Bændablaðið - 11.06.2002, Side 1
11. tölublað 8. árgangur Þriðjudagur 11. júní 2002 ISSN 1025-5621
ístex gengup
illa að selja ull
"Okkur hefur ekki tekist að
selja þær birgðir af ull sem stefnt
var að á árinu. Þess vegna sitjum
við uppi með mikið magn af ull og
nú er staðan sú að ístex á í
erfíðleikum með að gera upp við
bændur," sagði Guðjón Kristinson,
framkvæmdastjóri Istex í samtali
við Bændablaðið. "Ég sé ekki
fram á að ástandið breytist fyrr en
í haust. Bændur verða því að gera
ráð fyrir verulegum töfum á
greiðslum fyrir ullina." Nánar
verður fjallað um þetta mál á
heimasíðu Bændasamtakanna -
www.bondi.is - á þriðjudaginn.
Umtalsverð
sfiluaukning á
lambakjfiti
Umtalsverð aukmng varð í
sölu á lambakjöti bæði í mars
og apríl síðastliðnum. í mars
voru seld 649 tonn sem er
29,1 % aukning __ frá sama
mánuði í fyrra. I aprfl voru
seld 513 tonn sem er 24,3%
miðað við aprfl í fyrra. Nú er
grilltími íslendinga hafinn og
þá má búast við mikilii sölu á
lambakjöti eins og venjuiega.
Kjtítumboúió borgar
Dagana 21. - 24. maí greiddi
Kjötumboðið kröfuhöfum inn á
reikninga þeirra. Þeir sem áttu
kröfur að fjárhæð kr. 75.000
eða lægri, og þeir sem völdu
þann kost að taka eingreiðslu að
upphæð kr. 75.000, fengu þar
með endanlegt uppgjör frá
fyrirtækinu.
Þeir sem fá greitt í þrennu
lagi fengu nú 10% kröfu sinnar,
næsta greiðsla verður greidd um
miðjan ágúst og sú síðasta í
febrúar 2003. Þeir fá jafnframt
23% upphaflegrar kröfu sinnar í
hlutabréfum í Norðlenska mat-
borðinu ehf. Þar sem hér er um
rafræn hlutabréf að ræða, þurfa
þeir sem ekki nú þegar eiga
svonefndan VS reikning að stofna
slíkan hjá viðskiptabanka sínum
eða annarri fjármálastofnun.
Bréf um þessi hlutabréf eiga
að berast frá lögfræðingi Kjötum-
boðsins. Hafi einhverjir þeirra
sem veittu Bændasamtökunum
umboð til að fara með sín mál
ekki fengið greiðslu eru þeir
beðnir um að hafa samband sem
fyrst./JÓ
Sauðprbændur
með aðalfuud
Aðalfundur Landssam-
taka sauðfjárbænda verður
haidinn 24. og 25. júní nk. Að
þessu sinni verður fundurinn
haidinn á Hótel Bifröst í
Borgarfirði og verður settur
mánudaginn 24. júní kl 13.00.
|| í * ■
' P i SB H f- 'W ■ H
Síðdegis hvern virkan dag liggur þungur straumur hlaðinna flutningabíla frá Reykjavík.
Flutningskostnaður er þungur landsbyggðarskattur:
Níu þúsund kostar aö fly|ja
einn stúl ú núli landshlutal
Níu þúsund krónur kostar að flytja
hægindastól frá Reykjavík til Breiðdals-
víkur. Stóllinn kostaði 52 þúsund krónur í
verslun í Reykjavík. Þetta kom fram í
samtali Bbl. við Lárus Sigurðsson, bónda á
Gilsá í Breiðdal sem nefndi annað dæmi.
„Ég keypti áburðardreifara fyrir búið í
vor. Mér tókst að semja við mann um að
flytja hann austur fyrir þokkalega gott
verð. Dreifarinn er 240 kfló og það kostaði
8.500 að flytja hann austur að fengnum
þessum afslætti. Flutningskostnaður er
hrikalegur skattur á landsbyggðarfólkið og
hann er stöðugt að hækka," sagði Lárus
Sigurðsson.
Lœkka þarf þungaskattinn
Kostnaður við flutning rúlluplasts,
landleiðina frá Reykjavík til Egilsstaða, er kr.
27 á hvert kfló. Þá má geta þess að flug-
fargjald á milli þessara staða er komið yfir 20
þúsund. Þetta segir Aðalsteinn Jónsson, bóndi
í Klausturseli á Jökuldal. Hann segir að
flutningskostnaður á hvers konar vörum valdi
ótrúlegum aðstöðumun hjá landsbyggðarfólki
og sé þung skattbyrði.
„Ef menn eru að tala um að jafna aðstöðu
landsbyggðarfólks þá er lækkun flutnings-
kostnaðar einn af mikilvægustu þáttunum.
Það má lækka hann með því að taka til
skoðunar þungaskattinn á flutningabflunum.
Það hljóta allir að sjá að lækkun flutnings-
kostnaðar væri umtalsverð kjarabót fyrir fólk
úti á landi," sagði Aðalsteinn Jónsson.
Útflutningsgjaldið
í haust er leið varð mikill hvellur víða um
land, og eins á Alþingi, þegar skipafélögin
settu sérstakt útskipunargjald á vörur í strand-
flutningum. Þá lýsti Valgerður Sverrisdóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, því yfir að
þetta mál yrði að taka til skoðunar. Út-
skipunargjaldið er 1042 krónur á rúmmetra og
20 feta gámur er 26 rúmmetrar. Gjaldið fyrir
hann því 27.092 krónur og 40 feta gámur er
52 rúmmetrar og gjaldið fyrir hann því 54.184
krónur. Sama útskipunargjald er tekið fyrir
gáma með vörur til útflutnings.
Ef um er að ræða gámaflutning land-
leiðina kostar 157 þúsund krónur fyrir utan
vsk að flytja gám til Sauðárkróks, 195 þúsund
krónur til Húsavíkur og 269 þúsund krónur til
Þórshafnar. Þessar upplýsingar fengust hjá
Eimskip.
Nefnd fór í málið
Umræðumar á Alþingi urðu harðar þegar
útskipunargjaldið var sett á sl. haust. Sem fyrr
segir lýsti Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, því yfir að þetta væri
ósanngjam skattur á fólk og fyrirtæki á
landsbyggðinni og málið yrði að skoða.
„Það var einmitt í framhaldi af þessu sem
ríkisstjómin skipaði nefnd sem hefur unnið í
nokkra mánuði að því að fara ofan í alla þætti
þess sem flutningskostnaðurinn er. Starf
nefndarinnar mun nýtast mjög vel í fram-
haldinu vegna þess að byggðaáætlunin, sem
samþykkt var á Alþingi í vor, gengur meðal
annars út á það að fara ofan í starfsaðstæður
fyrirtækja á landsbyggðinni miðað við höfuð-
borgarsvæðið. Sú vinna er komin mjög langt
og mikið verið gert þótt ekki sé komin niður-
staða. Ég tel að málið sé komið í góðan farveg
en síðan á eftir að taka pólitískar ákvarðanir
um það hversu mikið verður aðhafst," sagði
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra.