Neytendablaðið - 01.10.1998, Qupperneq 2
Leiðari
Fagri nýi heimur
Umræða um gagnagrunna
hefur verið mjög áberandi
að undanfömu. Ástæðan er
einkum drög að frumvarpi um
miðlægan gagnagmnn á heil-
brigðissviði sem ríkisstjómin
hefur heitið að verði að lögum.
Þessi umræða hefur meðal ann-
ars leitt til þess að æ fleiri gera
sér grein fyrir að um þá er safn-
að fjölmörgum upplýsingum og
oftar en ekki er hér um að ræða
mjög viðkvæmar upplýsingar
um viðkomandi einstakling.
Það er því alls ekki sama hvem-
ig um þessar upplýsingar er
gengið og hvemig þær em nýtt-
ar. Það er til dæmis mögulegt að
samkeyra marga mismunandi
gmnna. Slíka samkeyrslu má
nota í ýmsum tilgangi og ekki
endilega til hagsbóta fyrir al-
menning. Því verður að vera
hægt að treysta að strangar regl-
ur gildi um gagnagmnna og að
allt eftirlit með þeim og notkun
upplýsinga úr gagnagrunnum sé
undir höndum eftirlitsaðila sem
er sjálfstæður gagnvart þeim
sem eftirlitið beinist að og hafi
jafnframt mannafla til að sinna
eftirliti með starfsemi sem verð-
ur æ víðtækari og flóknari.
Umræðan um miðlægan
gagnagmnn á heilbrigðissviði
hefur að mörgu leyti verið
gagnleg, cnda hafa vaknað íjöl-
margar gmndvallarspumingar
sem raunar eiga ekki bara við
þetta eina mál, heldur einnig
víðtæka söfnun persónuupplýs-
inga í fjölmörgum gagnagmnn-
um, spurningar sem við verðum
að svara. Hvað eru persónuupp-
lýsingar? Hvemig tryggjum við
næga persónuvemd? Hver á
upplýsingamar? Hvemig má sá
sem hefur upplýsingamar undir
höndum nota þær? Hvað um
samkeyrslu upplýsinga úr
ýmsum gagnabönkum sem get-
ur verið mjög mismunandi að
hætti og umfangi? Þannig mætti
halda áfram.
I bók sinni, Fagri nýi heimur,
lýsti Aldous Huxley þjóðfélagi
framtíðarinnar þar sem stóri
bróðir gnæfir yfir og fylgist
með öllu. En höfum við áhuga á
þjóðfélagi sem er í ætt við það
sem þar er lýst? Þjóðfélagi þar
sem hið opinbera fylgist með
hverju skrefi okkar, seljendur
vöru og þjónustu fylgjast ná-
kvæmlega með neyslumunstri
okkar, ein-
stök fjár-
málafyrir-
tæki geta að
okkur fom-
spurðum
skoðað öll
viðskipti
okkar á því
sviði og
tryggingafélög og vinnuveitend-
ur þekkja sjúkrasögu okkar og
hvort við erum í áhættuhópi, til
dæmis hvað varðar arfgengi
einhverra sjúkdóma. Þetta kann
að hljóma fáránlega, en ef bara
sumt af þvf sem er nú mögulegt,
eða verður mögulegt innan fárra
ára, er notað á rangan máta
gagnvart almenningi, þá
færumst við nær slíku þjóðfé-
lagi. Til að koma í veg fyrir
þessa ljótu sýn verða því að
gilda mjög strangar reglur.
Þegar um er að ræða per-
sónuupplýsingar og meðferð
þeirra verður að tryggja víðtæka
vemd. Það er mikilvægt að
ákveðin grundvallaratriði séu í
Iagi og á hreinu:
▲ Skilgreining á persónuupp-
lýsingum verður ávallt að
vera skýr. Það sama á við um
það hvað teljast ópersónu-
greinanlegar upplýsingar.
▲ Sá sem persónuupplýsingam-
ar tengjast á þær og hefur um-
ráðarétt yfir þeim, og verður
leita heimildar hans til að
nota þær.
▲ Sá hinn sami á ávallt að geta
gengið úr skugga um hvaða
upplýsingar liggja fyrir um
hann í ýmislegum gagna-
bönkum
A Persónuleynd verður að
tryggja við meðferð allra
gagna.
▲ Tryggja verður öflugt eftirlit
með gagnagrunnum og notk-
un þeirra.
▲ Um samkeyrslu gagnagmnna
verða að gilda mjög strangar
reglur og tryggja verður eðli-
leg réttindi almennings, eig-
anda upplýsinganna.
▲ Engin tengsl mega vera á
milli hagsmunaaðila og eftir-
Iitsaðila.
Þegar þetta er skrifað hefur
heilbrigðisráðherra kynnt
lokabreytingar sínar á
gagnagmnnsfrumvarpinu. Ljóst
er að þar er að einhverju leyti
tekið tillit til þeirra íjölmörgu
athugasemda sem gerðar hafa
verið við fmmvarpið. Það er
hins vegar sannfæring þess sem
þetta skrifar að full ástæða sé til
að flýta sér hægt og vinna þetta
mikilvæga verk vandlega.
Ábyrgð alþingismanna er mikil,
þeim ber að gæta almanna-
hagsmuna í þessu máli eins og
öðrum. Hér er um að ræða mál
sem skipta mun miklu fyrir
okkur, en ekki síður afkomend-
ur okkar og við höfum ekki rétt
til að troða á réttindum þeirra.
Jafnframt hefur þetta mál for-
dæmisgildi hvað varðar notkun
persónuupplýsinga og þar meg-
um við ekki rasa um ráð fram
með dollaramerki í augunum.
Jóhannes Gunnarsson
Efnisyfirlit
Hvaðerhægt að ganga
iangt til að selja
ryksugu? 5
Hvaö erskinka?
Barist um
bílakaupendur 8
Kjötkraftur
- súputeningar 9
Hárblásarar
ogkrullujárn 12
Hár er höfuðprýði 15
Flísfatnaður hentar vel
í íslenskri veðráttu 16
Vatnsþétt úr eru ekki
alltaf vatnsþétt 17
Leiðarvísir um
tákn og merki á
neytendavörum 18
Heimabíóið og
hátalararnir 21
Tímarit Neytendasamtakanna, Skúlagötu 26, 101 Reykjavík, s. 562 5000. Netfang:
neytenda@itn.is og heimasíða á Internetinu: http://www.itn.is/neytenda Ritstjóri og ábyrgðar-
maður: Jóhannes Gunnarsson. Myndir: Einar Ólason. Prófarkalesari: Hildur Finnsdóttir. Um-
brot: Blaðasmiðjan. Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf. Pökkun: Bjarkarás. Upplag: 19.000. Blað-
ið er sent öllum félagsmönnum í Neytendasamtökunum. Ársáskrift kostar 2.400 krónur og gerist
viðkomandi þá um leið félagsmaður í Neytendasamtökunum. Heimilt er að nota efni úr Neytenda-
blaðinu í öðrum fjölmiðlum, sé heimildar getið. Upplýsingar úr Neytendablaðinu er óheimilt að
nota í auglýsingum og við sölu, nema skriflegt leyfi ritstjóra liggi fyrir. Neytendablaðið er prentað á
umhverfisvænan pappír.
2
NEYTENDABLAÐIÐ - október 1998