Neytendablaðið - 01.10.1998, Blaðsíða 17
Gæðakönnun
Vatnsþétt úr eru
ekki alltaf vatnsþétt
Gott vatnsþétt úr er dýrt og rétt er að
ráðfæra sig við úrsmið áður en slíkt
úr er keypt. í greininni hér á eftir er
stuðst við grein í danska neytendablaðinu
„Tænk“ og upplýsingar frá Jóni Bjarna-
syni úrsmið.
Mismunandi merkingar eru á vatnsvörð-
um úrum, svo sem „Water resistant",
„Water resist“ eða „Waterproof‘. Ætla
mætti að slíkar merkingar þýddu að úrið
þoli notkun í vatni, en sú er ekki alltaf
raunin. Ýmsir staðlar eru til fyrir vatns-
þétt úr (DIN- og ISO-staðlar), en ekki er
til nein alþjóðleg eftirlitsstofnun sem
tryggir að úr standist staðlana, enda geta
framleiðendur úra nánast sett hvaða upp-
lýsingar sem þeir kjósa aftan á úrin. Mik-
ið er framleitt af lélegum úrum, sérstak-
lega í sumum Asíulöndum, sem ekki eru
vatnsþétt eða eru það aðeins í nokkra
mánuði.
Hvernig er hœgt aðfullvissa sig um
að úr sé vatnsþétt?
Þetta er hægt að gera í fyrsta lagi með
því að velja vörur frá þekktum framleið-
endum, til dæmis Rolex, Omega, Tissot,
Certina eða Eterna. Þessi fyrirtæki
ábyrgjast að úrkassinn uppfylli alþjóða-
lega staðla hvað þéttleika varðar, enda er
orðstír fyrirtækjanna í húfi. I öðru lagi
með því að biðja úrsmið að kanna úrið í
sérstöku þrýstiprófunartæki. Úrsmiður
getur einnig opnað úrið til að athuga
hvort kassinn er af þeim gæðum sem til
þarf til að tryggja þéttleikann.
Hve mikið þola
vatnsétt úr?
Vatnsþéttileikinn er mældur í gráðum og
á mörgum úrum stendur að þau séu þétt
að þremur eða tíu börum. Þrjú bör sam-
svara um 30 metra vatnsdýpt og tíu bör
allt að 100 metra dýpt. I rauninni skiptir
það ekki máli hvort úr er þétt að 30 eða
100 metra dýpi, því ólíklegt er að nokkur
fari með venjulegt úr niður á 100 metra
dýpi. Tölurnar segja þó nokkuð til um
hve traustur úrkassinn er. Sé úrið merkt
10 bör er víst að glerið er vel sterkt og
króna (stillihnappar) vönduð. Þetta getur
haft mikla þýðingu við daglega notkun,
því oft verða úr fyrir ýmsum ákomum og
höggum. Því ábyrgjast mörg fyrirtæki
ekki að úr merkt lægra en tíu bör þoli að
farið sé með það í bað.
Það er þó hægt að fá mjög góð úr sem
merkt eru þrjú bör, sérstaklega ef krónan
er felld í úrkassann, en þá er minni hætta
á að hún skekkist við til dæmis högg.
Odýrum úrum í úrkössum úr ýmsum
gerviefnum, svo sem plasti, með mörg-
um tökkum og hnöppum, er oft erfitt að
halda þéttum því takkarnir slíta þétting-
unum. Á vandaðri úrum er hægt að losa
hnappana til að hreinsa þá og skipta um
þéttingar.
Dögg innan á gleri
Til að úr geti verið vatnsþétt verður það
einnig að vera loftþétt. I öllum úrum er
örlítil vatnsgufa, en magnið er það lítið
að við venjulegan stofuhita nægir það
ekki til að mynda sýnilega dögg. Frjósi
úrið kristallast vatnið í úrinu og sést þá
eins og dauf móða á glerinu , en hún
hverfur jafnskjótt og úrið hitnar aftur.
Vatnið í úrinu getur aukist ef það er
30-37 gráðu heitt við eðlilegar kringum-
stæður á handlegg og er dýft í kalt vatn.
Þá dregst loftið inni í úrinu saman og ör-
lítill undirþrýstingur myndast. Ef örlítil
sprunga er í gleri eða ef úrið er að öðru
leyti óþétt þá sogast nokkur míkrógrömm
af vatni inn í úrið. Þegar úrið hitnar aftur
verður vatnið að gufu. Sé þessi meðferð
síendurtekin verður rakinn í úrinu það
rnikill að í kulda sést dögg innan á gler-
inu. Það er því mjög slæm meðferð á úri
að kæla það ítrekað í vatni, til dæmis við
bílþvott. Það er ekki eins slæmt fyrir úrið
að þvo upp með því í volgu vatni eða
fara með það í bað, mikill hitamunur er
verstur.
Rafhlöðuskipti
Til að tryggja að úr sé vatnsþétt er hægt
að láta úrsmið athuga það þegar skipta
þarf um rafhlöðu. Þá er einnig hægt að
athuga þéttingar og smyrja úrið. Þétting-
ar í krónunni og úrkassanum þarf að
smyrja með nýrri silikonfitu. Margir úr-
smiðir eru með sérstök þrýstiprófunar-
tæki til að athuga hvort úrið er loftþétt og
þar með vatnsþétt, og tekur aðeins
Góð úr eiga að þola þetta, en ráðlegast
er að taka gripinn af sér nema maður
treysti framleiðandanum þeim mun
betur.
nokkrar mínútur að athuga slíkt. Sjáist
dögg á úri á alltaf að fara með það til úr-
smiðs eins fljótt og auðið er, því mikil
hætta er á að stál ryðgi og rafræn sam-
bönd raskist.
Góð dagleg meðferð nauðsynleg
Það á við um öll úr að ekki er sama
hvernig farið er með þau. Það skiptir
máli við hvað notandi úrsins vinnur og
hvernig meðhöndlun það fær. Mörg þétt
úr eru efnismikil og þung, vilja renna
fram á úlnliðinn og verða því oft fyrir
ýmsum ákomum. Ýmis leysiefni (t.d.
þynnir og aseton) geta skemmt þéttingar
í úrum. Þess vegna er skynsamlegt að
ráðfæra sig við úrsmið og fá upplýsingar
um eiginleika úrsins og meðhöndlun
þannig að gæði úrsins séu í samræmi við
það umhverfi sem bíður þess hjá kaup-
andanum.
NEYTENDABLAÐIÐ - október 1998
17