Foringinn - 01.03.1972, Síða 15
Þaö er ekki ýkja langt síðan að sveitarforingi einn kom til
mín og spurði, hvernig hann ætti að haga sveitarrðaðsfundi - hvernig
hann gæti bezt náð til meðlima ráðsins - hvað skátun snertir - og
hvaða siði og venjur hann gæti tekið upp. - t3t af þessu samtali
okkar sezt ág nú niður og ætla að ræða við ukkur um tilhögun eins
sveitarráðsfundar með von um, að þið skiljið á eftir þýðingu og
mikilvægi sveitarráðsfundarins.
Eitt af því fyrsta, sem þið verðið að athuga er, aö umhverfi
fundarins minni etthvað á, að hár sáu skátar á fundi og skátun fari
hár fram. Þessi fyrstu áhrif eru afar mikilvæg hvaða "stemningu"
snertir. Ef hana vantar, eru öll líkindi, til þess að fundurinn
mistakist. Það er því ein af höfuðskyldum sveitarforingjans - en
hann stjórnar fundinum - að skapa þessa "stemningu". Hana er mjög
auðvelt að skapa á einfaldan og áhrifamikinn hátt. - Við skulum
nú athuga nánar, hvað hægt er aö gera í þessu tilfelli. - Það
fyrsta er, að byrjunarathöfnin sá hátíðleg.
Hár er hugmynd að einni slíkri: Allir
meðlimir sveitarráðs standa í hring og heldur
hver á logandi kerti. I miðjum hringnum hefur
verið komið fyrir þrífæti, en á honum hefur
verið komið fyrir þrem kertum. I kringum
þrífótinn er faðað kertastjökum, sem aru jafn-
margir og meðlimir ráðsins. Þessir stjakar
eru eru búnir til á þann hátt, að birkilurkur
er sagaður niður í þunnar flögur (t.d. 4 cm
þykkár) og gat boraö fyrir kertinu á miðja
flöguna. Nafn hvers meðlims sveitarráðsins
er svo skrifað á stjakana. (Sjá mynd)
Sveitarforingi kveikir nú á kertunum á þrífætinum, og fara
allir með skátaheitið um leið. - Að þessu búnu ganga allir með
kerti sitt að kertastjökunum og stinga því í sinn kertastjaka.
Eftir þessa byrjunarathöfn er svo fundurinn settur af sveitar-
foringja og fyrsta mál tekið fyrir, en það eru skýrslur flokks-
foringja um starfiö síðastliðinn mánuð. - Að þáim skýrslum loknum
hefur sveitarforinginn fengið nokkra yrirsýn yfir
starfið í sveitinni, og ræöir nú með nokkrum orðum
um þessar skýrslur - hrósar því, sem vel hefur verið
gert, en reynir á skynsamlegan hátt að benda á betri
leiðir, ef eitthvað hefur fariö úr skorðum hjá ein-
hverjum flokkum. (Muniö að vera stuttorð).- Þá er
tekið fyrir annaö mál fundarins. - Sveitarforingi
leggur fram starfsáætlun fyrir næsta mánuð, útskýrir
hana og ber undir atkvæði og lætur því næst alla
undirrita hana.(Ég held, að þetta atriði sá mjög
þýðingarmikiö, og gefur starfsáætluninni áreiðanlega
mikiö gildi.)
Þegar hár er komiö, er hlá gert á fundinum og
veitingar fram bornar. Þetta tel ág hafi mikla þyö-
mgu og eykur vissulega á "stemningu" fundarins.
Framh. á bls. 14
15