Neytendablaðið - 01.11.2002, Blaðsíða 21
• • •
5. Dömubindi
Markaðurinn fyrir dömubindi
er stór og sífellt er fundið upp
á nýjungum. Nú síðast svört
dömubindi. Þegar hringt er í
framleiðendur og þeir spurðir
hvaða kemísku efni séu notuð
til litunar, er svarið að upplýs-
ingum um þau sé haldið
leyndum af samkeppnisástæð-
um. Framleiðendum ber ekki
skylda til gefa upp innihalds-
lýsingu á dömubindum þar
sem ekki er um snyrtivöru að
ræða. Neytendur hafa því
enga möguleika á að vita
hvaða kemísku efni eru notuð
í vöruna. Yfirvöld hafa heldur
enga yfirsýn og vita hvorki
hvaða efni um er að ræða né
hvaða áhrif þau hafa á heilsu
og umhverfi. Þó skal þess get-
ið á umbúðum ef dömubindi
innihalda lyktarefni, krem eða
annað sem flokkast undir
snyrtivörur.
I efnarannsókn á bindum
hefur fundist efnið kolofoni-
um, harpixefni sem verður til
við pappírsframleiðslu. Efnið
er einnig notað í málningu,
lakk og snyrtivörur og er á
lista danska Umhverfisráðsins
yfir óæskileg efni, m.a. vegna
ofnæmisvaldandi einkenna.
Efnið hefur fundist í litlum
mæli í dömubindum og hefur
því trúlega engin bein heilsu-
spillandi áhrif. En spurningin
er hvort nokkur ástæða sé til
að dömubindi innihaldi of-
næmisvaldandi efni.
6. Handklæði
Formaldehýð er hættulegt efni
sem bætt er í tauefni til að
koma í veg fyrir krumpur. Sjá
betur undir lið 1 um sængur-
föt í kaflanum um svefnher-
bergi.
7. Gólfdúkur, baðhengi
Fjölmargar plastvörur inni-
halda pvc (poly vinyl chlorid).
Pvc inniheldur klór sem er
mikið vandamál í sorpeyðing-
arferlinu. Þar fyrir utan er
margvíslegum umhverfis- og
heilsuspillandi efnum bætt út í
pvc, svo sem blýi, kadmíum
og þalötum. Pvc er að finna í
fjölmörgum framleiðsluvörum
á borð við gólfefni úr plasti,
leikföng, gúmmístígvél, regn-
Heimilið
föt, garðslöngur, baðbolta,
byggingarefni, umbúðir, bað-
hengi o.s.frv.
Til að gera plastið mjúkt er
svokölluðum þalötum bætt út í
pvc. Algengasta þalatið sem
notað er til mýkingar er
DEHP. Sumar tegundir þalata
eru taldar valda hormónarösk-
un og nokkrar tegundir
krabbameinsvaldandi. Rann-
sóknir benda einnig til að þalöt
séu ofnæmisvaldar.
Einnig hefur efnið TBT (tri-
butyltin) fundist í vörum úr
pvc. TBT er mjög umhverfis-
spillandi efni sem eitrar um-
hverfið og veldur skaða á
ónæmiskerfi og erfðavísum
hjá lifandi lífverum þótt notað
sé í litlum mæli. Þetta efni er
nú þegar útbreitt í lífríkinu.
Rannsóknir benda til þess að
efnið fínnist alls staðar í hinu
danska sjávarlífríki. TBT losn-
ar frá gólfdúkum og öðrum
pvc-vörum við slit, þvott og
rigningu.
I Danmörku er byrjað að
taka við vörum með pvc á
endurvinnslustöðvum svo
hægt sé að endurvinna efnið
eða urða á viðeigandi hátt. A
Islandi eru engar reglur til
varðandi endurvinnslu á pvc.
Hægt væri að komast hjá
umhverfis- og heilbrigðis-
vandamálum ef bannað yrði að
nota pvc. En iðnaðurinn berst
hart gegn þess háttar banni.
I Danmörku eru lögð gjöld
á vömr með pvc en þessi gjöld
eru ekki nægjanleg til að
hamla eða stöðva notkun þess-
ara vara.
RÁÐ
Kauptu ekki vörur með pvc -
leitaðu eftir vinyl, poly vinyl
chlorid eða þríhyrningi með
tölunni 3. Það þýðir að varan
inniheldur pvc.
Kauptu gúmmistígvél úr
náttúrulegu gúmmíi.
Kauptu ekki leikföng úr
mjúku plasti.
Forðastu pvc í fatnaði (t.d.
regnfötum og áþrykktum bol-
um).
NEYTENDABLAÐIÐ - nóvember 2002
® ICRT / Neytendablaðið 2002
21