Foringinn - 01.03.1972, Qupperneq 5

Foringinn - 01.03.1972, Qupperneq 5
oO LOG og HEIT O o Þegar ég var befiinn aö segja álit mitt á því hvort breyta ætti skataheitinu og eöa skátalögunum haföi ég lítiö sem ekkert hugleitt þaö mál. Á síðasta skátaþingi var gerð nokkur grein fyrir beim hug- myndum, sem fram hafa komið um breytingar í þessum efnum. Ef ég man rétt, var ein af aöalástæöunum, sem þar komu fram fyrir því aö breyta ætti skátalögunum, aö þau væru of afdráttarlaus. Þaö var sagt eitthvaö á þá leið, aö þaö væri varla nokkur sá maéur sem héldi ávallt þær skyldur sem felast í skátalögunum. Þaö væri því ekki eðlilegt að ætla þeim, sem væru í skáta- félagi aö gera meira en öðrum einstaklingum. önnur ástæöa, sem var talin mæla meö breytingu á skáta- lögunum var sá að sumt í orðalagi laganna væri þannig aö hætta væri á aö unglingar ná til dags skildu ekki hvaö viö væri átt. Var sem dæmi nefnd síðasta greinin um aö allir skátar væru góðir lagsmenn. Aö mínum dómi finnst mér þessar ástæður haldlitlar er litiö er á grundvallarstefnu og markmiö skátahreyfingarinnar. Aðal- markmiö skátastarfs er að byggja upp hjá einstaklingum þann siðferðishroska, sem nauösynlegur er til bess aö hann veröi traustur og öruggur þegn í bjóöfélaginu á fullorðinsárunum. Hvernig þaö tekst og aö hvaöa marki skátinn getur tileinkaé sér þær lífsskoðanir, sem í skátalögunum felast, fer fyrst og fremst eftir þeim foringjum, sem leiöbeina skátanum. Á aldr- inum 11-15 ára eru unglingar mjög næmir fyrir áhrifum frá því unhverfi, sem þeir starfa í og tileinka sér gjarnan bá háttu, sem fyrir beim eru haföir. Með þessu er ég þó síöur en svo aö halda bví fram, að skátalögin séu dauður bokstafur, sem engu máli skiuti. Þegar viö vinnum skátaheitiö lofum viö aö gera þaö sem í okkar valdi stendur til þess að halda skátalögin. tg held því að skátalögin sér það mark, sem við lofum aö keppa aö í lífi okkar og starfi. Hvernig okkur tekst þaö leiéir tíminn í ljós fyrir hvern og einn. Eins og skátalögin eru í dag fela þau ekkert það í sér, sem óæskilegt er aö keppa aö. Eg tel því, að ekki sé nein ástæöa, til aé gera þaé mark sem skátalögin setja okkur neitt óljósara eöa lægra. Sá eina breyting, sem ég teldi, að^ef til vill væri þörf á, væri aé setja fyrir framan oröiö skati í hverri grein laganna, oröið sannur. Þó að við lofum bví að lifa í anda skátalaganna og skáta- ^heitisins, tekst okkur því^miður ekki alltaf aö breyta eins og sönnum skáta sæmir. En því betur sem foringjum í skátafélöp- unum tekst að sýna þeim yngri hinn sanna skátaanda í verki, því betur munu yngri skátar tileinka sér grundvallarhugsjónir skátastarfsins. Þetta held ég því aö sé höfuöatriöiö, ekki hvort viö segjum allir skátar eru góöir lagsmenn eða allir skátar eru góöir félagar. Takist foringjanum hetta, þá er tilgangi skátastarfs náð og foringjarnir hafa há sannað aö þeir hafi veriö þess traustst veröir að fá tækifæri til aö hafa áhrif á unglinginn á þeim tíma, sem hann er hvaö mest að mótast. Framh. á bls. 14 5

x

Foringinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foringinn
https://timarit.is/publication/905

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.