Neytendablaðið - 01.10.1998, Qupperneq 4
í stuttu máli
Hafði ofnæmi fyrir dún
Kona hafði nýlega samband
við Neytendablaðið og vildi
nefna gott dæmi um við-
skipti sem hún átti við Sæng-
urfatagerðina, Baldursgötu.
... Norræna umhverfis-
merkið, Svanurinn, er
sameiginlegt umhverfis-
merki Norðurlandanna.
Merkið er notað á ýmsar
vörur sem uppfylla skil-
yrði um að mengun við
framleiðslu, notkun og
eyðingu þeirra sé tak-
mörkuð. Merkið nýtist því
neytendum til að auðvelda
kaup á vörum sem skaða
síður umhverfið en aðrar
sambærilegar vörur.
Vörur með Svaninum
eru til dæmis pappírsvör-
ur, ljósritunarvélar, raf-
hlöður, þvottaefni, gólf-
efni, innréttingar, skrif-
færi, hreinsiefni og lím. A
öðrum Norðurlöndum eru
fjölmargar prentsmiðjur
komnar með Svaninn, en
enn bíðum við eftir fyrstu
íslensku prentsmiðjunni.
Áhugasömum prent-
smiðjueigendum er bent á
að hafa samband við Holl-
ustuvernd rikisins sem
hefur umsjón með Svan-
inum hér á landi.
Aðeins ein íslensk vara
er komin er með Svaninn,
Maraþon milt þvottaefni
frá Frigg.
Nýlega gifti sonur hennar sig
í Finnlandi og ákváðu for-
eldrar hans að gefa hjónun-
um dúnsængur í brúðkaups-
gjöf, en eins og við vitum
kosta slíkir gripir talsvert fé.
Ekki vildi þó betur til þegar
brúðhjónin opnuðu gjöfina
en að brúðurin reyndist vera
með ofnæmi fyrir dúni og
eftir að hafa prófað aðra
sængina fékk hún útbrot. Nú
voru góð ráð dýr, því nú sátu
þau uppi með ónothæfar
dúnsængur, en þó engan
veginn gallaðar. Konan
ákvað því að hafa samband
við Sængurfatagerðina þegar
heim var komið og leita
ráða, til dæmis hvort versl-
unin gæti selt sængurnar fyr-
ir þau aftur. En málið leystist
farsællega, því verslunareig-
andinn bauðst þegar í stað til
að endurgreiða sængurnar og
þar með var vandi brúðhjón-
anna úr sögunni. Að
móðurinnar mættu fleiri taka
sér þessa þjónustu til fyrir-
myndar.
Plastumbúðir
Á plastumbúðum eru ýmsar
merkingar, til dæmis marg- -
víslegar skammstafanir og
endurvinnsluþríhyrningurinn
með númeri í miðjunni er
mismunandi. En hvað þýða
þessar merkingar og hvers-
konar plast skaðar umhverfið
minnst?
APET, Polyethylen
terephthalat
Er til dæmis notað í textfi-
þræði, gosdrykkjaflöskur,
steikarpoka og bakka í ör-
bylgjuofna.
APE, Polyethylen
Algengasta plastefnið
í umbúðum. Meðal
annars notað í poka, flöskur
undir ávaxtasafa, sjampó og
hreingerningavörur og einnig
í pökkunarfilmur til heimilis-
nota. Er stundum merkt
HDPE eða LDPE (High /
Low Density).
'03'
PVC, Polyvinyl-
klóríð
Er í mörgum fram-
leiðsluvörum, svo sem
plástri, leikföngum,
garðslöngum, regnfatnaði og
plastfilmum til pökkunar.
Getur einnig verið merkt
vinyl (V).
PP, Polypropylen
Er meðal annars
notað í bílahluta,
reipi, gólfteppi, og í litlum
mæli í matvöruumbúðir fyrir
marmelaði og sfld.
PS, Polystyren
q^\ Er notað í fiát fyrir
mjólkurafurðir (jó-
gúrt, skyr), einnota drykkjar-
fiát og annan einnota borð-
búnað.
Hvað með umhverfið?
Við brennslu á öllum plast-
vörum myndast efni (C02,
koltvísýringur) sem hefur
skaðleg áhrif á ósonlagið.
Fyrir umhverfið eru vörur úr
polyethylen og polypropylen
ákjósanlegri en úr öðru
plasti. Framleiðsla á PS
(polystyren) krefst töluvert
meiri orku en framleiðsla
annarra plasttegunda. PVC
(PolyVinilClorid) skaðar
umhverfið bæði við fram-
leiðslu og brennslu. Það er
því ástæða til þess að kaupa
ekki PVC-vörur þegar hægt
er að komast hjá því.
4
Lesendur
spyrja
Má ekki þvo skyrtuna
mína
Ég keypti nýlega skyrtu sem er
úr ull og viskos. Því miður tók
ég ekki eftir því fyrr en ég var
farin að nota skyrtuna að það
má ekki þvo hana, aðeins setja
hana í hreinsun.
Þegar til lengri tíma er litið
verður hún orðin ansi dýr í
notkun. Er ekki óhætt að þvo
hana varlega í höndunum?
Svar Neytendablaðsins: Ef þú
þværð skyrtuna og hún
skemmist þá getur þú ekki far-
ið til seljandans og krafist bóta.
Það geta verið fleiri ástæður
fyrir þessari merkingu á flík-
inni, - ef hún er marglit getur
hún látið lit, ef hún er úr fleiri
en einni tegund af efni gætu
þau hlaupið mismikið. Margar
flíkur úr ull og viskos eru með
þvottamerki og það getur verið
að skyrtan þín sé undirmerkt.
Um þetta er ekki hægt að full-
yrða, en ef þú þværð hana og
allt fer á versta veg þá ertu
búin að fyrirgera rétti þínum til
bóta.
Hvernig á að geyma
dúnsvefnpokann?
Ég á nýjan, vandaðan dún-
svefnpoka sem hefur komið í
góðar þarfir á ferðalögum í
sumar. Nú eru ekki fleiri úti-
legur á dagskrá og þá er spum-
ingin: Hvernig er best að
geyma hann í vetur?
Svar Ncytcndablaðsins: Best
er að hengja hann upp, til
dæmis á herðatré inni í skáp
eða í geymslunni. Ef slíkt pláss
er ekki til er best að leggja
hann lauslega saman. Það er
sem sagt ekki gott að geyma
pokann mánuðum saman þétt
samanbrotinn í hlífðarpokan-
um.
NEYTENDABLAÐIÐ - október 1998