Neytendablaðið - 01.06.2006, Qupperneq 4
Gæði og samfélagsleg ábyrgð
Góðurárangurísöluá íslenskum landbúnað-
arafurðum í Vesturheimi tengist oft mat-
vörukeöjunni Whole Foods Market. Að
íslenskt lambakjöt og skyr sé til sölu hjá
Whole Foods þykir mikilvæg viðurkenning
fyrir íslenskar landbúnaðarafurðir.
Fyrsta verslun Whole Foods var sett á lagg-
irnar í Austin, Texas árið 1980 og síðan
þá hafa um 180 verslanir verið opnaðar í
Norður-Ameríku og Bretlandi. Whole Foods
er ekki bara venjuleg matvöruverslun og
það er áhugavert að skoða hvaða ímynd
verslunin hefur náð að skapa sér. Whole
Foods sérhæfir sig í sölu á lífrænum og
umhverfisvænum gæðavörum og einkunn-
arorð þeirra er: Heilt fæði, heilar manneskjur
og heil pláneta. Matvörukeðjan hefurtil sölu
fjölbreytt úrval af matvöru, bæöi tilbúna
rétti, ferskar matvörur og nýlenduvörur
ásamt öðrum umhverfisvottuðum vörum til
heimilisnota.
Whole Foods kaupir inn ferskar gæðavörur
í litlu magni alls staðar að úr heiminum en
þó er sérstök áhersla lögð á að selja afurðir
smábænda og framleiðenda í nærsveitum
hverrar verslunar. Starfsmannastefna
Whole Foods er einstök að því leyti að
allir starfsmenn móta og fylgja stefnu
fyrirtækisins og eiga kost á að eignast hlut
í því. Árið 2005 setti viðskiptatímaritið
Forbes Whole Foods í 15. sæti af 100
meðal þeirra fyrirtækja í heiminum
sem koma best fram við starfsfólk sitt.
Heimabyggð nýtur alltaf góðs af nálægð
verslunarinnar þar sem Whole Foods kemur
oft að ýmsum góðgerðarmálum með
þátttöku starfsmanna. Um 5% hlutur af
öllum hagnaði matvörukeðjunnar rennur til
góðgerðarmála.
Whole Foods erekki lágvöruverösverslun en
verslunarkeðjan nýtur mikilla vinsælda og
greinilegt að umhverfisvænar gæðavörur
jafnt sem samfélagsleg ábyrgð fyrirtækis
skiptir neytendur máli.
Keðjur á undanhaldi
Verslanakeðjur á borð við Starbueks,
McDonald's, Gap, Wal-Mart og Dunkin-
'Donuts eru komnar á hvert götuhorn í
Bandaríkjunum og sú þróun hefur breiðst út
til Vesturlanda. En ekki fellur öllum það vel.
Til aðveita hugmyndinni að lagabreytingunni
brautargengi hrintu samtök sjálfstæðra
verslunareigenda af stað herferðinni „Versl-
aðu hér og peningarnir þínir verða eftir hér"
(Shop here and your money stays here).
San Francisco var fyrsta borgin i
Bandaríkjunum sem setti sérstaka löggjöf
til að stemma stigu við verslanakeðjum en
það var gert í mars 2004. Lögin gera íbúum
kleift að velja hversu mikið af keðjum má
vera í þeirra hverfi ef íbúarnir vilja þá á
annað borð leyfa slíkan rekstur. Fimm hverfi
hafa sett reglur sem takmarka fjölda keðjur
og eitt hverfi hefur bannað þær með öllu.
Andstæöingar laganna hafa bent á að lögin
séu andstæð amerískum gildum og voru
yfirvöld í borginni ekki hlynnt þeim í fyrstu.
Fylgismenn laganna bentu hins vegar á
að yfirgangur keðjanna kæmi í veg fyrir
fjölbreyttan verslunarrekstur auk þess sem
kannanir hafa sýnt að sjálfstæður rekstur
skilar meira fé til samfélagsins en rekstur
stóru keðjanna.
Fleiri borgir hafa innleitt löggjöfina enda
finnst mörgum sem stórar keðjur hafi of mikil
völd og það geti haft slæmar afleiðingar
fyrir neytendur ef smærri aðilar verða undir
í samkeppninni. Þá hafa rannsóknir sýnt að
sjálfstæðir verslunareigendur (locally owned
merchants) skila hlutfallslega meiru til
samfélagsins en stóru keðjurnar.
Hlutfall sjálfstæðra verslana í San
Francisco er óvenju hátt á bandarískan
mælikvaröa en þó eru 72 Starbucks-
staðir í borginni. I London eru 200
Starbucks-staðir sem er meiri fjöldi en
i New York.
Heimildir: New Consumer
Heilræði
Allir ættu að nota
hjólreiðahjálm
i+i
SLYSflVflRNfiFÉLfiGIÐ
LfiNDSBJÖRG
Munið eftir hjáiminum!
Á vorin þegar við tökum fram reið-
hjólin ermikilvægtað hugaaðöryggis-
búnaði. Rétt eins og við spennum á
okkur öryggisbeltið þegar við setj-
umst inn í bílinn eigum við að setja
hjálminn á höfuðið áður en lagt er af
stað í hjólreiðatúrinn.
Hjólreiðahjálmar eru gríðarlega mikil-
væg öryggistæki þar sem þeir geta
komið í veg fyrir alvarlega áverka af
völdum höfuðhöggs.
Hins vegar þarf að vanda val á hjálmi
því hann þarf að passa vel á höfuðið.
Ef hjálmurinn er ekki af réttri stærð
eða er vanstilltur veitir hann enga
vörn. Bandarískar rannsóknir hafa
sýnt að lítill munur er á áverkum hjól-
reiðamanna sem lenda í slysi með of
stóran eða vanstilltan hjálm og þeirra
sem nota engan hjálm. Ekki er hægt
að stilla hjólreiðahjálm rétt á höfuð
barns ef hann er ekki af réttri stærð.
4 NEYTENDABLADIÐ 2. TBL. 2006