Bændablaðið - 05.04.1995, Blaðsíða 11

Bændablaðið - 05.04.1995, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 5. apríl 1995 Bœndablaðið 11 Af erlendum vettvangi Norskur eðalgrís Safaríka, meyra svínakjötið Árið 1991 var kjöt af svínum sem kynbætt höfðu verið með samruna þriggja stofna sett á markað í fyrsta sinn. Kjötið var kallað "King-ham" og náði það metsölu. Núna hefur framleiðsla þess verið endurskipulögð og varan birtist á markaði undir nýju heiti: "Norsk Edelgris" Viðskiptavinir, sem leggja leið sína í einhverja búð norsku verslanakeðjunnar REMA 1000, eru blessunarlega lausir við aug- lýsingafargan. Það á ekki síður við um "Eðalgrísinn" en aðrar vörur. Kjötið er að finna í næsta bakka við venjulegt svínakjöt. Munurinn felst aðeins í öðru vörumerki, ei- litlu hærra kílóverði og svo slag- orðunum: "Safaríka, meyra svína- kjötið". "Við seljum jafnmikið af "Eðalgrísnum" og venjulegum svínakótilettum og viðskipta- vinirnir virðast mjög ánægðir með þessa vöru," segir Fredrik Heidel- berg, kaupmaður í Rema 1000 í Túnsbergi. Hann hóf sölu á "Edelgris" í maí í fyrra og beið spenntur að sjá hvaða móttökur kjötið fengi. "Rema- verslanimar leggja mikið upp úr hagstæðu vöruverði og viðskiptavinirnir eiga að geta verslað á ódýran máta. Þeir eiga einnig að finna það sem þá van- hagar um í hillunum hjá okkur. Þess vegna skiptir miklu að við séum fljótir til að bjóða nýjar vörutegundir svo að viðskiptavinir þurfi ekki að leita annað," segir Heidelberg. "Norsk Edelgris" er blanda þriggja svínastofna. Þeir heita "Landsvin" (50%), "Yorkshire" (25%) og "Duroc" (25%). Markmiðið var að framleiða fítumeiri vöðva en í skepnum af "landsvin"-stofni. Þetta skilar sér í safaríkara og meyrara kjöti. Fram til þessa eru það ein- vörðungu neytendur á Rogalandi, í Agderfylkjunum og Austur-Noregi "Hver sá sem kaupir "Edelgris“-kjöt í dag, verður að vera öruggur um að hann fái sömu gæðavöru og hann keypti í gær, sama hvar hún er keypt. Sama máli gegnir um pylsurnar. Kaupir þú sama vörumerkið, þá á einu að gilda hjá hvaða kjötvinnslu það er framleitt." sem notið hafa þessarar nýjungar. Framleiðslan er nefnilega enn í litlum mæli og ekki er gert ráð fyrir að "Norsk Edelgris" verði á borðum neytenda annars staðar í Noregi fyrr en með haustinu. "Eðalgrísinn" er framhald markaðstilraunar á vegum "Vestfold-Buskerud"-kjötvinnslu- nnar árið 1991. Þá var kjötið sett á markað undir heitinu "King-Ham" og hlaut frábærar móttökur neytenda. Núverandi markaðsstjóri kjöt- vinnslunnar, Sigmund Fossberg, átti drjúgan þátt í tilrauninni fyrir fjórum árum. Hann segir við- tökumar hafa gefíð ótvírætt til kynna að mikil eftirspum sé eftir safaríkara svínakjöti. Fossberg nefnir einnig mikilvægi fram- leiðslugæðanna. "Ef við ætlum að verða við óskum neytenda um gæðavöm, verðum við að auka framboð á slíkri vöm sem stendur undir nafni. Hver sá sem kaupir "Edelgris"-kjöt í dag, verður að vera ömggur um að hann fái sömu gæðavöm og hann keypti í gær, sama hvar hún er keypt. Sama máli gegnir um pylsumar. Kaupir þú sama vörumerkið, þá á einu að gilda hjá hvaða kjötvinnslu það er framleitt," segir Sigmund Foss- berg. "Markviss notkun gæðamerkja styrkir einnig stöðu okkar gagnvart alþjóðlegri samkeppni. Auðvitað vilja neytendur kaupa ódýrari vör- ur, en þeir láta þó ekki bjóða sér hvað sem er. Fæða er samofin til- finningum og við verðum að sjá til þess að neytendur taki tryggð við framleiðslu okkar. Það er bjargföst trú mín að neytendur séu tilbúnir til að greiða eilítið hærra verð fyrir þekkt gæðamerki," segir Fossberg ennfremur. "Við Norðmenn höf- um ekki aðstöðu til að gleypa við ódýrri tilboðabylgju frá megin- landinu. Við verðum að halda okk- ur að því sem við em færir í, nefni- lega því að framleiða gæðavömr sem höfða til viðskiptavinanna," segir Sigmund Fossberg að lokum. (Þýtt úr Svineavls Nytt Nr. 4 1994) Sveitadvöl 18 ára norsk stúlka óskar að komast á býli hérlendis þar sem hún getur umgengist dýr. Tímabil: 4.-5. til 24.