Bændablaðið - 14.11.2000, Blaðsíða 7

Bændablaðið - 14.11.2000, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 14. nóvember 2000 BÆNDABLAÐIÐ 7 Þegar undirritaður féllst á að skrifa flokk smágreina fyrir blaðið var talað um stuttar greinar og lauslega umfjöllun en þessi síðari grein um mjaltatæki er þó lengri en ætlað var svo ekki þurfi að skipta umfjöllun- arefninu meira. í fyrri hluta var fjallað stuttlega um tækin al- mennt en við skulum nú skoða betur tækin sem eru í söiu hérlendis. Tekið skal skýrt fram að hér eru settar fram skoðanir og mat undirritaðs og ekki ætlast til að all- ir séu honum sammála, en hlut- leysis hefur verið gætt. Með mjaltatækinu er átt við tækið sjálft og viðtengd hylkin fyrir spena- gúmmíin með þeim ísettum. Harmony frá De-Laval er nútímalegt og vel hannað, vegur um 1,6 kg og hefur 440 ml innra rými. Mjólkur- slangan tengist tækinu að ofan- verðu ( þegar það hangir á kúnni) sem er óvenjulegt, en flæðirör liggur niður í gegnum mitt tækið. Jafnframt því að flytja mjólkina upp frá neðri hluta tækisins á það að lágmarka bakskot frá kerfinu vegna hugsanlegrar sogsveiflu. Segja má að þetta sé sérstaða tækisins og býsna vel til fundið. Tækið er sjálflokandi við ásetu. Með öðrum orðum þá þarf ekki að brjóta upp á spenagúmmíin með því að hafa þau í greip sinni enda illmögulegt vegna umfangs tækisins. Spenagúmmíin eru tengd við tækið án stúta sem eykur flutn- ingsgetu og verður síður óþrifa- gildra sem stundum sést á stúta- tengdum tækjum. Ef spenafata er notuð (mjólkað fram hjá) „pipar- sveinafata" kiefst hún sérstaks millistykkis, en nota má t.d. enda af eldra gúmmíi sem grönnu röri er stungið upp í svo hún sé tengjanleg Harmony tækinu. Flæðigeta tækisins er góð. Inn- anmál stuttu mjaltaslöngunnar er 13,5 m/m og stúts fyrir löngu mjaltaslönguna 16 rn/rn. Lögun tækisins og sverleiki stuttu mjaltaslöngunnar gerir það að verkum að erfltt er að mjólka kýr sem eru mikið gleiðspenntar vegna júgurbyggingagalla eða tímabund- ins stálma. Astæðan er sú að stutta mjólkurslangan hreinlega legst sam- an en hún er 15 cm löng. Þetta er ókostur. Nota verður gamla tækið í þeim tilvikum eða mjólka kúna í tvennu lagi þe fyrst aðra hliðina og nota tappa í hin tvö hylkin. Gengið til mjalta. Tækið er 39 cm sítt og getur því stundum legið ofan í básnum við mjöltun kúa sem eru mjög júgursíðar vegna t.d. niðurslits eða aldurs. innbyrðis milli spena og varar bóndann við með mismunandi Ijósblikki eftir því hve mikið við- komandi speni sker sig frá lægstu Uniflow3 tœkið frá S.A.C er nútímalega hannað enda nýkomið á markað. Það er einfalt í byggingu - vegur tæp 1.6 kg en hefur um 485 ml. innra rými. Það fer vel í hendi og er ekki eins sítt og De-Laval tækið. Þetta er kostur þegar síðjúgra kýr eru annars vegar eða 38 sm - þeg- ar langa mjólkurslangan er komin á sinn stað. Spenagúmmíin eru tengd tækinu á hefðbundinn hátt (stútar) sem telst frekar „mínus" með tilliti til þrifa, en innanmál stúts fyrir stuttu mj.slöngu er 13.5 mm og löngu mj.slöngu 16 mm þannig að flæðigetan er góð. Mjólkurslangan tengist því að neðanverðu og er tengistúturinn grópaður ofan í lokið svo slangan liggi síður í básnum. Þegar kemur að gleiðspenntu kúnum er vandinn meiri ef menn nota þetta tæki en það sem kemur frá De-Laval, því stutta mj.slangan er aðeins 13.5 cm og hefur því takmarkaðan sveigj- anleika. Tækið er sjálflokandi við ásetu. Þetta þýðir að stutta mj.slangan lokar sjálfkrafa þegar tækinu er hvolft eins og raunar bæði De-laval og Strangko. Þetta tæki er fáanlegt með svokölluðum. júgurbólguskynjara og heitir þá Uniflow 3M og mælir leiðni og saltmagn mjólkurinnar Mjalttti ILgrein samanlögðum gildum hinna spen- anna. Einnig gerir tækið viðvart ef hitastig mjólkurinnar fer yfir eðli- leg mörk sem er þá vísbending um að kýrin sé með hita og þarfnist skoðunar. Þessi búnaður er býsna sniðug- ur en er hins vegar nokkuð dýr enn sem komið er og spillir að tvennu leyti annars ágætu mjaltatæki því hann rýrir innra rými tækisins í 420 ml og þyngir það upp í 1.8 kg. Menn geta svo endalaust deilt um það hvort þessi aukabúnaður sé þarfur eður ei og gagnist sem skyldi, eða hvort hann verður til þess að menn tapi vöku