Foringinn - 01.01.1963, Blaðsíða 15
Er ritstjórnin sat á fundi og var að
ræða um efni blaðsins, „flaug“ „dúfa“
ein inn um dyrnar og settist við borðið
hjá okkur. Er hún hafði kynnt sér fyr-
irhugað efni þessa fyrsta tölublaðs
af Foringjanum, þá fór að „kurra“ í
„dúfunni" 03 taldi hún kvenskátana
bera skarðan hlut í blaðinu, sem á
ýmsum öðrum vettvangi skátastarfsins.
Til að reyna að bæta ráð okkar, báðum
við „dúfuna" að dýfa fjöður sinni í
blek og festa hugsanir sínar á blað.
Og við gefum „dúfunni" orðið:
Hafið þið nokkurn tíma gert ykkur
ljóst, að það eru aðeins 5 kvenskáta-
félög á landinu, þ. e. a. s. í Borgarnesi,
Isafirði, Siglufirði, Akureyri og
Reykjavík? Og hafið þið gert ykkur
ljóst, hvernig ástandið er á öllum hin-
um stöðunum, þar sem eru samfélög?
Ef svo er ekki, þá vil ég beina athygli
ykkar að eftirfarandi staðreyndum:
1. I samfélögunum er á cinum stað
kvenskáti, sem er félagsforingi.
2. I samfélögunum er leitun á aðstoð-
arfélagsforingja, sem er kvenskáti.
3.1 samfélögunum er oft leitun á kvcn-
skáta í stjórn félagsins!
Ef þið eruð vantrúuð á þessar stað-
reyndir, getum við litið til stærstu
samfélaganna: Skátafélag Akraness er
með fleiri kvenskáta en drengjaskáta
sem meðlimi. Félagsforingi og aðstoð-
arfélagsforingi eru karlmenn. I Hraun-
búum er hlutur kvenskáta ennþá
minni. Þar fyrirfinnst enginn kven-
skáti í stjórninni! I Kópum virðast
kvenskátarnir ekki heldur sérlega at-
kvæðamiklir. Þá hefur ekki orðið vart
við neina áberandi kvenskáta í Faxa.
Og í suðvestri sé ég hylla undir stað-
inn, þar sem „kóngurinn" situr ásamt
„hirð“ sinni og „þegnarnir" krjúpa á
kné í auðmýkt og horfa með lotningu á
„skógarperlur" „hirðarinnar" og „kon-
ungsins". Þessar „perlur", sem eru
lákn vizkunnar og valdsins! Og „kóng-
urinn“ hefur upp raust sína og ber
„þegnunum" boðskap sinn: „Leitið
vizkunnar í skóginum, þar sem hinar
dýru perlur finnast, en forðist hól-
börðin, þar sem litlu þriggja blaða
plönturnar vaxa, því að þeim fylgir
mikil ógæfa!“ Og „þegnarnir" beygja
höfuð sín í auðmýkt fyrir vísdómi
höfðingja síns! . ..“
Orðið er laust!
Bréf til okkar skulu merkt: Foring-
inn, Pósthólf 831, Reykjavík.
FORINGINN 15