Foringinn - 01.01.1963, Blaðsíða 7
Þannig gæti fundarboð fyrir foreldrafund litið út:
KÆRU FORELDRAR!
Barn yðar er ennþá ungt, en hugsið nokkur ár fram í tímann!
Eftir nokkur ár verður sonur yðar ekki barn lengur, heldur
einn hinna mörgu unglinga, sem ásamt fjölda annarra á að
leggja út í hina raunhæfu lífsbaráttu og leita sér atvinnu. Þá
mun margs verða krafizt af honum, ef hann á að verða sam-
keppnisfær í lífsbaráttunni, t. d. samstarfshæfileika, ábyrgðar-
tilfinningar, foringjahæfileika, góðrar framkomu o. s. frv.
Tilgangur skátahreyfingarinnar er að reyna að hjálpa syni
yðar að búa sig undir lífsbaráttuna. En til þess þurfum við nána
og góða samvinnu við ykkur foreldrana, því að hlutverk okkar skátaforingjanna
tr aðeins að rétta ykkur hjálparhönd við uppeldi drengsins ykkar með því að
gefa honum kost á að vera meðlimur í markvissu og góðu félagsstarfi.
Sveitarforingi.
Yður er boðið að mæta á foreldrafundi hjá Fuglasveitinni næst-
komandi miðvikudag, 16. janúar. Fundurinn verður haldinn í skáta-
heimili deildarinnar við Furugerði og hefst kl. í) um kvöldið.
DAGSKRÁ:
Setning (Öll sveitin).
Sýning á ýmsum skátastörfum:
„Á leið í skála“ (Fálkar).
„Yfir ána“ (Ernir).
„Matarveizlan“ (Gammar).
„í útileik" (Uglur).
„Við varðeldinn" (Öll sveitin).
„Margt skeður i skátahóp." (Skugga-
myndir úr skátastarfi.)
„Orðið er laust.“ (Sveitarforingi ræðir
við foreldrana meðan bornar eru
fram veitingar.)
„Gengið um gangana.“ (Foreldrar
skoða skátaheimilið.)
Slit.
B.OMIÐ OG SJÁIÐ DRENGINN YÐAR í SKÁTASTARFI!
FORINGINN 7