Bændablaðið - 29.01.2002, Side 8
8
BÆNDABLAÐIÐ
Þriójudagur 29. janúar 2002
Fegurðardísir í fjósinu í Hlíð í Gnúpverjahreppi.
Framleiösla og sala 0 húvörum 2001
Samkvæmt bráðabirgðatölum nam sala á kjöti alls
um 19.734 tonnum á sl. ári sem er 2% aukning frá
fyrra ári. Athygli vekur mjög aukin sala á
alifuglakjöti, um 14,8%, og svínakjöti uin 9,1%. Hins
vegar var talsverður samdráttur í sölu á kindakjöti eða
um 5,7% og nautgripakjöti um 4,2%. Þó aukin
heildarsala á kjöti sé vissulega jákvæð er þessi
samdráttur í nautgripa- og kindakjöti vonbrigði fyrir
þennan hóp ffamleiðenda. Frá 1978 er aðeins eitt ár,
1997, sem sala á kindakjöti hefur verið minni og eins
þarf að fara aftur til ársins 1997 til að finna minni sölu
á nautgripakjöti.
Framleiðsla kjöts á síðasta ári nam alls 22.142
tonnum og dróst saman um 0,7% frá fyrra ári. Munar
þar mestu um minni kindakjötsframleiðslu, sem var
með mesta móti árið 2000 bæði vegna fækkunar fjár
og að dilkar voru með þyngra móti. Framleiðsla á
alifugla- og svínakjöti hefur eðlilega aukist í takt við
aukna sölu.
Mjólkurframleiðsla var alls 106,1 miilj. lítra, 2%
meiri en árið 2000. Ema segir að sala mjólkurvara
miðað við próteininnihald fari stöðugt vaxandi og
nam aukningin 3,5% á síðasta ári. Þessi aukning
kemur mest til að aukinni sölu á skyri og ostum, en
sala á skyri jókst um 31% á siðasta ári. Samdráttur er
hins vegar þegar litið er á söluna á fítugrunni sem
þýðir að flytja verður vaxandi magn úr landi í formi
smjörs.
Yfirlit um framleiðslu og sölu búvara
Bráðabirgðatölur fyrir desember 2001
Breyting frá fyrra tímabili í % Des. 00 3 mán. 12 mán.
Framleiðsla Des-01 2001 Okt.-01 Des.-01 Jan. 01 Des.-01 Hlutdeild i % m.v.12 mán.
Alifuglakjöt 254,640 871,172 3,777,995 23.4 19.0 23.8 17.1%
Hrossakjöt 114,231 398,256 1,047,719 -22.4 -22.6 -4.8 4.7%
Kindakjöt* 106,627 5,464,334 8,611,817 -10.4 -12.0 -11.5 38.9%
Nautgripakjöt 200,838 785,460 3,476,097 -23.9 -8.5 -4.1 15.7%
Svínakjöt 476,992 1,437,244 5,228,818 -1.1 1.1 9.3 23.6%
Samtals kjöt 1,153,328 8,956,466 22,142,446 -5.4 -8.0 -0.7
Innvegin mjólk 9,248,767 25,566,302 106,149,593 0.5 0.7 2.0
Sala innanlands
Alifuglakjöt** 231,428 872,388 3,695,223 -2.1 14.4 14.8 18.7%
Hrossakjöt 29,341 136,562 520,239 -10.7 -15.9 7.1 2.6%
Kindakjöt 400,047 1,811,536 6,824,976 -43.1 -12.6 -5.7 34.6%
Nautgripakjöt 191,227 763,529 3,467,248 -21.7 -10.6 -4.2 17.6%
Svínakjöt 489,264 1,440,798 5,226,075 0.9 1.1 9.1 26.5%
Samtals kjöt 1,341,307 5,024,813 19,733,761 -21.2 -4.7 2.0
Umreiknuð mjólk Umr. m.v. fitu 8,837,943 26,519,519 98,225,242 -10.2 0.3 -0.9
Umr. m.v. prótein 8,451,480 27,464,516 107,972,717 0.8 5.3 3.5
* Kindakjöt lagt inn samkv. útflutningsskyldu sem flutt skal á erlenda markaði er meðtalið í framangreindri framleiðslu.
-i — tr Z=± i 1 nt^wrini^ |.[" fil-Jq-.-i ha
Verðhækkanir svipaðar gengisþróun
síðastliðna 18 mánuði
Búvttrur fiækka
minna en nær nllir
nðrir vttruflokkar
Innfluttar mat- og drykkjar-
vörur hafa hækkað um 28,5% á
síðastliðnum 18 mánuðum en
gengisfall krónunnar var 26,1% á
sama tímabili, segir í Morgunkomi
á heimasíðu Kaupþings þann 18.
janúar sl.
