Neytendablaðið - 01.06.1993, Page 32
Rúnar Marvinsson, matargerðar- og veiði-
maður, býður upp á grillaðan silung með
kartöflusalati: Viðfinnum varla ódýrara hrá-
efni en vatnasilung á þessum árstíma og nú
þegar liðið er á sumarið eigum við gnœgð
grœnmetis og kryddjurta í íslenskri náttúru.
Villt, ódýrt
og gott
á grillið
Rúnar Marvinsson matargerðarmaður dvelur
löngum við silungsveiðar í íslenskri náttúru.
Hann borðar mikinn silung og býður öðrum
gjarna upp á silung, oftar en ekki með íslensk-
um kryddjurtum og grænmeti. Hann féllst á að
láta lesendum Neytendablaðsins í té uppskrift
að grillmáltíð sem byggir nær eingöngu á
íslensku, náttúrulegu hráefni; grilluðum silungi
með kartöflusalati.
Þegar manni dettur fiskur í hug kemur
nafn Rúnars gjama upp í hugann. Hann
hefur getið sér frábært orð fyrir mat-
reiðslu á fiski, ekki síst ýmsum tegund-
um sem Islendingar litu vart við á árum
áður. Neytendablaðið bað Rúnar að gefa
lesendum hugmynd að einhverju góðu
og hagkvæmu á grillið nú í útilegu- og
grilltíðinni og það var ekki að sökum að
spyrja: Fiskur skal það vera.
- Við fmnum varla ódýrara hráefni en
vatnasilung á þessum árstíma og nú þeg-
ar liðið er á sumarið eigum við gnægð
grænmetis og kryddjurta í íslenskri nátt-
úru. Ég leitast við að hafa hráefnið í
þennan rétt að sem mestu leyti beint úr
íslenskri náttúru. Þessi máltíð kostar ekki
mikið meira en tíma og fyrirhöfn. í stað
silungsins mætti nota lax, lúðu, skötusel
eða steinbít, segir Rúnar við Neytenda-
blaðið.
Rúnar flakar silunginn og miðar við
300-350 g á hvem fullorðinn. Uppskrift-
in er á þessa leið:
Best er að gera kartöflusalatið tveimur
til þremur tímum áður en grillað er og
láta það standa í kæli. I það notar Rúnar
eftirfarandi:
4 stórar, soðnar kartöflur
(ein á mann)
4 matskeiðar túnsúra (hundasúra)
1 matskeið skarfakál (fíflablöð; ung
blöð eru betri)
4 matskeiðar graslaukur
1 askja sýrður rjómi
Skerið kartöflumar í litla bita og setjið
í skál ásamt kryddjurtunum og sýrðum
rjóma. Hrærið öllu saman. Látið standa í
kæli í tvo til þrjá tíma.
■ Fiskurinn
Saltið silungsflökin og látið standa í
fimm mínútur. Merjið tvö til þrjú hvít-
lauksrif og blóðberg og blandið saman
við ólífuolíu. Penslið flökin með blönd-
unni. Glóðið á heitu grilli í eina til þrjár
mínútur á hvorri hlið. Grillristin verður
að vera vel hrein og gott er að bera dá-
litla olíu á hana með klút áður en grillað
er, þá festist fiskurinn síður við.
Rúnar er mikill aðdáandi íslenskra
kryddjurta og segir að gjama megi nota
til dæmis brenninetlu, kerfil eða morgun-
frú í stað blóðbergs.
- Garðamir okkar em fullir af krydd-
jurtum sem flestir vaða yfir og líta á sem
illgresi. Kerfillinn er gott dæmi um það.
Honum bölvar fólk yfirleitt sem illgresi
en fer svo út í búð og kaupir hann inn-
fluttan frá Frakklandi. Staðreyndin er sú
að kerfill er anísjurt og glettilega góð
kryddjurt. Svo má nota blómin til að
skreyta diskinn, segir Rúnar.
Þegar höfð em viðtöl við Rúnar kem-
ur ævinlega upp vafinn um hvaða starfs-
heiti hann megi bera, þar eð hann er ekki
faglærður matreiðslumaður og ekki í fé-
lagi með þeim.
- Þú mátt alls ekki kalla mig mat-
reiðslumann, þá kallarðu verði laganna
yfir þig. Kallaðu mig matargerðarmann -
eða bara skítkokk, segir Rúnar og hlær
ógurlega.