Foringinn - 01.01.1963, Blaðsíða 14
FORINGINN
leggur nú framtíð sína í þínar hendur,
lesandi góður! Skilyrði fyrir því, að
hægt verði að halda áfram útgáfu
blaðsins, er að það fáist að minnsta
kosti 400 kaupendur að blaðinu. Við
höfum þegar lagt í nokkurn stofn-
kostnað til að reyna að gera blaðið
sem bezt úr garði. Vissulega gerum við
okkur ljóst, að þrátt fyrir það er mörgu
ábótavant við þetta fyrsta blað og von-
um við, að með góðri samvinnu og á-
bendingum frá lesendum, verði okkur
fært að gera blaðið þannig úr garði, að
sem flestir af lesendum verði ánægðir
með það, bæði útlit og efni.
Það er Gilwellhringurinn, samtök
þeirra, sem lokið hafa sinni Gilwell-
þjálfun, sem hefur tekið að sér að gefa
blaðið út þetta ár í samvinnu við út-
gáfustjóra Bandalagsins. Er ákveðið
að blaðið eigi að koma út 9 sinnum í
ár, þ. e. a. s. 1. jan., 1. febr., 1 marz, 1.
apríl, 1. maí, 1. júlí, 1. okt., 1. nóv. og
1. des. Munum við gera allt, sem okkur
er fært, til að blaðið komi út á réttum
tíma. Efni blaðsins munum við reyna
að hafa eins fjölbreytt og okkur er
unnt, og vonum við, að eitthvað verði
fyrir alla í blaðinu.
Við gerum ráð fyrir, að allir séu sam-
mála um nauðsyn þess, að til sé gott
og fjölbreytt foringjablað, þar sem
skátaforingjar geta sótt hugmyndir og
fræðslu fyrir starf sitt og þannig hald-
ið því frjóu og markvissu, og þar sem
foringjarnir geta látið í ljós skoðun
sína á hinum ýmsu vandamálum, sem
fylgja skátastarfinu. En sökum smæð-
ar okkar er það greinilegt, að helzt
cnginn foringi eða eldri skáti má
skorast undan að kaupa blaðið og
styðja það. Við höfum reynt að stilla
verði blaðsins í hóf, eins og okkur er
mögulegt, en áskriftargjald er kr. 75,90,
og er eflaust erfitt að finna ódýrara
blað en þetta. Byggist það á því, að í
rekstraráætlun blaðsins er gert ráð
fyrir halla, sem Bandalagið greiði, í
samræmi við það framlag, sem síðasta
skátaþing samþykkti að ætla til út-
gáfustarfsemi. En til að gera þennan
rekstrarhalla sem minnstan, vonum
við að ÞU fyllir út seðil þann, sem
heftur er i blaðið hér til hliðar og
setjir hann í póst helzt strax dag eða
á morgun. Þannig getur þú bezt lagt
FORINGJANUM lið. Ef einhver vina
þinna hefur ekki fengið þetta fyrsta
blað, vonum við, að þú leyfir hon-
um að sjá bað og reynir að fá hann til
að gerast áskrifanda. Blaðið verður
sent beint til allra áskrifenda! Næsta
blað verður sent öllum áskrifendum í
póstkröfu fyrir upphæð áskriftar-
gjaldsins.
14 FORINGINN