Neytendablaðið - 01.12.1997, Blaðsíða 19
Frumvarp til laga
um þjónustukaup
Ekki eru í gildi neinar laga-
reglur um kaup á þjónustu,
svo sem þegar menn skipta við
rafvirkja, smið eða skósmið.
Þörfin á lagareglum á þessu
sviði er ekki síður mikilvæg en
um vörur, því ágreiningsmál
vegna kaupa á þjónustu eru
mjög algeng. Þegar menn eiga
viðskipti við seljendur þjón-
ustu er það samningur þeirra á
milli sem segir hvað er verið
að kaupa, hvað þjónustan á að
kosta og svo framvegis. Hins
vegar er það mjög oft svo að
samningar á þessu sviði eru
óskýrir eða ófullkomnir eða þá
að þeir hafa alls ekki verið
gerðir.
Deilumál leyst
Neytendasamtökin hafa lagt á
það áherslu að settar yrðu regl-
ur sem gætu auðveldað mönn-
um að leysa ágreiningsmál sem
koma upp í þjónustuviðskipt-
um. Nú hefur verið tekið undir
þetta sjónarmið Neytendasam-
takanna því af hálfu viðskipta-
ráðuneytis hefur verið lagt
fram frumvarp til laga um
þjónustukaup sem tekur til þess
þegar neytandi kaupir þjónustu
af seljanda vegna vinnu við
fasteignir og lausafé. Undir
frumvarpið fellur því hvers-
kyns viðgerðarþjónusta á
lausafjármunum. Dæmi um
slíka þjónustu eru bifreiðavið-
gerðir og viðgerð pípulagn-
ingamanns eða rafvirkja á
heimilinu. I frumvarpinu er að
finna leiðbeiningarreglur um
það hvernig vinna skuli verk
og hvað greiða skuli fyrir verk-
ið ef ekki hefur verið samið um
það. Þar er einnig gert ráð fyrir
að seljandi verði að leiðbeina
kaupanda um ákveðin atriði, til
dæmis þegar verk verður um-
fangsmeira en gert var ráð fyrir
í byrjun eða ef ekki reynist
hagkvæmt að vinna verkið.
Einnig eru í frumvarpinu reglur
um úrræði kaupanda ef verk er
gallað eða það er ekki afhent á
réttum tíma.
Neytendasamtökin telja að
ef lög um þjónustukaup verða
samþykkt muni það bæta stöðu
neytenda og gera viðskipti
vegna kaupa á þjónustu mun
öruggari en nú er.
/ kaupalögum er kveðið á um
rétt þinn verðir þú fyrir því
óláni að kaupa gallaða vöru.
söluhlut sem er gallaður. Kvörtunarþjón-
usta Neytendasamtakanna hefur orðið
mjög vör við það vandamál að seljendur
eiga í erfiðleikum með að gera við hluti
sem þeir hafa selt en síðan reynst gallað-
ir. Vandamál hafa einnig skapast vegna
þess hvað viðgerðir hafa tekið langan
txma og er dæmi um að seljandi hafx haft
hlut til viðgerðar í níu mánuði. Neyt-
endasamtökin telja því afar brýnt að sett-
ar verði reglur um það hversu mörg tæk-
ifæri seljendur hafa til þess að gera við
söluhlut og hversu langan tíma þeir hafa
til þess. Neytendasamtökin vilja að á
þessu verði tekið í væntanlegum kaupa-
lögum þannig að seljandi hafi aldrei
heimild til að gera við hlut vegna sama
galla oftar en tvisvar og að hann geri við
hann án óeðlilegra tafa.
Höfum stjórn á fjármálum
fjölskyldunnar og færum heimilisbókhald
Heimilisbókhald -
lykillinn að bætt-
um efnahag sem
Neytendasamtökin hafa
gefið út nýtist vel til
þess. Fæst á skrif-
stofum Neytenda-
samtakanna og er
verð til félagsmanna
225 kr. og til annarra
290 kr.
NEYTENDABLAÐIÐ - Desember 1997
19