Bændablaðið - 27.02.2001, Qupperneq 20
20
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 27. febrúar 2001
VMipli otj atvinnulíf
Umsjón
Erna Bjarnadóttir
Kvótann burt!
Álag á sumarslátrun
Sumarið 2001 verður greitt álag á dilkaslátrun samkvæmt eftirfarandi töflu. Einungis
verður greitt út á kjöt sem selt er ófrosið.
Tímabil Kr. pr. dilk Tímabil Kr. pr. dilk
Júní - 7. júlí 1000 5. - 11. áqúst 500
8.-14. júlí 900 12.-18. áqúst 400
15. -21. júlf 800 19. - 25. áqúst 300
22. - 28. júlí 700 26. áqúst -1. sept. 200
30. júlí - 4. ágúst 600 2. - 7. september 100
Bændasamtök íslands hafa samið við Landssamtök
sláturleyfishafa um framkvæmd greiðslu álagsins.
Geymslupld
til bænda
Bændur sem geyma dilka og
slátra þeim frá 1. nóvember
2000 til 31. maí 2001 til fersk-
kjötsölu skulu fá geymslugjald
sem svarar kr. 11,00 á framleitt
kg og að auki kr 3,00 á kg fyrir
hvern byrjaðan mánuð frá og
með nóvember til sláturmánað-
ar. Greitt er framleiðslu í gæða-
flokkum sem falla undir hold-
fyllingarflokka E, U, R og O og
fituflokka 1, 2, 3 og 3+. Greiðsl-
ur þessar skulu reiknaðar út
fyrir hvern mánuð fyrir sig sam-
kvæmt greinargerð frá afurða-
stöðvum um slátrun einstakra
bænda og hafa Bændasamtök
Islands samið við Landssamtök
sláturleyfishafa um að annast
framkvæmdina. Gjalddagi er í
síðasta lagi í fjórða mánuði eftir
framleiðslumánuð.
Á ráðunautafundi sem haldinn
var í byrjun febrúar vakti er-
indi Jóhannesar Torfasonar á
Torfalæk mikla athygli. Hann
lagði til að kvótakerfi í
mjólkurframleiðslu yrði af-
numið. Kalt vatn hefur eflaust
runnið milli skinns og hörunds
þeirra sem hafa skuldsett sig
verulega á síðustu tveimur til
þremur árum við kvótakaup og
endurnýjun á aðstöðu. Hvað
felst í kröfu sem þessari, hverj-
ar eru forsendur hennar og
hverjar yrðu afleiðingarnar af
því að verða við henni?
Segja má að kvótakerfi frysti
framleiðslumynstur (stærð og
fjölda búa) á tilteknum tíma og
leggi hömlur á möguleika bænda
til að aðlaga rekstur sinn tækni-
framförum sem bjóða upp á
stækkun búa og hagræðingu í
rekstri. Við þessu hefur verið
brugðist með því að leyfa aðila-
skipti að greiðslumarki. Því hefur
þó fylgt mikið fjármagn út úr
búgreininni með tilheyrandi
skuldsetningu þeirra búa sem
áfram eru í rekstri. Auk þess má
gera ráð fyrir að innleiðing
nýrrar tækni og hagræðing gangi
hægar fyrir sig en ella, þar sem
fyrst þarf jú að tryggja fram-
leiðslumöguleika með kvóta-
kaupum. Meðalkúabú nú hefur
um 100.000 ltr. greiðslumark og
til að ná stærð verðlagsgrund-
vallarbús þarf að kaupa 88.000
ltr. kvóta sem kostar milli 18 og
20 milljónir kr. Miðað við tíu ára
jafngreiðslulán, fjórar afborganir
á ári og 16% vexti (sem er nærri
meðalútlánsvöxtum
óverðtryggðra lána á sl. ári) eru
árlegar greiðslur í vexti og af-
borganir ríflega 3,6 eða um 41
kr/ltr. Að teknu tilliti til
verðbólgu væru vextir lægri en á
móti kemur að óvíst er að núver-
andi hlutfall milli mjólkurverðs
og kostnaðar haldist óbreytt. Ef
breytilegur kostnaður er 27 kr/ltr.
eru þrjár krónur eftir til að borga
laun og fastan kostnað. Þótt ein-
hver bú geti reiknað sér skatta-
legt hagræði fyrstu fimm árin
meðan verið er að færa niður
kaupverð greiðslumarks, þarf
tæpast fleiri vitnanna við um að
dæmið gengur ekki upp fyrir
greinina í heild.
Hvaða ókostir eru þá við
afnám kvótakerfis? Flestum detta
eflaust beingreiðslur fyrst í hug.
Þar sem hér er um nokkuð
séríslenska aðferð að ræða mætti
eflaust finna aðrar leiðir til að
skipta þeim fjármunum sem eru
til ráðstöfunar. Offramleiðsla er
það næsta en ekki er ólíklegt að
ónýtt framleiðslugeta í dag sé
fimm til tíu milljónir lítra. Þriðja
og eflaust sársaukafyllsta hliðar-
verkunin eru fjárhagslegar af-
leiðingar gagnvart þeim sem
keypt hafa greiðslumark á sl.