sinni og verði lakari mjaltamenn á eftir. Soffi tœkið frá Strangko er nokkru þyngra en þau tvö tæki sem áður eru nefnd eða um 1.9 kg en hefur mest innra rými allra tækjana eða 515 ml. Hönnunin er hins vegar nokkuð gamaldags enda mun nýtt tæki í smíðum hjá Strangko. Því má segja að mjaltatækið sé eins og úr eldri pakka miðað við nútíma- lega hönnun og nýjungar Strangko mjaltakerfana að öðru leyti. Það sést mun verr inn í tækið á mjöltum heldur en De-Laval og SAC sökum þess að það er ógagn- sætt að ofan og neðan sem er mik- ill galli. Spenagúmmíin eru tengd tækinu við langa stúta sem einnig er „mínus“. Stútur löngu mj.slöngu er 15 m/m en stuttu mj.slöngu 12.5 m/m og flæðigeta því örlítið lakari en hinna fyrmefndu en þar bjargar mikið innra rými. Strangko hefur hins vegar gert raf-sogskiptinn og tengingu hans við Soffi tækið þannig úr garði að framspenar mjólkast saman og aft- urspenar saman, í stað vinstri - hægri mjöltun samkeppnisaðilana (tenging loftslangnanna í hylkið.) Hugmyndin er ekki galin því skiptihlutfall milli fram og aftur júgurhluta eru einnig stillanleg t.d. 50/50 á móti 60/40 sem getur komið vel út þar sem tæmingartími afturjúgurs er oftast lengri en framjúgurs. Vegna síddar og hönnunar Soffi tækisins þ.e. grönn stutta mj.slanga verða ekki vandamál með gleiðspenntu kýmar en mikil sídd þess 40.5 cm veldur því að tækið liggur frekar ofan í básnum og tengistútur mjólkurslöngunnar skagar allt of langt niður úr tækinu. Classic 300 tœkið frá Westfalía hefur und- irritaður einungis séð á sýningu. Mál var hvergi að finna enda tæki þessi sjaldséð hérlendis. Westfalia framleiðir framúrstefnuleg og vönduð kerfi í heildina en sjálft mjaltatækið vakti hins vegar litla hrifningu undirritaðs. Það virkaði afar gamaldags og þungt miðað við De-Laval og SAC. Engar upp- lýsingar var að hafa um þyngd tækisins en það var þungt í hendi og innra rými uppgefið 300 ml sem telst lítið og sídd er yfir 40 cm. Spenagúmmí tækisins og stutta mjólkurslangan eru samansett þ.e. í tvennu lagi og spenagúmmíin era framúrstefnuleg vegna ljósgulra silicon blöndu og virkuðu þau mjúk og stílhrein sem er í andstöðu við gamaldags mjaltatækið. Enda segir framleiðandinn að þau hafi besta örvun (stimuleringu) allra spenagúmmía. Þau eru tengd tækinu í stúta og mjólkurslangan tengd í tækið að neðanverðu. Að lokiim Það hafa engin viðurkennd samanburðarpróf verið gerð á þes- sum framantöldu mjaltatækjum í sömu hjörð þannig að með engu móti er hægt að benda á eitt tæki og segja „þetta er besta tækið.“ Hins vegar geta menn skoðað og sagt „þetta tæki líst mér best á.“ Kristján Gunnarsson MSKEA - MSKÞ Málmsuða í fjarnámi, á Hvanneyri þó! Dagana 27. -29. október s.l. kom hópur nemenda í fjarnámi að Hvanneyri á námskeið í málmsuðu. Námskeiðið var skipulagt af þeim Eddu Þorvaldsdóttur og Hilmari Hálfdánssyni en þar kynnti Hilmar fyrir hópnum grundvallarhandtökin við logsuðu og rafsuðu. Málmsuða er einn af þeim áföngum búfræðinámsins sein eðli málsins samkvæmt er erfitt að taka sem fjarnám og var því brugðið á það ráð að skipuleggja þriggja daga málmsuðunámskeið fyrir hópinn. Var mikið skrafað og soðið og ekki annað að sjá en vel hafi tekist til, a.m.k. virtist hópurinn áhugasamur og iðinn þegar undir- ritaður leit ínn á kennsluverkstæði skólans á sunnudeginum. Var ekki laust við að jóiabragur væri á einstaka suðumanni því ekki sá ég betur en að verið væri að sjóða aðventukrans a.m.k. á einu vinnu- borðinu. Með klókindum tókst þó að ná þeim út fyrir dyrnar svo að hægt væri að festa á filmu þennan sögulega viðburð, en þetta er fvrsta málmsuðunámskeiðið á Hvanneyri sem eingöngu hefur verið ættað nemendum í fjarnami. (SH) Aftari röð frá vinstri:Margrét Friðjónsdóttir, Guðmundur Sigurjónsson, Guðný Jakobsdóttir, Ólafía Ásbjörnsdóttir, Erlingur Garðarsson, Óiafur Sigvaldason og Hilmar Hálfdánsson kennari. Fremri röð frá vinstri: Margrét Þórðardóttir og Sigrún Gréta Helgadóttir. C PLÓGAR ) 3,4,5 skerar (TAÐDREIFARAR) STURTUVAGNAR (FLAGHEFILL) (FLUTNINGSKASSI) (HJÓLAKVÍSLAR) RULLUGREIPAR G.5KAPTAS0N & CO TUNGUHALS 5 • REYKJAVIK SÍf/l 577 2770 BUVÉLAR ( PINNATÆTARA) FEFfJXBOL/

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.