Foringinn - 01.01.1963, Blaðsíða 11

Foringinn - 01.01.1963, Blaðsíða 11
Á ljósálfaaldri (9—11 ára) eru börn- in þrungin lífsþrótti. Ekkert annað tímabil i ævi mannsins er eins athafna- ríkt og einmitt þetta. Það lýsir sér m. a. í því, hve íþróttaiðkun er algeng á þessu tímabili. Á þessu tímabili þrosk- ast börnin einnig mjög andlega, þau taka að gera sér ljósar orsakir og af- leiðingar hlutanna og eru mjög áfjáð í að læra og skilja. Þau sækjast einnig mjög eftir að taka þátt í störfum hinna fullorðnu, og er þetta t'mabil því til- valið til að kenna þeim ýmis nytsöm verk. Söfnun alls konar hluta er mikið stunduð. Síðast en ekki sízt vaknar til- hneigingin til hópmyndunar einmitt um það leyti, sem stúlkurnar koma í ljósálfasveitina, og vex síðan stöðugt, unz hún nær hámarki um 11—12 ára aldur. Allt þetta er vert að hafa í huga, þegar starfið er undirbúið og skipu- lagt. Við undirbúning er bezt að byrja á því að skipuleggja starfið í stórum dráttum yfir nokkuð langt tímabil (2 —6 mánuði). Þannig er hægt að tryggja það, að stöðug stígandi verði í starfinu. Það er ekki nóg, að hver fundur sé vel undirbúinn sem slíkur, hann verður jafnframt að vera liður í langri keðju, sem stefnir að settu marki. Til þess að fá nálægt takmark í starfið getur verið ágætt að ráðast í einhver stór verkefni, svo sem for- eldraskemmtun, boð fyrir aðra ljós- álfasveit eða eitthvað þ. h. Utilíf ætti að vera ríkur þáttur í ljósálfastarfi. Ein ferð í mánuði er mjög hæfilegt. En ferðirnar þurfa ekki að taka langan tíma, og það er alls ekki nauðsynlegt að fara langt. Ein slík ferð gæti t. d. verið að ganga á fjörur og safna kuðungum. Þá mætti síðar nota til margs konar föndurs, en það ætti einmitt að vera fastur þáttur á fundum ásamt leikjum og kennslu undir prófin. Að lokum langar mig til að vara við mistökum, sem oft vilja henda. Gætið þess að fara ekki inn á svið skátanna í Ijósálfastarfinu. Leyfið ljósálfunum að fá nasasjón af því, hvað skátastarf er, en látið þá ekki reyna það. Með því móti verður það eftirsóknarvert að ganga upp í skátasveitina, og um leið dregur tilhlökkunin úr kvíðanum fyrir að yfirgefa gömlu sveitina. Með skátakveðju. K. FORINGINN 1 T

x

Foringinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foringinn
https://timarit.is/publication/905

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.