-26. júlí eða í 3 vikur. Nánari upplýsingar hjá Ottó A. Michelsen, Miðleiti 5, 103 Reykjavík. Bændagisting - hótelstjórar Ég er nemi í Ferðamálaskóla íslands og mig langar til að vinna úti á landi í sumar. Góð kunnátta í ensku, þýsku og ítölsku. Áhugasamir hafi samband í síma 91-626745. Til sölu dráttarvél Til sölu mjög vel með farinn FORD 5610, árgerð 1987, 72 hest- öfl, ekinn 1180 klst. Upplýsingar í síma 98-78470. Niðurstöður búreikninga 1993 Út er komið rit um niðurstöður búreikninga 1993. Tekið er við pöntunum í síma 93- 70122. Myndsendir 93-70121. Hagþjónusta landbúnaðarins Hvanneyri Aðalfundur Búnaðarsambands Kjalarnesþings 1995 Stjórn Búnaðarsambands Kjalarnesþings hefur ákveðið að halda aðalfund búnaðarsam- bandsins þriðjudagskvöldið 25. apríl kl. 20:00 í Þverholti 3 í Mosfellsbæ. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Sam- kvæmt lögum sambandsins er fundurinn opinn öllum bændum á starfssvæði búnaðarsam- bandsins. Framkvæmdastjóri Bændasamtaka íslands Bændasamtök íslands óska eftir að ráða fram- kvæmdastjóra til að stýra daglegum rekstri í höfuðstöðvum samtakanna. Umsækjandi þarf að hafa kandídatspróf í bú- fræði eða sambærilega menntun, auk reynslu af stjórnunarstörfum. Umsóknarfrestur er til 20. apríl n.k. Umsóknum ber að skila til formanns Bænda- samtaka íslands, Ara Teitssonar, sem veitir nánari upplýsingar í síma 91-630300 eða 96- 43159 Hesteigendur athugið! Bændasamtök íslands vilja af gefnu tilefní koma eftir- farandi atriðum á framfæri: Búnaðarfélag íslands hefur á undanförnum árum haft forystu um mikið átak í skráningu á hrossum. Með til- komu gagnavörslukerfisins Fengs hefur öllum upp- lýsingunum verið komið í einn öflugan gagnabanka. Gagnabanki Fengs hefur að geyma upplýsingar um öll grunnskráð hross þar meðtalin öll sýnd hross, öll frost- merkt hross og nú síðast öll útflutt hross auk þeirra hrossa sem hafa verið skráð þegar ræktendur hafa skráð ræktun sína. Með þessu móti fær hvert hross sitt fæðingarnúmer, sína kennitölu. Þetta númer á alltaf að fylgja hrossinu, hvort sem er til sýninga, við frost- merkingu, sölu eða útflutning. Nú fer í hönd annatími hjá hesteigendum. Því vilja bændasamtökin leggja áherslu á eftirfarandi vinnureglur: Frostmerkinaar: Ef til stendur að frostmerkja þarf fyrst að athuga hvort hrossið hefur þegar fengið númer t.d. hvort það sé frá ræktanda sem hefur sín hross skráð í Feng. Ef ekki ber að ítreka nauðsyn þess að grunnskrá hrossin með góðum fyrirvara, grunnskráningarblöð fást hjá bændasamtökunum og búnaðarsamböndunum. Það er ekki nóg að mæta með upplýsingarnar þegar frostmerkingin á að fara fram. Það verður fyrst að ætla tíma til að skrá upplýsingar um hrossin í Feng og skrifa út vottorðin. Útflutninaur: Hross eru ekki flutt út í dag nema þau séu skráð í gagnabanka Fengs. Það þýðir að útflytjendur verða að gera sér grein fyrir hvaða upplýsingar eru til staðar og hverjar vantar. Er hrossið sýnt, frostmerkt eða grunnskráð? Ef svo er, hver er skráður eigandi? Athugið að gögnum þarf að skila minnst 3 virkum dögum fyrir útflutning. Sýningar: Þar gilda sömu reglur, hefur hrossið nú þegar númer og er skráður réttur eigandi ? Allar sýningaskrár og dómaskrár eru skrifaðar út úr gagnabanka Fengs svo að ekki koma þaðan aðrar upplýsingar en þar eru skráðar. Grunnskráning: Þær upplýsingar sem hestaeigendur þurfa að hafa á takteininum þegar grunnskrá á hross eru; fæðingarár, uppruni, foreldrar og fæðingarár þeirra (mikilvægt að taka fram ef foreldrar eru númeraðir) auk kennitalna fyrsta og núv.eiganda. Bændasamtökin vilja enn og aftur ítreka að fólk ætli rúm- an tíma til að skrá þessar upplýsingar á fullnægjandi hátt. Bændasamtök íslands Hrossaræktin Bændur Hross á Japansmarkað Nú bráðvantar feit sláturhross til slátrunar á Japansmarkað. 10% yfirverð greitt miðað við skráð verð án hupps og síðu. Hafið samband við sláturleyfishafa eða formenn deilda Félags hrossabænda. 4ÝÍ, FELAG HR0SSABÆNDA

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.