Neytendablaðið - 01.10.1998, Síða 21
Markaðs- og gæðakönnun
Heimabíóið og hátalararnir
Hátalarar fyrir heimabíó
komu yfirleitt vel út í
nýrri gæðakönnun Inter-
national Testing. Kerfín skila
kvikmyndahljóðum ágætlega
en henta ekki sérstaklega vel
fyrir tónlist.
Hvað er heimabíó?
Heimabíó er tækjabúnaður til
að gera notkun sjónvarps,
myndbanda og mynddiska
álíka raunsæiskennda og
magnaða og heimsókn í kvik-
myndahús. Reynt er að ná
sem mestum mynd- og hljóm-
gæðum og sérhæfð tæki til
þessa hafa náð miklum vin-
sældum. Hátalaramir eru oft-
ast fímm eða sex, ólíkir að
gerð, enda flytja þeir 4-6 mis-
munandi hljóðrásir.
Heimabíó sem stendur
undir nafni er samsett af há-
gæðamyndbandstæki og sjón-
varpstæki, hvort tveggja með
víðómi (stereo), sérstökum
magnara og greiningarbúnaði.
Oft er líka í búnaðinum spilari
fyrir stóra myndgeisladiska
(Laserdisc) eða hina smærri
og nýrri gerð þeirra, DVD.
Sjónvarpsskjárinn á helst að
vera a.m.k. 27 tommur. Sumir
heimta breiðskjá í hlutföllun-
um 16:9 (venjulegur sjón-
varpsskjár er 4:3) en einnig
nota sumir myndvarpa sem
annað hvort kasta myndinni
aftan á skjá, 45-80 tommur
að stærð, eða með linsum á
tjald eða vegg og getur hún
náð 300 tommum.
Hægt er fá hljóðkerfi fyrir
heimabíó á verðbilinu um
20-200 þús. kr. Tæki sem
kosta um 50 þús. kr. eru talin
„viðunandi" og á 70-100 þús.
kr. „góð“. Dýrustu kerfín geta
kostað 300-400 þús. kr. og er
þá sjónvarpstækið ekki inni-
falið. Þar við bætist að margir
innrétta það herbergi sem
hýsir „bíóið“ sérstaklega með
tilliti til hljómburðar.
Ekki þarf þó endilega að
kaupa nýjan búnað frá grunni.
Auðvelt er að breyta nær öll-
um venjulegum víðómshljóm-
kerfum heimila í heimabíó-
kerfí með því að kaupa til
viðbótar sérstaka hátalara.
Víða er einmitt hægt að kaupa
sett með tveimur bakhátölur-
um og miðjuhátalara í þessum
tilgangi. Kaupa þarf líka
greinara (decoder), magnara
eða viðtæki með þeim búnaði.
Miða skal öll innkaup við nú-
verandi tækjaeign og líklegar
viðbætur í framtíðinni. Eigi
að spara er Dolby Surround
góður kostur. Dolby Pro Log-
ic skilar hins vegar betri
hljómi og dreifíngu og þarf
ekki að kosta mikið meira.
Leitið aðstoðar sérfræðinga ef
þið ætlið að setja upp dýrt
gæðakerfí.
Niðurstöður IT
Mestallur búnaður sem
kenndur er við heimabíó á
markaðnum kom ágætlega út
í tækni- og hlustunarprófum á
vegum Intemational Testing.
Að vísu var hljómurinn oft lít-
ill og kraftlaus en umhverfis-
hljóðaáhrifin ótvíræð. Yfír-
leitt batnaði útkoman stórlega
ef bassahátalari var í settinu.
Kenwood XI THX heima-
bíókerfíð fékk hæstu einkunn
í könnuninni en reyndist líka
það dýrasta er yfirleitt ekki
fyrirliggjandi hjá seljendum
heldur þarf að sérpanta það.
JBL ESC 300-kerfi skilaði
besta hljómnum. Greinir (Pro
Logic Decoder) og magnari
eru innbyggðir, hátalaramir
mjög litlir og kerfíð því hið
meðfærilegasta og sveigjan-
legasta.
Góð kaup þykja vera í
KEF-settum og Jamo-tæki
þóttu skila víðómi sérlega vel
og framhátalarar þeirra vera
kraftmiklir. Einnig þóttu góð
kaup í Nubert NuSet 3930,
Magnat Vector Cinema 11,
Solid og MB Quart Theater
System C-Line.
Mikil íjölbreytni er í
heimabíókerfum og fæst
þeirra sem vom í könnun IT
em hér á markaði. I sérstök-
um töflum er greint frá ýms-
NEYTENDABLAÐIÐ - október 1998
21