Neytendablaðið - 01.10.1998, Qupperneq 16
Fatnaður
Flísfötin henta
íslenskri
veðráttu einkar
vel - en rétt er
að gæta
sérstakrar
varúðar við
opinn eld.
Flísfatnaður hentar
vel í íslenskri veðráttu
að er nauðsynlegt á ís-
landi að eiga hlýjan fatn-
að. Ullin hefur löngum reynst
okkur best, en á síðari árum
hafa komið á markað ýmis ný
efni og er flís eitt þeirra. Mik-
ið úrval er hér á landi af flís-
fatnaði, bæði frá erlendum og
innlendum framleiðendum.
Flísfatnaður er vinsæll til allr-
ar útivistar í kulda og hentar
vel á íslandi, þar sem allra
veðra er von, sem yfirhöfn
eða undir vatns- og vindþétt-
um yfirhöfnum.
Enska orðið fleece þýðir
gæra, en efnið á þó ekkert
skylt við ull. Flísefnið er
framleitt úr polýesteri, stund-
um blandað með bómull, og
er yfirborðið kembt svo það
verður bæði mjúkt og þétt.
Sumir sem framleiða úr efn-
inu kalla það öðrum nöfnum,
svo sem capilene og polartec.
Allt að 85% af flísflík er úr
endurunnum vörum, það er að
segja sundurskornum og
bræddum plastflöskum. Flís-
efni er einnig hægt að bræða
og endurvinna.
Flísefnið er hlýtt, mjúkt og
sterkt, það þornar fyrr en ull,
er léttara og ,andar‘ betur.
Gæði flísefna er mismunandi,
sama er að segja um verðið.
Þykkt eða þunnt?
Flísefni eru mismunandi
þykk. Það finnur maður auð-
veldlega með snertingu, en á
merkimiðanum er líka oftast
gefið upp númer sem segir til
um þyngd efnisins. Mjög
þunnt flís sem notað er í und-
irföt er einnig kallað míkró-
flís. Hægt er að fá jakka og
treyjur sem hafa flís aðeins í
ytrabyrði, aðrar flíkur eru eins
á réttunni og röngunni, þannig
að hægt er að snúa flíkinni.
Við framleiðslu efnisins eru
teygjuþræðir (,,stretch“)
stundum settir með í efnið.
Þótt ilístreyja sé hlý er hún
hvorki vatns- né vindþétt, og
því ekki ákjósanleg sem yfir-
höfn í rigningu og roki.
Því þykkara, þvíhlýrra
Þumalfíngursreglan er að því
þykkara sem flísið er, því
hlýrra er það. Þó er flístreyja
með 2% teflon ekki eins hlý
og án teflons, en á móti kem-
ur að hún þolir meiri vætu
áður en hún verður gegnblaut.
Flísefnið heldur þéttleika vel
eftir þvott. Einn besti eigin-
leiki flísefnisins er hve auð-
veldlega það hleypir raka frá
líkamanum í gegnum sig,
langt fram yfir það sem ullin
gerir. Aftur á móti er gallinn
sá að það er ekki vindþétt.
Heldursérvel
Níu flísjakkar (treyjur) í dýr-
ari kantinum sem hollenska
neytendablaðið „Consum-
entengids“ gæðaprófaði héldu
sér vel eftir endurtekna
þvotta. Það var ekki fyrr en
eftir harkalega meðferð sem
prjónið undir kembunni kom í
ljós á nokkrum tegundunum.
Með öðrum orðum geta flík-
urnar enst árum saman og þær
hnökra ekki áberandi mikið.
Eldfimt efni
Polýester er eldfimt efni og
flís er jafnvel enn eldfimara.
Sérstaka aðgát þarf að sýna
nærri opnum eldi, svo sem
gasloga, kertum og báli, sé
maður klæddur flísflík, og
fara varlega með tóbak. I
rannsókn hollenska blaðsins
kom í ljós að flísflík logaði
glatt á aðeins fimm sekúndum
við opinn eld. Aðvörun um
hve efnið er eldfimt ætti því
að vera á merkimiða á flík-
inni, en það reyndist aðeins
vera á tveimur tegundum af
níu.
Viðkvæmur þvottur
Flísjakkarnir (-treyjurnar) níu
voru allir merktir með þvotta-
merki fyrir viðkvæman þvott í
30° eða 40° hita og nokkrir
voru merktir með handþvotta-
merki. Allir þoldu þeir þó
þvott í þvottavél við 40° hita.
Enginn krumpaðist að ráði og
aðeins einn lét lítillega á sjá
eftir þvottinn.
Flísflíkur má þurrka í
þurrkara við lágt hitastig, en
þær þola ekki hreinsun eða
bleikingu. Við þvott á flís-
fatnaði á ekki að nota mýk-
ingarefni í skolvatnið.
16
NEYTENDABLAÐIÐ - október 1998