Bændablaðið - 28.10.1997, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 28. október 1997
Bœndablaðið
7
Hundar og ræktun þeirra á íslandi
Valræktun hunda er og hefur
verið stunduð um langa hríð víðs
vegar í heiminum. Upphaflega og
yfirleitt af hugsjónamönnum sem
voru og eru að rækta saman hunda
með vissa hluti í huga og þá sér-
staklega hvað varðar eiginleika
þeirra til vinnu. Að vísu eru til
dæmi um að hundar væru ræktaðir
eingöngu útlitsins vegna en það er
og verður aldrei farsælt. Við
getum tekið dæmi um vel
heppnaða vinnuhundaræktun á
Border Collie sem skoskir bændur
ræktuðu út frá bestu fjárhundunum
sínum. Eins má nefna veiðihunda-
kynin eins og t.d. Labrador, Flat-
coat, Irish Setter og marga fleiri
sem voru ræktaðir sem veiðihund-
ar til þess að þefa upp og eða stað-
setja bráð og sækja hana fyrir eig-
anda sinn eftir að hann hefur
skotið hana. Þessi hundakyn og
mörg önnur eiga það sameiginlegt
að á bak við þau liggur gríðarlega
mikil og óeigingjöm vinna manna
sem byggðu lífsviðurværi sitt á
hundinum. Sem dæmi má nefna
fjárbóndann í Skotlandi sem á
kannski 3-4000 fjár. Það væri
ógjömingur fyrir einn mann og þó
þeir væm fleiri að hlaupa á eftir
slíkum hóp og halda honum saman
án þess að hafa með sér góðan
fjárhund. Þó hefur það nú þekkst á
Islandi að menn setji hundana inn
þegar reka eða sækja á fé, og menn
taki þá sjálfir við hlutverki hundsins
á oft svo mjög dramatískan hátt og
hlægilegan. Þetta er sorgleg
staðreynd en engu að síður raunin í
allt of mörgum tilfellum. Yfirleitt er
þetta því að kenna að menn kunna
eða hreinlega nenna ekki að temja
hundana. Það er nú einhverra hluta
vegna með hundana eins og með
hrossin að það þarf að temja þá til
þess að geta haft not fyrir þá.
En þá aftur að ræktuninni.
Ræktun Border collie á íslandi er í
miklum uppgangi og er það að
miklu leyti að þakka einum manni,
Gunnari Einarssyni frá Daðastöð-
um sem hefur ræktað og þjálfað
Border collie til fjölda ára með það
að markmiði að koma upp góðum
fjárhundum. Af orðinu fjárhundur
myndu væntanlega flestir lesa út
hundur sem notaður er til að vinna
með fé. En hvað þá með íslenska
fjárhundinn, stolt okkar Islendinga
í gegnum aldimar. Hvemig er
komið fyrir ræktuninni á því
hundakyni, hafa bændur mikil not
fyrir slíkan hund sem tvístrar fé í
stað þess að halda því saman. Eins
er það grundvallaratriði að fjár-
hundur geti hlaupið hraðar en
kindin en það er á mörkunum með
íslenska hundinn vegna þess að
það er búið að afskræma hann. Þá
á ég við að hann er orðinn svo
smár og stuttfættur að hann á í
erfiðleikum með að hlaupa uppi
kind, hvað þá við erfiðar aðstæður
eins og oft em á íslenskum
fjöllum. Samkvæmt gömlum
sögnum var íslenski hundurinn
háfættari og betri fjárhundur en
hann er í dag. Ekki dreg ég það í
efa en hvað hefur þá gerst, em
íslenskir bændur hættir að hafa not
fyrir góða hunda. Eða er það ef til
vill eins og ég held að raunin sé,
að það er fólk sem engin not hefur
fyrir fjárhund í eiginlegri
merkingu eða hefur vit á þeim sem
em að fikta með ræktun á þeim í
skjóli einhverra ræktunarfélaga.
Ef að svo er þá er það vítavert og
íslenskri hundarækt til skammar.
