Bændablaðið - 27.02.2001, Side 8

Bændablaðið - 27.02.2001, Side 8
8 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur 27. febrúar 2001 Eiturefnanámskeið Námskeið um notkun eiturefna og hættulegra efna í landbúnaði, garðyrkju og við garðaúðun verður haldið dagana 22. og 23. mars 2001. Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem vilja öðlast réttindi til þess að mega kaupa og nota efni í X og A hættuflokkum og/eða starfa við garðaúðun. Þátttaka í eiturefnanámskeiði veitir ekki sjálfkrafa leyfisskírteini til kaupa á efnum ( X og A hættuflokkum, heldur verður að sækja um það sérstaklega. Einnig verður að sækja sérstaklega um leyfi til að starfa við garðaúðun. Námskeiðið verður haldið hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins á Keldnaholti, Reykjavík. Þáttökugjald er kr. 20.000,- Tilkynna skal þátttöku sem fyrst og eigi síðar en 8. mars til Hollustuverndar ríkisins á sérstökum umsóknareyðublaði. Umsóknareyðublað og dagskrá námskeiðsins má finna á heimasíðu Hollustuverndar ríkisins, www.hollver.is Athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður og verða þeir skráðir inn eftir tímaröð umsókna. Nánari upplýsingar eru veittar hjá Hollustuvernd ríkisins í síma 585 1000. Hollustuvernd ríkisins Rannsóknastofnun iandbúnaðarins Vinnueftirlit ríkisins Fiat 88 95 4WD-Árg. 1993 ALÖ 640 moksturstæki Listaverð: kr. 1.600.000,-* Fermec 860 traktorsgrafa Árgerð 1995 Listaverð: kr. 2.950.000,-* Krone 125 rúllubindivél Árg. 1996 Listaverð: kr. 750.000,-* Roco Dowdeswell 825, árg.’96 Dragtengd, barkastýri. Listaverð: kr. 620.000,-* Verðkr. 1.390.000,-* Afsláttur kr. 210.000,- Verð kr. 680.000,-* Afsláttur kr. 70.000,- Verð kr. 490.000,-* Áfsláttur kr. 130.000,- Lanser Boss lyftari - árg. ‘87 2,5t, gámagengur. Listaverð: kr. 600.000,-* Verð kr. 400.000,-* Afsláttur kr. 200.000,- MF 60HX traktorsgrafa með skot- bómu og opnanlegri framskóflu. Listaverð: kr. 1.600.000,-* Listaverð: kr. 1.600.000, Welger RP 200 rúllubindivél Árgerð 1993 Listaverð: kr. 750.000,-* Verð kr. 500.000,-* Afsláttur kr. 250.000,- Massey Ferguson 390T, árg.’96 4WD -Trima 1695. Listaverð: kr. 2.500.000,-* Fleíri vélar á tilboðsverði * öll verð eru án vsk. Case IH 695 XL. Árg. 1991 Listaverð: kr. 1.100.000,-* Verð kr. 950.000,-* Afsláttur kr. 150.000,- Case 4240 - Árgerð 1996 Vetö ámoksturstæki Listaverð: kr. 2.400.-* Verð kr. 2.000.000,-’ Afsláttur kr. 400.000,- Fendt Favorit 510C. Árg. ‘96 Trima 840 Listaverð: kr. 3.550.000,-* Verð kr. 3.400.000,-* Afsláttur kr. 150.000,- Afsláttur kr. 450.000,- JCB 820 skurðgrafa. Árgerð 1989. Listaverð: kr. 2.450.000,-* Ingvar Helgason hf. Sxvarhöfða 2, Sími 525 8070, Fax: 587 9577, www.ih.is, Véladeild Geiturnar koma þegar kallað er „Eg geri geiturnar hændar að mér með því að gefa þeim brauð. I það eru þær mjög sólgnar. Með þessu get ég kallað á þær heim þegar ég vil ef þær eru í kallfæri. En þær fara yfirleitt ekki langt, halda sig mest í fjallinu hér fyrir ofan á sumrin. Það heyrir til undan- tekninga ef þær fara í annarra land,“ sagði Ásdís Sveinbjörns- dóttir bóndi á Ljótsstöðum í Unadal í Skagafirði þegar tíð- indamaður blaðsins spurði hana út í geitabúskapinn á dögunum. Ásdís og maður hennar Trausti Fjólmundsson hafa verið með um og yfir 20 geitur í liðlega 20 ár. Auk þess eru þau með 70-80 kindur. Ásdís segir að geiturnar haldi sig alveg frá kindunum. Á sumrin eru þær í tveimur til þremur hópum og halda sig mest í fjallshlíðinni sem er talsvert kjarri vaxin, en sækjast ekki eftir að vera í túninu. I rigningu koma geiturnar heim og vilja þá komast inn í hús. Þær fara yfirleitt seinna út á vorin en kindurnar, sérstaklega ef vætu- tíð er. Ásdís tekur ekki hafurinn úr geitunum og því hefst burður snemma, oftast í byrjun mars en í ár voru þó kiðlingar um mánuði fyrr á ferðinni. Geiturnar eru frjó- samar, 70-80% þeirra eiga tvö kið og einu sinni hafa komið þrjú úr einni. Ásdís er í Geitfjárfélagi ís- lands og heldur skýrslur, en það er grundvöllur fyrir að fá styrk frá Bændasamtökum íslands. Það eru helstu tekjumar af geitunum því að kjötið er í lágu verði. Ásdís segist slátra öllum sínum geitum í sláturhúsi og sjá sjálf um sölu á kjötinu. Hún segir að flestir sem smakka kjöt af kiðum séu hrifnir af því og þarna sé í raun um algera villibráð að ræða því að geitur forðist að ganga á ræktuðu landi. Samt sé eftirspurn fremur lítil en hún virðist þó aðeins fara vaxandi. „Mér finnst þessi grey vera skemmtileg húsdýr þrátt fyrir að þau séu stundum með óknytti. Þær hafa t.d. ánægju af að setja hornin í heyrúllurnar og geta verið frekar ef sá gállinn er á þeim. Það þarf hins vegar lítið fyrir þeim að hafa hér. Þær ganga á afmörkuðu svæði yfir sumarið, þvælast ekkert fram í afréttina og koma aldrei með fénu þegar það er rekið inn á haustin. Þær eru líka hafðar meira fyrir ánægjuna en að það sé mikill hagnaður af þessu,“ sagði Ásdís Sveinbjömsdóttir./ÖÞ. Fundurmeð formðnnum aOildarfélaga LS Fundur með formönnum aðildarfélaga Landssamtaka sauðfjárbænda verður hald- inn mánudaginn 5. mars nk í Bændahöllinni v/Hagatorg og hefst fundurinn kl. 13.00. Á fundinum verður m.a. rætt um stað og stund næsta aðalfundar LS. Þá verður fjallað um framkvæmd sauðfjársamnings og verka- skiptasamning LS og BÍ.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.