Bændablaðið - 28.10.1997, Page 1
18. tölublað 3. árgangur
Þriðjudagur 28. október 1997
ISSN 1025-5621
Innflutningur á erfðaefni
Kúabærdun greiOa aOtvædi
Fjárrekstur í haustblíðu
Þann 10. nóvember hefjast
kynningarfundir um tillögur
Nautgriparæktarnefndar um
innflutning á erfðaefni í tilrauna-
skyni til kynbóta á íslenska kúa-
stofninum.
Fulltrúar úr Nautgriparæktar-
nefiid munu gera grein fyrir til-
lögunum og svara fyrirspumum. A
fundunum fer einnig fram skoðana-
könnun meðal kúabænda um afstöðu
þeirra til þessara tillagna. Gefhir eru
fimm valkostir sem kynntir eru á
blaðsíðu 6.
Atkvæðisrétt hafa allir þeir
einstaklingar sem standa að mjólk-
urframleiðslu á búum með
greiðslumark. Kjörskrár verða
unnar í samvinnu við félög kúa-
bænda í hverju héraði og liggja
frammi í upphafi fundar. Sjá nánar
á bls. 4,5 og 6.
Aukin þörf fyrir fjárhunda
FJÁRHUNDAKEPPAIIÁ
HESTII BORGARFIRfll
Fjárhundakeppni verður hald-
in 2. nóvember kl. 13:00 á
Hesti í Borgarfirði. Er þetta í
fjórða sinn sem slík keppni fer
fram hér á landi. Oftast hafa
sex eða sjö hundar mætt til
keppni, flestir eru af Border
Collie kyni en keppnin er
öllum opin.
Ahugi á fjárhundum er að
aukast og þörfin fyrir góða smala-
hunda er augljós þar sem fjár-
bændum fækkar en landið sem
þarf að smala minnkar ekki að
sama skapi. I smalamennskum
getur góður hundur, undir öruggri
stjóm, verið á við marga menn.
„Að vera hundlaus fjárbóndi er
eins og að vera bifvélavirki án
skiptilykils," sagði Dagbjartur
Dagbjartsson, formaður Vestur-
landsdeildar Smalahundafélags ís-
lands, sem stendur fyrir keppninni,
í stuttu spjalli við Bændablaðið.
Þrautin sem hundur og eigandi
glíma við er fjölþætt og reynir á
báða. Hundamir eiga að sækja
fjárhóp ákveðna vegalengd og
færa eiganda sínum, síðan reka
þeir hópinn í gegnum tvö hlið,
stoppa hann á ákveðnu svæði og
að síðustu reka þeir hann inn í rétt.
Skráning er í síma 435 1190,
hjá Hörpu og Jóhanni, eða á
keppnisstað.
Fengur, gagnasafn Bændasamtaka íslands, í hrossarækt komið á Alnetið
EITTHUNDRAB
ÞÚ8UND HR08S í
GAGNASAFNIFENGS
Fengur, gagnasafn Bændasamtaka
íslands í hrossarækt, er komið á Al-
netið. Hrossaræktendum og áhuga-
fólki um íslenska hestinn hvar sem er í
heiminum gefst nú kostur á að nýta
sér gagnasafnið við upplýsingaleit að
ættum, kynbótadómum og kynbóta-
mati um 100 þúsund íslenskra hrossa.
Seld verður áskrift að Feng en að-
gangur verður ókeypis fram til 12.
desember nk.
Bændasamtökin hafa unnið ötullega að
skráningu upplýsinga í Feng eða alveg frá
því hann var tekin í notkun árið 1991. Eins
og áður segir
hefur Fengur að
geyma upp-
lýsingar um 100
þúsund hross. Ætt-
emi hrossa má
rekja allt fram að
síðustu aldamót-
um sem er mikill
fengur fyrir ætt-
fræðinga hrossa
að grúska í. Þá má
fá upplýsingar um
alla kynbótadóma
á hrossum frá
árinu 1967 til
dagsins í dag. Alla kynbótadómar sýningar-
ársins 1997 er að finna í gagnasafninu
ásamt nýju kynbótamati, sem var reiknað út
í síðasta mánuði. Auk þess má fá fram
kynbótamat allra hrossa sem fyrirfmnast í
Feng.
Gagnasafnið verður uppfært reglulega á
Alnetinu en sífellt er unnið að skráningu í
það í Tölvudeild Bændasamtakanna í sam-
ræmi við skýrsluhald hrossaræktenda, út-
flutningsskýrslur og skráningu á ættemi og
eldri dómum. Fyrirtækið Skíma/Miðheimar
hf. hefur séð um að varpa gagnasafni Fengs
yfir í Informix gagnagmnn, sem býður upp
á mikinn hraða og öryggi.
Að sögn Jóns B Lorange, forstöðu-
manns Tölvudeildar Bændasamtakanna,
hefur lengi verið stefnt að því að opna að-
gang að gagnasafni Fengs á Alnetinu.
Margir áhugasamir hrossaræktendur hér-
lendis og erlendis hafi komið þessari ósk
oft á framfæri, en ekki hafi gefist færi á því
fyrr en nú að verða við henni. Einka-Feng-
ur, sem em einkatölvuforrit með gagna-
safni Fengs, og hefur verið á markaði frá
árinu 1994, verður áfram gefin út enda
býður forritið upp á meira en það sem
boðið er upp á Alnetinu. T.a.m. em engar
upplýsingar um eigendur hrossa að finna á
Alnetinu en í Einka-Feng er unnt að fletta
upp eigendum sýndra og frostmerktra
hrossa. Einka-Fengur nýtist einnig vel til
alls konar skýrslugerðar og skráningar á
eigin upplýsingum.
í sumar kom Einka-Fengur á geisladiski
(CD-ROM) og vinna er farin af stað við
Windows útgáfu, sem síðar verður gmnnur
að margmiðlunarútgáfu. Einka-Fengur
býðst í íslenskri, enskri og þýskri útgáfu og
hafa um 200 eintök verið seld til ellefu
landa, að sögn Jóns. „í samtölum mínum
við erlenda notendur Einka-Fengs hef ég
orðið var við þann mikla áhuga sem er á
íslenska hestinum um allan heim. Með því
að opna fyrir aðgang að gagnasafni Fengs á
Alnetinu býðst öllum hvar sem er í
heiminum með lítilli fyrirhöfn að nálgast
upplýsingar frá fýrstu hendi um íslensk
hross og hrossarækt. Það er gott til þess að
vita að gagnasafnið opnar erlendum
kaupendum aðgang að upplýsingum um
íslenska hrossarækt, sem vonandi greiðir
götu hrossaviðskipta frá íslandi," sagði Jón
Baldur.
Kristinn Hugason, hrossaræktarráðu-
nautur sagði í viðtali við Bændablaðið að
þetta væm mikil tímamót í gagnamálum
hrossaræktarinnar. Avöxturinn af því upp-
byggingastarfi í gagnavörslumálum hrossa-
ræktarinnar, sem hefði hafist árið 1991,
með tilkomu Fengs-kerfsins væri að koma í
ljós. Góður árangur af samvinnu við Tölvu-
deild Bændasamtakanna og ötult starf
hennar í þessum málum væm happafengur
fyrir hrossaræktendur. Gagnasafn Fengs
væri orðin gullnáma, sem hrossarætendum
um allan heim byðist nú aðgangur að á
Alnetinu eða með kaupum á Einka-Feng.
Alnet-netfarar geta nálgast Feng á
vefslóðinni www.bondi.is.
Bœndablaðsmynd: Jón Eiríksson