árum. Með þessu væri greiðslu-
mark gengisfellt og þar með
lækkaði veðhæfi jarða með
greiðslumark í mjólk. I mörgum
tilfellum myndi því skorta veð
fyrir því sem þegar er áhvílandi
og verulegar takmarkanir yrðu á
möguleikum til að fjármagna
framkvæmdir með nýjum
veðlánum.
Dæmið hér að ofan sýnir hins
vegar að þessi búgrein er í
öngstræti þegar horft er á mögu-
leikar hennar til endurnýjunar.
Finna þarf leið sem getur gert
mjólkurframleiðslu hæfa til að
takast á við krefjandi rekstrarum-
hverfi á komandi árum. Full þörf
er því á að taka varnaðarorð
Jóhannesar alvarlega og spyrja
hvort við getum haldið núverandi
fyrirkomulagi á framleiðslustjórn
óbreyttu, kostnaðar vegna. Verði
niðurstaðan neikvæð, eins og
Jóhannes færir rök fyrir, þarf að
taka ákvörðun utn breytingar
með góðum fyrirvara.
Jan-01 Nov-00 Feb-00 Breyting frá fyrra tímabili, % Hlutdeild %
Framleiðsla 2000 Jan-01 Jan-01 January '00 3 mán. 12 mán. m.v. 12 mán.
Alifuglakjöt 296,864 770,071 3,043,932 -2.3 -5.9 -1.6 13.6%
Hrossakjöt 124,601 533,512 1,117,905 16.5 7.9 2.6 5.0%
Kindakjöt* 4,215 573,838 9,689,705 41.3 23.6 12.1 43.4%
Nautgripakjöt 315,242 875,868 3,646,572 6.8 -2.5 -0.2 16.3%
Svínakjöt 337,642 1,293,753 4,845,885 23.0 7.4 2.7 21.7%
Samtals kjöt 1,078,564 4,047,042 22,343,999 9.7 4.3 5.4
Innvegin mjólk 9,830,484 27,347,799 104,404,274 4.0 1.3 -2.6
Sala innanlands
Alifuglakjöt 316,386 837,738 3,226,607 2.1 11.3 7.8 16.4%
Hrossakjöt 94,147 249,690 715,420 80.5 23.0 31.2 3.6%
Kindakjöt 484,081 1,714,260 7,229,523 4.5 10.3 4.3 36.8%
Nautgripakjöt 306,108 859,553 3,636,449 5.4 -3.5 -1.4 18.5%
Svínakjöt 337,638 1,317,042 4,860,789 26.2 7.3 3.0 24.7%
Samtals kjöt 1,538,360 4,978,283 19,668,788 11.2 7.6 4.2
Umreiknuð mjólk Umr. m.v. fitu 7,377,664 25,676,373 98,151,920 2.5 -1.0 -0.6
Umr. m.v. prótein 9,167,352 26,670,968 106,675,883 8.2 2.6 2.9
‘Kindakjöt lagt inn sankv. útflutningsskyldu sem flutt skal á erlenda markaði er meðtalið í framangreindri framleiðslu.
“Sala mjólkur og mjólkuafurða umreiknuð á fitugrunni með leiðréttum stuðlum Samtaka afurðast.í mjólkuriðnaði frá því í september 1998.
Góð sala var á kjöt- og
mjólkurvörum í janúar.
Heildarsala á kjöti var 11,2%
meiri en í sama mánuði í
fyrra og jókst sala í öllum
kjöttegundum. Hlutfallslega
er hrossakjöt hástökkvari
mánaðarins með 80%
söluaukningu. Sala á
svínakjöti jókst um 26%. Þá
leynir sér ekki að íslenskir
neytendur treysta
nautgripakjöti hér og láta
ekki umræðu um vandamál
því tengd erlendis trufla
mnkaup sín, því að sala þess
jókst um 5,4% m.v. sama
mánuð í fyrra.
Heildáiframleiðsla á kjöti
var 9,7% meiri nú en í sama
mánuði í fyrra og á
ársgrundvelli nemur
aukningin 5,4% en heildar-
söluaukning á sama tíma er
4,2%. Það virðist því vera
umhugsunarefni hvert stefnir
með framboð, borið saman
við vöxt innanlandsmarkaðar,
sem er jú langmikilvægastur
og sá eini fynr þrjár kjötteg-
undanna. Síðustu 12 mánuði
hafa verið flutt út samtals um
1.680 kg. af kinda- og
hrossakjöti. Framleiðsla
umfram sölu innanlands auk
útflutnings síðustu 12 mánuði
nemur því um 2.000 tonnum.
Sala á mjólkurvörum var
einnig góð og nemur
heildarsöluaukning á
próteingrunni sl. 12 mánuði
tæplega 3%. Eftir að hægt
var á mjólkurframleiðslu um
mitt síðasta ár kemur janúar
nú með 4% aukningu miðað
við sama mánuð í iyrra.