Bændablaðið - 29.01.2002, Síða 20

Bændablaðið - 29.01.2002, Síða 20
20 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur 29. janúar 2002 Jarúvimla íþarrabyriaa! Tíðin í vetur hefur leikið við bændur eins og flestum er kunnugt og þó oft hafi verið snjóiétt í janúar er það ekki á hverju ári sem hægt er að stunda jarðvinnslu í frostlausri jörð í þorrabyrjun . Hér má sjá Bessa verktaka í Hofsstaðaseli við uppgröft úr skurðum í Vallhólmi í Skagafirði en Eyjólfur Sveinsson á Sauðárkróki ýtti út jafnóðum./Mynd: Gunnar Rögnvaldsson. Drekklu mjólkog verlu grannur! Tvö glös af mjólk, tvær ostsneiðar og einn diskur af skyri, þessi dagskammtur ætti að hjálpa til við að halda vigtinni í skefjum. Að sögn næringarfræðingsins Áse Moberg hjá Mjölkfrámjandet í Svíþjóð, sýna nýjustu rannsóknir að því meiri mjólkurmatar sem fólk neytir, þeim mun auðveldara á það með að halda kjörþyngd. Því ættu þeir sem hafa það að markmiði að vera of þungir að halda sig frá kalsíumríku fæði eins og mjólkurvörum, segir Ása Moberg. Rannsóknimar sýna að kalsíum hindrar vöxt á fituvef, vöxtur hans eykst eftir því sem minna er af kalsíum í fæðu fólks. Ame Astmp, deildarstjóri á næringarfræðideild Landbúnaðar- háskólans í Kaupmannahöfn, segir þessar niðurstöður afar merkilegar og að rannsóknimar varpi nýju ljósi á samhengi mjólkumeyslu og holdafars. Hann segir að í ljósi þessa verði aukin áhersla lögð á rannsóknir á samhengi kalsíum- neyslu og þyngdar fólks. /BHB, þýtt og staðfært úr Landsbladet, 4.1.2002. Annað bindi ByggjMgu Skagaiarflar konii út ÍJt er komið 2. bindi Byggðasögu Skagafjarðar og er bókin rúmar 500 blaðsíður að stærð, í stóru broti og prýdd fjölda mynda. í henni er fjallað um Staðarhrepp og Seyluhrepp. Aðalhöfundur og ritstjóri Byggðasögu Skaga- fjarðar er Hjalti Pálsson sagn- fræðingur frá Hofí í Hjaltadal. Hann sagði í samtali við Bænda- blaðiö að gert væri ráð fyrir að ritverkið yrði sjö bindi, alls um 3 þúsund blaðsíður, þannig að mikið verk er óunnið en undir- búningur hófst árið 1995. Hjalti sagði að eftir aö hafist var handa árið 1995 hafi tvö fyrstu árin farið í heimildaöflun en skriftir hafist 1997 og kom 1. bindið út 1999. Fjórir aðilar fjármagna verkið en það.pru sveitarfélagið Skagaíjörður ásamt Akrahreppi, Kaupfélag Skagfirðinga, Búnaðar- samband Skagfirðinga og Sögufélag Skagílrðinga, sem sér um útgáfuna í samvinnu við útgáfunefnd Byggðasögunnar. Heimsœkir hverja jörð Hjalti segist víóa hafa leitaö fanga við efnisöflun og þá sérstak- lega í prentuðum heimildum, bókum, blöðum og tímaritum. Einnig segist hann nota mikið af óprentuðum heimildum sem er að finna í öflugu héraðsskjalasafni á Sauðárkróki. Hann segist einnig leita fanga á Þjóðskjalasafninu. En síðast en ekki síst segist Hjalti fara í heimsókn á hverja einustu jörð í Skagafirði og oft á sumar þeirra. „Ég þarf að skrifa um hverja einustu jörð og það er landlýsing á þeim öllum, lýsing á stöðum og ýmsum ömefnum sem eiga sér ein- hverja sögu. Þetta þarf ég allt að skoða því mér fmnst ég ekki geta skrifað um staði að neinu viti, nema ég hafi séð þá áður. Þessar vettvangsferðir, sem ég kalla svo, eru mikils virði fyrir þetta rit því m.a. ræði ég við ábúendur eða ein- hverja brottflutta sem þekkja þær jarðir sem komnar em í eyði. Og loks tek ég ljósmyndir í þessum ferðum," segir Hjalti. Auk hans vinnur að þessu mikla ritverki Hjalti Pálsson. Egill Bjamason, ráðunautur í Skagafirði, og hefur hann komið að verkinu frá fyrstu tíð. Hann vinnur ákveðna verkþætti. Hinn gullni meðalvegur Hjalti segir að efnistök séu þannig að fyrst komi landlýsing á hverri jörð og síðan taldar byggingar. Næst sé tekið fyrir eignarhald hennar, enda þótt ekki sé alltaf hægt að rekja það nákvæmlega nema síðustu öldina. Þá koma gamlar jarðalýsingar úr jarðabók Arna Magnússonar og svo yngri lýsingar á jörðunum. Síðan tekur við ýmis konar sögu- legur fróðleikur frá jörðinni. Þessir þættir em alveg fastir á hverri jörð. Þá segist Hjalti leyfa sér að lengja bækumar