Neytendablaðið - 01.10.1998, Side 18
Ymis merki
Merkjafrumskógur
Leiðarvísir um tákn
og merki á neytendavörum
Það færist stöðugt í aukana að á vöru eða vöruumbúðum séu tákn og merki til að veita neytendum ákveðnar
upplýsingar um eðli og eiginlega vörunnar. Þetta hefur augljósa kosti þar sem tákn og merki geta komið í stað
skrifaðs texta á mörgum tungumálum. En til að tryggja að slík tákn og merki komi að notum er nauðsynlegt að
neytendur kunni skil á þýðingu þeirra.
Það yfirlit sem hér fer á eftir er unnið af markaðsgæsludeild Löggildingarstofu í samráði við samráðshóp um
öryggis- og staðlamál. í hópnum eiga sæti eftirtaldir aðilar: Neytendasamtökin, Hollustuvernd, Samkeppnisstofnun,
Staðlaráð Islands, Umferðarráð, Lyfjanefnd, Vinnueftirlit ríkisins, viðskiptaráðuneytið og Löggildingarstofa.
Merkið táknar að framleiðandi lýsi því
yfir að vara uppfylli þær kröfur um
heilsu, öryggi og umhverfi sem gerðar
eru til viðkomandi vöru á EES-svæðinu.
ÉLykilmerkið (The KEY-MARK)
Nýtt merki sem á að sjást á vörum sem
uppfylla kröfur samkvæmt Evrópustöðl-
um.
Öryggispúði
Merkið sýnir að uppblásanlegur öryggispúði
er við framsæti fyrir farþega Það á að vera á
sýnilegum stað ásamt þessum texta:
Hætta! Notið ekki barnabílstól í sæti ef upp-
blásanlegur öryggispúði er framan við það.
Á ekki við um sæti sem hefur búnað sem
hindrarað púði geti blásist upp á meðan
barnabílstóllinn er í sætinu.
Merkið sýnir að vara uppfyllir kröfur á
EES-svæðinu um nettóþyngd. Forpökk-
uð vara er pökkuð án þess að kaupandi
sé viðstaddur.
Varúðarmerking á leikföngum. Táknar
að leikfang sé ekki við hæfi barna yngri
en 3 ára.
Woolmark. Ullarmerki. Vara inniheldur
95% hreina ull. Uppfyllir einnig lág-
markskröfur um litfestu, þvottaeiginleika
o.s.frv.
Woolblend. Ullarblanda. Vara inniheldur
a.m.k. 60% hreina ull. Uppfyllir að öðru
leyti sömu kröfur og Woolmark.
Vara sem ætluð er undir matvæli skal
auðkennd með áletrun eða viðkomandi
tákni.
Panda-merkið
Hefur einungis þá þýðingu að fram-
leiðandi vöru styrkir WWF-samtökin
(alþjóðleg dýraverndunarsamtök)
Varúðarþríhyrningur
Merking á öllum lyfjum sem skert geta
hæfni manna til aksturs bifreiða og/eða
stjórnunar annarra véla.
Merkið sýnir að útbúnaður tengdur bifreiðum
og öðrum faratækjum (t.d. barnabílstólar og
Ijósker) uppfylla samræmdar evrópskar
öryggiskröfur (ECE-reg. nr. 4403). Útbúnaður
sem framleiddur er í samræmi við bandaríska
staðla (FMVSS) og kanadíska staðla (CMVSS)
telst einnig uppfylla öryggiskröfur. Tölustafir
inn í hring vísar framleiðslulands vöru. Dæmi:
18 = Danmörk.
Orka Þvottavél
Framleiðandi
Gerð
Góð nýtni
Slæm nýtni
Orkunotkun í kWh/ lotu
(Byggt á stöðluðum prófunarniðurstöðum
þvottalotu fyrir baðmull við hitan 60°C)
Raunnotkun fer eftir því hvemig tœkið
er notað.
Þvottahæfni
A: meiri G: minni
Þeytivinduafköst
A: meiri G: minni
Snúningshraði vindu (snún. á mín)
Afköst (baömull) kg
Vatnsnotkun
Hávaði Þvottur
(dB(A) re 1 pW) Þeytivinding
Nánarí upplýsingar eru að finna í
bæklingum sem fylgja vörunni.
| Staðall EN 60456 Tilskipun
2 95/12/EB um merkingar þvottavóla
Orkumerking.
Skylt er að
merkja kælitæki,
þvottavélar,
þurrkara og
bakaraofna með
upplýsingum um
orkunotkun og
orkunýtni.
Orkunýtingar-
merki auðvelda
neytendum að
bera saman
orkunýtingu
ratmagns-
tækja.
18
NEYTENDABLAÐIÐ - október 1998