"Fjömgar umræður um verð-
lagsþróun hafa sprottið upp hér á
landi frá því að vísitala neyslu-
verðs birtist á mánudag. Þar vakti
óneitanlega athygli að verðlag
hækkaði mun meira en markaðs-
aðilar höfðu gert ráð fyrir og hefur
þessi þróun orðið tilefhi til mikillar
umljöllunar í fjölmiðlum," segir
Kaupþing.
Síðar segir: "Mikla athygli
vakti og að verðhækkanir á mat-
og drykkjarvörum höfðu 0,56%
áhrif til hækkunar neysluverðs. Þá
hefur umræðan um vínberin verið
til að æra óstöðugan, en í neyslu-
verðsvísitölunni er málið einfalt,
gífurleg hækkun á tiltölulega
léttvægum hlut getur haft sömu
áhrif og lítil breyting á mikils-
verðum þætti vísitölunnar."
"..Því hefur hins vegar verið
haldið fram að matvara hafi
hækkað óeðlilega mikið miðað við
skráð gengi krónu. Þegar gengis-
þróun er skoðuð til eins árs virðist
þetta eiga við nokkur rök að
styðjast, enda hafa innfluttar mat-
og drykkjarvörur hækkað um
27,7% á síðustu 12 mánuðum á
meðan króna hefur aðeins lækkað
um 15,7%. Af þessu mætti draga
þá ályktun að kaupmenn hafi séð
sér leik á borði og hækkað umfram
veikingu krónunnar.
Þegar þessi þróun er skoðuð 18
mánuði aftur í tímann kemur allt
Verðbreytingar
Gengisbreyting
Búvörur án grænmetis
Grænmeti
Aðrar innlendar mat-
og drykkjarvörur
Aðrar innlendar vörur
Innfluttar mat- og drykkjarvörur
Nýr bíll og varahlutir
Bensín
Innfluttar vörur aðrar
Áfengi og tóbak
Húsnæði
Opinber þjónusta
Önnur þjónusta
Vísitala neysluverðs
önnur mynd fram. Á þessum tírna
hafa alíar innfluttar mat- og
drykkjarvörur hækkað urn 28,5%
eða svipað og gengisfall krónunn-
ar yfír sama tímabil sem var
26,1%. Þetta er í raun hægt að
túlka sem svo að kaupmenn hafi
reynt að halda verði stöðugu á
síðari helmingi ársins 2000 þegar
krónan féll rétt um 10%," segir
loks í Morgunkomi á heimasíðu
Kaupþings.
Á þeim tíma sem Kaupþings-
menn skoða verðþróunina, þ.e.
síðustu 18 mánuði, sést glöggt að
búvömr hafa hækkað minna en
nær allir aðrir vömflokkar. Má
sem dæmi neffia að á þessum tíma
hafa bæði egg og nautakjöt,
lækkað í verði til framleiðenda og
dilkakjöt hækkað minna en sem
nemur breytingum á vísitölu
neysluverðs.
Þá má geta þess að síðustu
18 mánuði hefur launavísitala
Hagstofú íslands hækkað um
10,9%.
12 mán. 18 mán. Vægi í
breyting breyting vísitölu
15,7% 26,1%
6,3% 8,1% 6,4%
14,9% 6,4% 0,9%
14,6% 14,6% 6,8%
8,1% 12,8% 4,8%
27,7% 28,5% 3,6%
14,8% 17,3% 9,9%
0,5% -5,9% 4,3%
8,7% 7,5% 14,4%
13,0% 15,0% 3,4%
6,4% 8,9% 13,7%
6,4% 8,4% 12,0%
9,6% 12,3% 19,9%
9,4% 10,7% 100,0%
Heimild: Kaupþing
Landbúnaðarráðherra hefur skipað stjórn Hagþjónustu
landbúnaðarins fyrir tímabilið 2001-2005 samkvæmt erindi dags.
23. nóvember 2001. Stjórnina skipa: Þórður Friðjónsson forstjóri
Þjóðhagsstofnunar, formaður; Ríkharð Brynjólfsson prófessor
við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, varaformaöur;
Hallgrímur Snorrason hagstofustjóri og Gunnar Guðmundsson
forstöðumaður ráðgjafarsviðs Bændasamtaka íslands.
Varafulltrúar eru: Sigurður Guðmundsson forstöðumaður
byggðaþróunarmála hjá Þjóðhagsstofnun; Magnús B. Jónsson
rektor Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri; Eiríkur Hilmarsson
staðgengill hagstofustjóra og Sólrún Ólafsdóttir bóndi,
stjórnarmaður í Bændasamtökum íslands. Stjórnin kom saman
til síns fyrsta fundar þann 14. desember 2001.