Þama er eins og útlitið sé látið
stjóma ræktuninni. ímyndum okk-
ur íslenska hestinn, segjum sem
svo að við hættum að hæfileika-
dæma kynbótahrossin, og létum
bara byggingadæma þau, svo
leiddum við hryssumar okkar bara
undir fallegustu stóðhestana og
svo öfugt. Eg þori varla að hugsa
þá hugsun til enda.
Ég las um það í Bændablaðinu
einhvem tímann að það væri búið
að finna leið til þess að bjarga ís-
lenska fjárhundinum, það væri
með því að fá nýja dómara. Nú já,
þvflíkt lán. Nú komum við að
þessum svokölluðu hundasýning-
um sem ég persónulega botna
hvorki upp né niður í, en hef þó
I greininni kemur fram að rcektun
Border Collie á lslandi er í miklum
uppgangi og segir höfundur það að
miklu leiti að þakka einum manni,
Gunnari Eiimrssyni frá Daðastöðum
sem hefur rcektað og þjálfað Border
collie tilfjölda ára með það að mark-
miði að koma upp góðum fjárhund-
um. A myndinni má sjá Gunnar að
smalafe' með aðstoð hunds.
nokkmm sinnum orðið vitni að,
m.a. einu sinni í Skotlandi þegar
ég sat með nokkmm skoskum
vinnuhundaþjálfurum og við
horfðum á stóm hundasýninguna
Cmfts í sjónvarpinu, var þetta hin
mesta kómedía, því þar hlupu
menn með hundana í hringi. Eftir
það skoðuðu svokallaðir dómarar
upp í hundana. Því næst fengu
sumir einhverja borða í verðlaun
og meistarastig og vom þá þar
með taldir upplagðir til ræktunar.
Ekki veit ég hvaða kynbótagildi
það hefur fyrir veiðihundakyn,
hvemig það hleypur í hringi í
taumi, hvað þá fjárhundakyn.
Þama er greinilega eitthvað stór-
undarlegt á ferðinni. Ég held að
margir þeirra manna sem eyddu
lífinu í að rækta upp mörg góð
vinnuhundakyn séu búnir að snúa
sér nokkra hringi í gröfinni.
Ég hef sjálfur tekið eftir því þar
sem ég þjálfa leitarhunda að þeir
hundar sem koma ffá vinnuhunda-
ræktendum em stómm betri en þeir
sem koma ffá sýningaræktendum.
Eitthvað hlýtur það að segja manni.
Að lokum langar mig til þess
að stinga upp á því við þá sem hafa
eitthvað með ræktun á íslenska
fjárhundinum að gera, að ef ekkert
á að gera þannig að íslenski fjár-
hundurinn standi undir nafni, þá
verði hann kallaður eitthvað annað
eins og t.d. „Islenski kjölturakkinn".
Steinar Gunnarsson, Skarði,
Skagafirði.
Nýr og gjörbreyttur Zetor
meö ISO 9001
gæðaviöurkenningu
Nýr Carraro framöxull með
diskabremsum í
olíubaði
Nýr afturöxull með ƧÍL
þýskum Knott Æ
diskabremsum í Æm(;!n
olíubaði lj®
Breyttur ' ÆM
gírkassi með 40
km hámarks- / .. w'
hraða og bremsur
á öllum hjólum ,
Ný og stærri kúpling 310^**»*^
mm í öllum gerðum
Nýr 120 Itr hráolíutankur
Nýr og stærri 70 amp alternator
Ný vatnsdæla með tveim A-reimum
Nýi Zetorinn er
fáanlegur 70 og 80
hestafla með og án
framdrifs á verði
frá aðeins kr.
1.380.000 án vsk.
Nýtt, gjörbreytt ökumannshús með 82
db hljóðeinangrunyl
Ný hliðarskipting Jm
Nýtt Grammer ökumannssæti og M
farþegasæti JT
Nýtt mælaborð /
Nýtt Bosch rafkerfi /
Ný opnanleg vélarhlíf
Nýr lyftutengdur dráttarkrókur
Ný 50 Itr vökvadæla
i Nýtt vökvakerfi með Bosch
ventlum og allt að 6
I vökvaúrtökum
Ný og flotmeiri radial dekk
Greiðslukjör til allt að 7 ára
VELAVER
Lágmúla 7, 108 Reykjavík
Sími: 588 2600, fax: 588 2601