Neytendablaðið - 01.06.2006, Blaðsíða 13
Jóhannes Gunnarsson
formaður Neytendasamtakanna
Þörf er á lögum um hópmálsókn
Víöa í nágrannalöndum okkar eru nú
þegar fyrir hendi eöa í undirbúningi
lög um hópmálsókn (class action).
Slík löggjöf hefur verið viö lýði í
Bandaríkjunum um árabil. Svíar og Norð-
menn hafa sett slík lög og slíkt er einnig
í undirbúningi bæöi í Danmörku og
Finnlandi. Neytendasamtökin hafa skrifað
Birni Bjarnasyni dómsmálaráöherra bréf
þar sem hann er hvattur til aö beita sér
fyrir að slík lög verði sett hér, enda sé
slíkt réttarúrræöi nauðsynlegt. Lögum
um hópmálsókn er ekki síst beitt þegar
fyrirtæki skaöa hagsmuni neytenda meö
samráöi sín á milli og brjóta á þann hátt
gegn samkeppnislögum.
Þegar úrskurður samkeppnisyfirvalda vegna
samráös olíufélaganna lá fyrir tilkynntu
Neytendasamtökin aö þau myndu láta reyna
á skaöabótaskyldu olíufélaganna gagnvart
neytendum. Þess vegna óskuöu samtökin
eftir því aö neytendur sem ættu reikninga
vegna viðskipta viö olíufélögin kæmu
þeim til samtakanna. Rúmlega hundraö
neytendur komu í kjölfarið meö gögn vegna
slíkra viðskipta.
Lögfræöingar Neytendasamtakanna yfirfóru
öll gögnin og var síðan tekin ákvöröun
um aö höföa prófmál vegna viðskipta eins
neytanda. Þetta var ákveöið þar sem ekki
er hægt að höföa mál fyrir tiltekinn hóp
vegna skorts á lögum um hópmálsókn.
Þetta mál var þingfest sl. sumar og síöan
hefur það legið í biöstööu og Ijóst að svo
verður um einhvern tima þar sem ætla má
að héraðsdómur Reykjavíkur muni ekki
fjalla um þaö fyrr en dómur liggur fyrir í
áfrýjun olíufélaganna vegna ákvörðunnar
samkeppnisyfirvalda um ólögmætt samráð
olífélaganna og sektargreiðslur sem félög-
unum var gert að greiða til ríkisins.
Neytendasamtökin hafa ekki fjárhagslegt
bolmagn til höfða mál fyrir hönd allra þeirra
sem komu gögnum til samtakanna. Því
hafa samtökin sent bréf til þeirra neytenda
sem komu meö gögn til samtakanna vegna
viðskipta sinna viö olíufélögin. Þar er þeim
leiðbeint hvað þeir geta gert ef þeir vilja láta
reyna á rétt sinn gagnvart olíufélögunum.
Neytendasamtökin hafa í öllum tilvikum
farið yfir þau gögn sem neytendur hafa
komið með til samtakanna og jafnframt
hafa Neytendasamtökin unnið ákveðna
forvinnu sem nýtist þessum neytendum.
Ólögmætt samráð olíufélaganna stóð að
minnsta kosti frá mars 1993 og þangað til
í desember 2001. Skaöabótakröfur fyrnast
á tíu árum og því er langt þangað til aö
kröfur á hendur olíufélögunum fyrnast.
En vissulega getur rétturinn til að krefjast
bóta glatast ef langur tími líöur þar sem
dómstólar myndu meta slíkt sem tómlæti.
Því er mikilvægt að þeir neytendur sem vilja
höfða mál geri það hið fyrsta.
Vegna skorts á lögum um hópmálsókn ákváðu
Neytendasamtökin aö höfða prófmál til að
láta reyna á skaðabótaskyldu olíufélaganna.
Neytendasamtökin töldu þetta mikilvægt til
að fá skorið úr um bótaskyldu olíufélaganna
gagnvart neytendum. Það er hins vegar
bagalegt hve langan tíma prófmáliö tekur
og því hefur það ekki þau áhrif sem Neyt-
endasamtökin höfðu vænst, enda Ijóst að
stór hluti þeirra krafna sem neytendur
geta gert verða fyrndar þegar niðurstöður
prófmálsins liggja fyrir. Þetta er að mati
Neytendasamtakanna óásættanleg staða.
Ólöglegt samráð olíufélaganna sýnir ótvírætt
nauösyn þess að sett veröi lög hið fyrsta
um hópmálsókn. Neytendasamtökin beina
því þeim tilmælum til Björns Bjarnasonar
dómsmálaráðherra aö hann beiti sér fyrir
því að frumvarp til laga um hópmálsókn aö
fyrirmynd annarra Norðurlanda verði samið
og lagt fram á Alþingi. Neytendasamtökin
lýsa sig jafnframt reiöubúin til samstarfs
um samningu slíks lagafrumvarps óski ráðu-
neytið þess.
|
1 Þing Neytendasamtakanna 2006
NEYTENDASAMTÖKIN
Þing Neytendasamtakanna er haldið annað hvert ár og verður
næsta þing haldið dagana 29.-30. september nk. Þingið veröur
sett föstudaginn 29. september kl. 14. Þing Neytendasamtakanna
er æðsta vald í málefnum Neytendasamtakanna. Þar er m.a. mótuð
stefna í starfi samtakanna fyrir næstu tvö starfsár auk þess sem ný
stjórn er kjörin á þinginu.
Rétt til setu á þinginu hafa allir skuldlausir félagsmenn sem
og tilkynna um þátttöku sína í síðasta lagi viku fyrir þing. Þeir
félagsmenn sem áhuga hafa á að sitja þingið er bent á að tilkynna
þar um til Neytendasamtakanna og hafa samband í síma 545
1200 eöa meö tölvupósti á netfangiö ns@ns.is. Félagsmenn eru
hvattir til að sitja þingið og hafa þannig áhrif á starf og stefnu
Neytendasamtakanna.
13 NEYTENDABLAÐIB 2. TBL. 2006