Neytendablaðið - 01.10.1998, Qupperneq 10
Markaðs- og gæðakönnun
Hárblásarar og krullujárn
Hárblásarar og sérstaklega krullujárn
geta mörg hver auðveldlega skað-
að hár og húð með of miklum hita. Notið
þau helst aldrei á hæstu stillingu.
Fátt jafnast á við höfuðhárið ef litið er
til þess hve margar vörur eru boðnar
neytendum til meðferðar á því. Og mikil
er fjölbreytni hárblásara og krullujárna.
International Testing (IT) gerði könnun á
72 hárblásurum og reyndust 18 þeirra á
markaði hér haustið 1998 en um 70 aðr-
ar gerðir voru til sölu í íslenskum versl-
unum. IT kannaði líka 20 krullujárn og
voru 8 þeirra til sölu hér en auk þess um
40 járn sem ekki voru í könnuninni.
Hárblásarar (hárþurrkur) eru víðast
um heim mest seldu tækin í flokki þeirra
sem ætlað er að sinna líkamanum. Á
síðustu árum hefur fjölbreytni fylgihluta
með þeim stóraukist og hönnunin
breyst. Flestir af hárblásurunum (95%)
eru hefðbundnir og miðaðir við að gefa
hárinu fyllingu, með eða án dreifara eða
svipaðs búnaðar. Krullujárn hafa um 3%
markaðshlutdeild af raftækjum til líkams-
aðhlynningar.
Auk tækniprófana sérfræðinga á til-
raunastofum IT voru tæplega 100 konur
fengnar til að reyna tækin um nokkurra
vikna og upp í þriggja mánaða skeið.
Notuðu tólf konur hverja tækjagerð og
mátu þægindi í notkun, meðfærileika,
stýribúnað, notkun fylgihluta, hugsan-
lega galla fyrir örvhenta, hávaða, titring,
þurrktíma, hita og ýmis vandamál. Hár-
snyrtimenntað fólk gaf umsögn um fylgi-
hluti. Konurnar töldu alla blásarana og
fylgihluti þeirra í könnuninni viðunandi
en krullujárnin varasöm.
Hárblá sarar
Vöru- merki Gerð Innflytjandi Seljandi Verð Vött (W) Þyngd (g) Lengd rafsnúru (cm) Fjöldi stillinga Helstu fylgihlutir Aðrir eiginleikar
Aðs Hiti kildar Hraði
Sameinaðar hiti + hraði
Braun Supervolume twist PX 1200 SLV 3; (4583) Elko Elko 2.995 1200 327 167 2 A B ceg
Pfaff Pfaff 1.620
Braun Silencio professional diffusor PX 1200 DFB 3; (4583) Pfaff Bvqqt oq búið 1.690 1200 325 167 2 A* B c e
Pfaff Pfaff 1.790
Braun Silencio PX 1200; (4583) Elko Elko 1.495 1200 325 167 2 B c e
Pfaff Hagkaup 1.749
Braun Supervolume twist PF 1600 SVB4; (4601) Elko Elko 4.495 1600 430 172 4 A B cd* eg
Pfaff Pfaff 3.995
Braun Silencio 1600 PX 1600; (3509) Pfaff Hagkaup 2.595 1600 387 175 3 B c e
Pfaff Byggt & búið 2.580
Pfaff Pfaff 2.580
Moulinex Infrasoft 1000; (L73) I. Guðmundsson Rafvörur 1.873 1000 350 185 2 c e
Moulinex Infrasoft 1600; (L 76) (L 77 á umbúðum) I. Guðmundsson Rafvörur 3.055 1600 480 174 3 A c e
Philips Salon classic HP4395 Heimilistæki Hagkaup 3.990 1600 577 199 3 2 A* a c d* e
Heimilistæki Samkaup 4.250
Heimilistæki Radíónaust, Ak. 4.090
Heimilistæki Heimilistæki 4.490
Heimilistæki Byggt & búið 4.490
