ekki er lánað til
venjulegs viðhalds. 80 pró-
sent framkvæmda þarf að
vera lokið áður en lánið er
veitt og taka starfsmenn
stofnunarinnar framkvæmd-
irnar út. Endurbótalán Hús-
næðisstofnunar eru hús-
bréfalán.
Nánari upplýsingar hjá
Húsnœðisstofnun ríkisins í
síma 696900.
HVERT GETUM VIÐ LEITAD?
Félag íslenskra
bifreiðaeigenda
Upplýsingar, leiðbeiningar
og aðstoð vegna
bifreiðaeignar, viðskipta og
þjónustu. Borgartún 33,
s. 91-629999,
kl. 9-17 virka daga.
Húseigendafélagið
Upplýsingar um eign, rekst-
ur og leigu húsnæðis.
Aðstoð einungis veitt fé-
lagsmönnum. Síðumúla 29,
s. 91-679567.
Samkeppnisstofnun
Kvartanir og ábendingar
vegna vöruverðs. Eftirlit
með samkeppni og við-
skiptaháttum, röngum,
ófullnægjandi eða villandi
upplýsingum. Laugavegi
116, gengið inn frá
Rauðarárstíg, s. 91-27422,
virka daga kl. 8-16.
Kvörtunarnefnd
vegna ferðamála
Neytendasamtökin og Fé-
30
lag ísl. ferðaskrifstofa. Upp-
lýsingar á skrifstofu NS,
s. 91-625000.
Kvörtunarnefnd NS
og Félags efnalaugaeigenda
Fjallar um kvartanir vegna
þjónustu efnalauga. Upp-
lýsingar á skrifstofu NS.
Kvörtunarnefnd um
byggingarstarfsemi
Neytendasamtökin, Meist-
ara- og verktakasamband
byggingamanna og Húseig-
endafélagið. Fjallar um
kvartanir vegna þjónustu
byggingaverktaka (nýbygg-
ingar, viðhald, endurbæt-
ur).Upplýsingar á skrifstofu
NS, M.V.B. eða Húseig-
endafélagsins.
Leigjendasamtökin
Ráðgjöf og leiðbeiningar
við gerð leigusamninga.
Lögfræðiaðstoð við leigj-
endur. Leit að húsnæði fyrir
félagsmenn. Hverfisgötu
8-10, s. 91-23266, kl. 9-17
virka daga.
Leiðbeiningastöð heimil-
anna
Kvenfélagasamband ís-
lands. Upplýsingar um
heimilisstörf, heimilistæki
og heimilishald. Hallveigar-
stöðum, Túngötu 14, 3.
hæð, s. 91- 12335. Skrif-
stofu- og símatími kl. 9-17
virka daga.
Nefnd um ágreiningsmál í
heilbrigðisþjónustu
Fjallar um skriflegar kvart-
anir eða kærur vegna heil-
brigðisþjónustu.
Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið, Laugavegi
116, eða landlæknis-
embættið.
Siðanefnd Blaðamanna-
félags íslands
Fjallar um skriflegar kærur
vegna meintra brota á siða-
reglum blaðamanna.
Síðumúla 23, s. 91-39155.
Siðanefnd um auglýsingar
Samband íslenskra auglýs-
Til minnis og
ábendingar:
Samkvæmt þjóðminjalög-
um ber að leita umsagnar
borgarminjavarðar og
húsfriðunarnefndar nkis-
ins á breytingum á öllum
húsum sem byggð voru
fyrir síðustu aldamót áður
en enduruppgerð húsa
hefst. Öll hús sem byggð
voru fyrir 1850 eru frið-
uð. Starfsmenn húsfriðun-
arnefndar hafa eftirlit með
enduruppgerð hússins svo
tryggt sé að fagmannlega
og rétt sé staðið að breyt-
ingum.
Á Árbæjarsafni er unnið
að svonefndri húsaskrá
Reykjavíkur þar sem sjá
má hvenær hús voru
byggð, hver byggði þau
og hverjir hafa búið í
þeim. Með því að glugga
í sögu hússins fær húsið
gjarna nýtt líf í augum
^igendanna.
Einnig er til myndasafn af
gömlum húsum á Árbæj-
arsafni. Styðjast má við
myndir við ákvörðun um
framtíðarútlit. Ljós-
myndasafn Reykjavíkur
er einnig ríkt að myndum
af gömlum húsum.
ingastofa, Neytendasam-
tökin og Verslunarráð ís-
lands. Fjallar um skriflegar
kærur vegna ólögmætra
auglýsinga. Háteigsvegi 3,
S. 91-29588.
Tryggingaeftirlit ríkisins,
neytendaþjónusta
Upplýsingar um atriði er
varða tryggingar. Suður-
landsbraut 6, s. 91-685188,
miðvikudaga til föstudaga
kl. 10-12.
Heilbrigðiseftirlit
sveitarfélaga
Kvartanir frá almenningi
vegna ástands matvæla,
merkinga á vörum, um-
gengni á opinberum stöð-
um, hávaða eða óþrifnaðar
í umhverfinu.
Markaðseftirlit
Eftirlit með rafföngum, leik-
föngum og hættulegri fram-
leiðsluvöru. Bifreiðaskoðun
íslands, s. 673700.
NEYTENDABLAÐIÐ - Júní 1993