nokkuð með innskots- greinum. Loks er ábúendatal hverrar jarðar frá 1781-2000 og byggir það á Jarða- og búendatali í Skagaftrði 1781-1958 sem gefið var út í nokkmm heftum á árunum 1949-1958. „Ég tel þetta skipta sköpum til að gera bókina áhugaverða. Þama verð ég að reyna að sigla þann meðalveg að vinna bækumar eftir fræðilegri nákvæmni og jafnframt að gera þær áhugaverðar þannig að fólk vilji kaupa bækumar og lesa. Þessar innskotsgreinar em margar skemmtilegar og brjóta nokkuð upp efnið og allar tengjast þær jörðunum. Þama er um að ræða þjóðsögur, vísur, frásagnir af körlum og kerlingum og at- burðum," segir Hjalti. Staðsetningartœkni tekin í notkun Hann segist leita af mikilli þráhyggju uppi öll fombýli og sel, sem tilheyra jörðunum. Það segir hann vera gríðarlega tímafrekt enda þurfi hann að fara um dali og fjöll til að berja þau augum. Hann segir ekki nóg fyrir sig að heyra um þau, hann verði að koma á staðinn. Bæði til að geta lýst staðnum og það sem meira er um vert, að staðsetja býlin og selin. „Nú staðset ég þau með GPS staðsetningartæki og birti síðan hnitið í bókunum. Það þýðir að hver sem er getur fundið þessa staði jafnvel þótt engin ummerki sé þar lengur að finna um búsetu. I stað þess að reyna að lýsa því í löngu mál hvar selin eða fombýlin séu, þá gef ég lauslega lýsingu og síðan gef ég upp staðsetninguna og þar með er þessari vitneskju bjargað og þarf ekki að leita þeirra framar. En samt sé ég það æ betur að það hefði þurft að byrja á verkinu 20 til 30 árum fyrr til að ná tali af fólki af aldamóta- kynslóðinni þvi nú er svo margt af því fólki horfið sem var í sterkustum tengslum við landið. Staðreyndin er sú að í nokkmm tilfellum vita menn ekki lengur hvar selin eða fombýlin voru staðsett. Sú vitneskja er týnd. Ég hef í fáeinum tilfellum fundið minjar um slíka staði sem enginn vissi urn og enginn veit lengur nafnið á. Ég hef lagt rnikla vinnu í að leita að seljurn upp til fjalla, sem menn vissu að höfðu verið til. En vegna GPS staðsetningartækis- ins þarf ekki að leita að þessum stöðum aftur, hafi ég á annað borð fundið þá. í 1. bindinu var kerfið dálítið mglað þannig að stað- setningarskekkjan er einhverjir tugir metra en frá 1. maí 2000 var skekkjan tekin af og kerfið er óruglað og nákvæmnin upp á 2-5 metra. í sumum tilfellum voru fombýlin í túni á einhverjum bæ og búið að slétta yfir allt. I öðrum tilvikum hafa bændumir getað bent mér á hvar býlin stóðu og ég hef síðan staðsett þau með GPS staðsetningartækinu," segir Hjalti Pálsson. Á vegum norræna genbankans er komin út bók urn gömul norræn kartöfluafbrigði sem varðveitt em á vegum genbankans. Alls em þessi afbrigði 64 og er þeim öllum lýst i bókinni og litmyndir af blómum, spírum og hnýðum birtar. I bókinni eru einnig greinar um sögu kartöflunnar í heiminum og þá sérstaklega í Evrópu; Danmörku, Finnlandi, íslandi, Noregi og Svíþjóð. Loks er sagt frá kartöflukynbótum á Norður- löndununt og þeim aðferðum sem notaðar em til að meta helstu eiginleika afbrigða. Þrjú íslensk afbrigði em varðveitt í gen- bankanum; Bláar, Gular og Rauðar íslenskar. Gullauga er varðveitt sem norskt afbrigði. Frá Danmörku koma 9 afbrigði, 8 frá Finnlandi, 16 frá Noregi og 28 frá Svíþjóð. Texti er á norrænu máli, mest á dönsku, norsku og sænsku og samandregið yfirlit á finnsku og ensku. Bókin er unnin af norrænum vinnuhópi á vegum genbankans og sat Sigurgeir Olafsson þar fyrir Islands hönd. Hægt er að panta bókina hjá genbankanum: Nordisk genbank, Box 41, SE-230 53 Alnarp, Svíþjóð, eða á netinu www.ngb.se - news-The Potato Book. Gefið er upp verð er svarar til um 4000 kr. íslenskra á hinurn Norður- löndunum og ætti það að vera svipað hingað. Bókin er 230 síður, prýdd fjölda litmynda og er gefin út af CÁL-forlaget AB í Varberg í Svíþjóð. m'lori ,'íuieJirAnWoJjlTmma,'/ >lmcft MR FÓÐUR Fóðurafgreiðsla MR Sími: 5401111 • Fax: 5401101 --------------.igjn OOP.Þf: tA fe innurili nn'bnðivf

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.