Foringinn - 01.01.1963, Síða 6
Hvað ætli foreldrarnir segi?
Það er ekki ósennilegt, að margur
skátaforinginn hafi einhverju sinni
velt þessari spurningu fyrir sér: „Hvað
ætli foreldrarnir segi?“ Því að það eru
jú þeirra börn, sem við höfum í sveit-
unum okkar, og því verðum við að gera
ráð fyrir, að foreldrarnir vilji hafa sitt
að segja um skátastarfið, sem og ann-
að það, sem börn þeirra taka þátt í.
Það er áreiðanlega víst, að þeirra sjón-
armið er í flestum tilfe’Jum það. sem
fyrst og síðast þarf að taka tillií til.
Það er því eðlilegt, að skátafovingjar
íhugi, hvernig þeir geti helzt fengið
svar við ofangreindri spurningu. Og
svarið liggur beint við: Hjá foreklrun-
um sjálfum!
Þess vegna er oft reynt að hafa
foreldrafundi í einhverri mynd, ým-
ist á vegum sveitar, deildar eða fé-
lags. En fyrsti hjallinn, sem verður á
vegi hvers foringja, sem ætlar að reyna
að hafa foreldrafund, er spurning-
in: Hvernig er hægt að tryggja, að for-
eldrarnir mæti? Og þetta er mjög
veigamikil spurning. Ef foreldrarnir
mæta ekki á fundinn, þá er víst allt
annað unnið fyrir gýg.
„Hvernig er hægt að tryggja, að for-
eldrarnir mæti?“ Hér á eftir ætla ég
að reyna að gefa ykkur nokkur ráð,
sem reynzt hafa mér vel til að fá for-
eldra til að mæta á foreldrafundi:
1. Utbúið með nægum fyrirvara
skemmtileg fundarboð, nægilega
mörg, til að hægt sé að senda eintak
til allra foreldra. Þar þarf að taka
fram um stað og tíma fyrir fundinn
og ekki má heldur gleyma dag-
skránni. Hún verður að vera „aðlað-
andi“ fyrir foreldrana og eitthvað,
sem hæfir þeim. Gott væri að for-
inginn skrifaði stutt ávarp til for-
eldranna á fundarboðin, þar sem
leikið væri á þá strengi, sem snerta
alla foreldra, þ. e. a. s. þeirra eigið
barn og hlutverk þess í skátastarf-
inu. Lögð sé sérstök áherzla á að fá
foreldrana til að mæta vegna síns
barns sérstaklega.
2. Gæ'.ið þess, að allir skátarnir komi
fram á einhvern hátt, því að foreldr-
arnir koma fyrst og fremst vegna
síns barns og til að sjá það. Hlut-
verk hvers og eins þarf ekki og má
ekki vera stórt, en allir verða að fá
hlutverk.
3. Foringinn getur haft áhrif á skátana,
og þeir geta síðan haft áhrif á for-
eldrana, þ. e. a. s. ef foringinn getur
komið því inn hjá skátunum, að það
sé mikils virði fyrir skátastarf þeirra
sjálfra, að foreldrarnir komi á fund-
inn, og það geti síðar meir haft
áhrif í þá átt að gera þeirra skáta-
starf fjölbreyttara og skemmtilegra.
4. Einnig er í sumum tilfellum mögu-
leiki að nota „saklaus" brögð til að
fá foreldrana til að mæta, t. d. að
hafa foreldrafund hjá ylfinga- eða
ljósálfasveit kl. 8 að kvöldi og gæta
þess að taka fram í fundarboði, að
meðlimir sveitarinnar megi ekki
koma nema í fylgd með foreldrum,
sökum þess hvað seint fundurinn
verður! Þá þarf auðvitað um leið að
gæta þess, að allir meðlimir eigi
Frh. á bls. 9.
6 FORINGINN