Neytendablaðið - 01.06.2006, Side 20
Ahrif kvenna á
í áströlsku bókinni Why women shop eða
Þess vegna versla konur velta höfundarnir
Stella Minahan og Miehael Beverland upp
ýmsum áhugaverðum staöreyndum um
innkaupagleði kvenna. Þeir telja að seljendur
á neytendamarkaði geri sér engan veginn
grein fyrir þörfum kvenkyns neytenda. Það
er þó til mikils að vinna fyrir seljendur að
gera konum til geðs því þær eru nefnilega
valdameiri en margir hafa talið hingað til.
Konur stjórna innkaupunum
Konur í Ástralíu eru betur menntaðar
en mæður þeirra og ömmur voru. Þær
hafa meira fé á milli handanna, þær eru
sjálfstæðari og þekkja betur markaðinn.
Þessar konur hafa meiri frítíma og það
sem skiptir hvað mestu máli er að þær hafa
ákvörðunarvaldið eða „decision making
power". í Ástralíu og í Bandaríkjunum
hafa kannanir sýnt að konur hafa áhrif á
80°/o allra innkaupa á neytendamarkaði.
í Bandarikjunum ákveða konur i meira en
90°/o tilvika hvernig íbúð eða hús er keypt
og í 94% tilfella ákveöa þær hvernig á
að innrétta heimilið. Konur vestra kaupa
um 60% allra bíla og hafa í 90% tilfella
áhrif á það hvernig bíll er keyptur. Konur
kaupa um 50% allra rafmagnstækja og
50% af öllum tölvum sem seldar eru á
neytendamarkaði. Þó eru bæði tölvu og raf-
magnstækjamarkaðurinn dæmigerðir karla-
markaðir.
Konur hafa vissulega lægri laun en karlar
en þó er Ijóst að þær hafa ákvörðunarvald
þegar kemur að innkaupum fyrir heimilið og
eru ekki hræddar við að nota það. Nú kunna
karlkyns lesendur að hrista hausinn enda
kannast þeir eflaust ekkert við að hafa sett
ákvörðunarvaldið í hendur konunnar. En
konur koma því auðvitað alltaf þannig fyrir
að körlunum finnst, þegar upp er staðið,
að þeir hafi tekið ákvörðunina upp á eigin
spýtur en ef marka má rannsóknir má gera
ráð fyrir að konur hafi haft mun meiri áhrif
á kaupin en karlana grunar.
Kröfuharðir neytendur
Konur eru kröfuharðir neytendur og þær láta
hvor aðra vita af jákvæðri eða neikvæðri
verslunarreynslu. Þær hika ekki við að kjósa
með fætinum (vote with their feet) þ.e.a.s.
ef konum mislíkar þjónusta eða þær verða
fyrir vonbrigðum með vörur þá munu þær
hagkerfið
sniðganga verslunina. Það getur
því verið þess virði fyrir seljendur
að koma sérstaklega vel fram
við kvenkyns viðskiptavini.
annars mun hún aldrei snúa
aftur og það sem meira er hún
mun vara börn sín, barnabörn
og vini sína við seljandanum.
Þá hafa margar verslanir ekki
uppgötvað hversu mikilvægt það er að
karlarnir geti sest niður og hvílt lúin bein
á meðan konurnar skoða varninginn og
fæstar verslanir gera nokkuð til að laða til
sín mæður meö lítil börn.
„Pretty woman" lífsreynsla
Nokkrir viðmælendur í bókinni höfðu lent i
svokallaðri „pretty woman'' lífsreynslu. Það
er þegar kona gengur inn í búð og mætir
gagnrýnu augnaráði. Afgreiðslufólk lítur
þá jafnvel hvert á annað og ranghvolfir
augunum, síðan er konunni bent á að hún
eigi ekkert erindi í verslunina þar sem hún
hafi hvort eð er ekki efni á varningnum.
Sumar konur sem lent hafa í þessari stööu
hafa jafnvel orðið svo æstar við þessa
höfnun að þær hafa keypt eitthvað í
versluninni bara til að sýna afgreiðslufólkinu
fram á að það hafi haft á röngu að standa.
Slík upplifun er auðvitað neikvæð og ekki
líkleg til að auka hróöur verslunarinnar.
Það er líka mjög varasamt fyrir starfsfólk
að ætla að meta viðskiptavinina af útlitinu
einu saman því það segir nefnilega ekkert
um bankainnistæðuna eða lánstraustið sem
viðkomandi hefur.
Jl
gegnir. Miklum peningum og orku getur t.d.
verið varið í markaðsstarf með tilheyrandi
auglýsingum og ímyndarsköpun. En ef
viðskiptavinurinn hittirá starfsfólk sem ekki
kann til verka getur öll markaðsvinnan farið
fyrir lítið.
Afgreiðslufólk í lykilhlutverki
í bókinni er itarlegur kafli um afgreiðslufólk
enda getur þjónustan sem afgreiðslufólk
veitir í verslunum skipt sköpum. Lélegt
afgreiðslufólk fælir frá og slæm reynsla
getur þýtt að hefnigjarnir neytendur komi
aldrei aftur og segi öllum sem heyra vilja
frá neikvæðri reynslu sinni. Sölufólk sem
er ýtið og ágengt er mjög óvinsælt og
jafnvel þótt slikum sölumönnum takist að
selja með yfirgangi sínum er ólíklegt að
viðskiptavinirnir snúi aftur.
Konur kunna aftur á móti að meta sölufólk
sem er vingjarnlegt, sýnir viðskiptavininum
einlægan áhuga og er hreinskilið.
Ekki gera allir seljendur sér grein fyrir því
hversu mikilvægu hlutverki afgreiðslufólk
Höfundar benda á að ástralskar
konur séu mesti áhrifavaldurinn í
áströlsku hagkerfi. Þær ákveða hvað
er borðað, hvaða fatnaður er keyptur,
hvaða húsgögn eru valin, hvaða
farartæki eru keyrð, í hvernig rúmi
er sofið og hvaða klósettpappír er
notaöur. Smásöiumarkaðurinn hefur
þó ekki gert sér grein fyrir þessari
staðreynd..