Heimilistæki Glóey 4.290
Philips Active HP 4362/FL Heimilistæki Samkaup 2.490 1650 345 170 3 2 c e
Heimilistæki Heimilistæki 2.490
Heimilistæki Byggt & búið 2.590
Philips Silence HP 4349/ND Heimilistæki Hagkaup 1.295 1000 261 136 2 c
Heimilistæki Samkaup 1.490
Heimilistæki Heimilistæki 1.490
Heimilistæki Radíónaust, Ak. 1.590
Heimilistæki Heimskringlan 1.590
Elko Elko 1.295
Remington Compact Turbo; D 2200 I. Guðmundsson 1400 355 178 2 c e
Remington Volumiser Max; D 2450 I. Guðmundsson 1650 453 178 3 2 C a c e
Severin New Line 1600; HT6444 Einar Farestveit Einar Farestveit 2.390 1600 411 163 3 2 A a c d* e
Siemens E-Nr. MH 39101/01; HM 16 Smith & Norl. Smith & Norl. 2.950 1600 442 172 3 2 A* a c d* e
Ufesa Top Line 1600; SC-8448 Rafha Samkaup 1.990 1600 380 173 2 A* a c e
Rafha Rafha 1.990
Rafha Rönning 2.280
Ufesa Top Line 1800; MSC-8450 Rafha Rafsól 2.970 1800 579 177 3 2 A* a c d* e
Rafha Radíónaust, Ak. 2.590
Rafha Rafha 2.590
Ufesa AirCool 1200: AF-1200 Rafha Samkaup 990 1000 306 175 2 a c
Rafha Rafha 990
Rafha Rafsól 1.250
Ufesa Top Line 1200; SC-8447 Rafha Radíónaust, Ak. 1.390 1200 318 175 2 : b c
Rafha Rafha 1.390
Hárblásarar
Bestu blásararnir
Þeir tveir hárblásarar sem fengu hæsta ein-
kunn í könnun IT eru ekki seldir í okkar
heimshluta. Braun Sensation CPS 1800
þótti bestur en sambærileg gerð er Braun
Sensation PRSC 1800 sem Pfaff hefur flutt
inn. Rowenta Protect 1600 PH 295 varð í
öðru sæti. Hann er léttur og mælt með hon-
um fyrir notendur sem ferðast mikið. Húsa-
smiðjan hefur flutt inn Rowenta-blásara.
Góð kaup þóttu í fimm blásurum sem
fást hérlendis: Braun Silencio PX 1600 er
mest seldur Braun-blásara hér, þykir auð-
veldur í notkun og hefur „power flower“-
dreifara. Remington Compact Turbo D
2200 þykir auðveldur í notkun, þurrka hár
hratt og vera ólíklegri til að skemma hár en
margar aðrar gerðir. Góð kaup eru í honum
þ>ótt ekki fylgi dreifari. Remington Volu-
miser Max D 2450 stóð sig vel í prófunum,
honum fylgir dreifari (með löngum tindum)
og hann er með fjölbreyttar stillingar. Aðrir
sem komu vel út voru Philips Active HP
4362/FL og Ufesa Top Line 1600, SC-
8448.
Til athugunar fyrir kaup
Oft reyna framleiðendur að gefa í skyn í
nafngiftum blásara með orðum eins og pro-
fessional, salon, hairdresser og coijfeur, að
tækin séu á borð við þau sem notuð eru á
hárgreiðslustofum og í atvinnumennsku.
Þetta er lítils virði og villandi því fagfólk
notar aflmeiri, stærri og þyngri blásara.
Vegna þess hvað hárblásarar eru háværir
er líka reynt að höfða til kaupenda með vill-
andi nöfnum sem tengjast þögn eins og
„silencio". Allir hárblásarar gefa frá sér
mikið og óþægilegt hljóð en þeir allra há-
væmstu í könnun IT em ekki seldir hér.
Yfirleitt er auðveldara að nota léttan hár-
blásara en þungan en það fer þó eftir hönn-
uninni. Fylgihlutir eins og dreifarar sem
þyngja framendann hafa áhrif á jafnvægið.
Skýringar með töflu
A = Dreifari með lokuðum tindum
A* = Dreifari með loftgötum í tindum
B = Power-flower-dreifari
C = Með „heitri hönd"
(ath.: allar gerðir hafa miðjara)
a = Kæliblástur
a* = Mýktarstilling
b = Mismunandi voltatala
c = Upphengikrókur
d = Hægtað losa afturgrind
d* = Hægt að losa afturgrind með síu
e = Stöm rennslisvörn á hliðum
g = Dreifari með stillanlegum snúningi
Léttasti blásarinn var 325 g en sá stærsti
þrisvar sinnum þyngri. Ráðlagt er fyrir
kaup að vega blásara í hendi sér með auka-
búnaði og hreyfa hann eins og í raunvem-
legri notkun. Þannig er hægt að koma í veg
fyrir óþægilegar uppgötvanir síðarmeir.
Afl hárblásaranna var á bilinu 1000-
1800 vött (W). Eftir því sem talan er hærri
geta blásturinn og sömuleiðis lofthiti og yf-
irborðshiti blásarans orðið meiri. Hins veg-
ar er hátt hitastig ekki alltaf til bóta og getur
verið varasamt hárinu. Til að þurrka og
forma hár hæfdega hratt og vel duga
1000-1200 vött, en þetta fer eftir þykkt,
sídd og gerð hársins.
Stundum em bara tvær stillingar á blás-
umm, annars vegar fyrir heitara loft og
meiri blástur og hins vegar lægri lofthita og
minni blástur. Æskilegra er að aðskildar
stillingar séu fyrir hita og blástur eins og
ofitast er raunin.
Fyrir notendur sem ferðast oft til útlanda
getur verið skynsamlegt að kaupa tæki sem
nota jafnt 220-240 volta spennu og 50 rið
(Hz), eins og hérlendis, eða 110-120 volt
og 60 rið sem víða tíðkast erlendis. Saman-
fellanlegt handfang á blásurum kemur sér
líka vel á ferðalögum. Yflrleitt em tæki
með þennan möguleika lítil.
Til vemlegra þæginda er að blásarinn sé
með krók eða lykkju til að geta hengt hann
upp og sömuleiðis að á annarri eða báðum
hliðum séu stamir hlutar eða pjötlur sem
hindra að hann renni til á borði. Það er líka
til bóta ef hægt er að ljarlægja grindina við
Ioftinntakið aftan á blásaranum og skipta
þar um síu. Ef líklegt er að löng snúra sé
nauðsynleg skal athuga að lengdin á raf-
snúmm blásaranna er breytileg og á bilinu
1,5-3 metrar.
Örvhentum þótti óþægilegt að handleika
suma blásaranna og verst gekk þeim að
nota stillingar á Philips Salon classic HP
4395, Carmen Elite 5117 1800 Professional
og Vidal Sassoon Salon Professional
VS-481. Betra er fyrir örvhenta að stamar
pjötlur séu á báðum hliðum blásarans.
Fylgihlutir
Dreifari (diffusor) fylgdi þriðjungi blásar-
anna. Hann er með tindum og dreifir loft-
straumnum. Hentug gerð dreifara fer eftir
tegund hárs en hann er sérstaklega nytsam-
ur fyrir hrokkið (kmllað) eða liðað hár.
Dreifarar með stutta tinda em sérstaklega
fyrir þurrt, hrokkið hár en dreifarar með
langa tinda (mótarar) em fyrir alls konar
hár. Þykkt hár þornar fyrr ef tindamir em
langir. Sumir dreifarar em með nuddbúnað
11