Bændablaðið - 11.06.2002, Síða 10

Bændablaðið - 11.06.2002, Síða 10
10 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur ll.júní 2002 Sveinn Aðalsteinsson, skólameistari Garðyrkjuskóla ríkisins: Fyrir skömmu útskrifaði Garðyrkjuskóiinn 11 nemendur af blómaskreytingabraut, 7 af garð- og skógarplöntubraut, 15 af skrúð- garðyrkjubraut og 3 af ylræktarbraut, eða 36 nemendur alls. Margir nemendur náðu mjög góðum árangri. A blómaskreytingabraut náði bestum árangri Elísabet Halldórsdóttir með einkunnina 9,1, Anna Margrét Elíasdóttir var hæst á garð- og skógarplöntubraut með 8,9 í aðaleinkunn, Ágústa Erlingsdóttir var hæst á skrúðgarðyrkjubraut með einkunnina 8,6 og Arndís Eiðsdóttir er dúx skólans með ein- kunnina 9,2. Garðyrkjumiðstöðin er ekki sjálf- stæður lögaðili heldur nafn á sam- starfí sérfræðinga til þjónustu fyrir íslenska garðyrkju. Sérfræðingar garðyrkjumiðstöðvarinnar hafa í þessu samstarfí gefið umsagnir um hin ýmsu mál, staðið fyrir málstofum, skrifað greinar í blöð og tímarit, tekið að sér þjónustu- Glæsilegur útskriftarhópur. Tími breytinga í skólaslitaræðu sagði Sveinn að síðustu tvö árin hefðu verið tími mikilla breytinga í skólanum. „Skrifað var undir samning um opnun Garðyrkjumiðstöðvar ís- lands að Reykjum í október árið 2000, og rættist þá langþráður draumur garðyrkjustéttarinnar um eina þekkingarmiðstöð í garðyrkju í stað a.m.k. þriggja áður. Það voru Bændasamtök Islands og Samband garðyrkjubænda sem tóku höndum saman með Garðyrkjuskólanum um að mynda þessa miðstöð," sagði Sveinn. í kjölfar gildistöku samningsins fluttu garðyrkjuráðunautar Bænda- samtakanna, þeir _ Garðar R. Árnason og Magnús Á. Ágústsson, starfsemi sína að Reykjum sem og skrifstofa og framkvæmdastjóri Sambands garðyrkjubænda. Nú- verandi framkvæmdastjóri Sam- bands garðyrkjubænda er Haukur Sigurðsson. „Þetta samstarf er ný- mæli í íslenskum landbúnaði og starfið hingað til lofar mjög góðu. verkefni og margt fleira sem of langt mál yrði að telja upp hér. Garðyrkjuskólanum er gífurlegur styrkur af þessu starfi. Sér- fræðingar Bændasamtakanna hafa komið að kennslu og tilraunum við skólann og verið mikils metnir bæði af nemendum og samstarfs- mönnum sínum. Starfíð er spennandi tilraun sem hefur vakið verðskuldaða athygli, og ég leyfi mér að segja öfund starfsbræðra minna á Norðurlöndunum þar sem ég hef kynnt starfsemina. Garð- yrkjumiðstöðin er komin til að vera. Fyrsti áfangi byggingar til að hýsa þessa starfsemi var tekinn í notkun í október 2000 og vonir standa til að hægt verði ganga frá málinu í ár þannig að byggingin Ep hægt afi fá einkaleyfi á Feta nafninu? Grikkland hefur sótt um einkaleyfí á því að nota Feta nafnið á osta og ef af verður (sem allt bendir til) má eingöngu nota geita- eða sauðfjármjólk í ostagerðina. Búist er við hörðum viðbrögðum frá öðrum löndum sem hafa framleitt ostana með hreinni kúamjólk eða mjólkurblöndum. Samkvæmt rannsóknum sem gerðar hafa verið í Þýskalandi og Danmörku hafa sjálfír Grikkirnir átt erfítt með að halda sjálfír eigin viðmið og innihalda hinir sk. grísku Feta-ostar bæði kúamjólk og plöntuolíur. Þannig féll um helmingur rannsakaðra grískra Feta-osta í þýsku rannsókninni og myndu samkvæmt ofansögðu því ekki mega heita Feta-ostar! Heimild: MaskinBIadet Online, 3.6.02/SS geti risið næsta ár. Annars er hætt við að þessi lofsverða tilraun til aukinnar þjónustu við atvinnu- greinina renni út í sandinn og samstarfsaðilarnir kippi að sér áður útréttri hendi. Málið er það alvarlegt að stjórnvöld verða að liðsinna þessu verkefni af fullum þunga," sagði skólameistari. Ný háskólabraut Garðyrkjuskólinn starfar sam- kvæmt nýjum lögum um búnaðar- fræðslu. „Þar er viðurkennt rann- sóknahlutverk skólans og heimild til að stofna til kennslu á háskóla- stigi auk fjölda annarra nýmæla. Sl. sumar var námskrá nýrrar háskólabrautar í garðyrkjufram- leiðslu samþykkt, en hún er skipu- lögð í samvinnu við líffræðiskor Háskóla Islands samkvæmt sér- stöku samkomulagi við háskólann. Vonir standa til að hægt verði að hefja kennslu í haust á þessari braut." Sveinn sagði ýmsar breytingar framundan. „Eftir miklar umræður í stjómsýslunni hefur náðst sátt um að stefna að reglugerð um sveins- próf í garðyrkju, til að byrja með á garð- og skógarplöntubraut en síðar vonandi á fleiri náms- brautum. Hér skiptir meginmáli að vilji skólans og stéttarinnar hefur verið skýr. Endurskoðuð námsskrá fyrir starfsmenntabrautir skólans tekur gildi í haust og nám á blóma- skreytingabraut hefur verið lengt í 4 annir frá og með haustinu. Nýtt verknámshús skrúðgarðyrkjunnar var tekið í notkun í janúar 2001 og hefur gjörbreytt allri aðstöðu til verklegrar kennslu. Einnig verður boðið upp á fjamám á 4 brautum skólans frá og með næsta hausti á þeim hraða sem hentar nemendum, og er það nýmæli sem ég vona að mælist vel fyrir." Endurmenntun skógarbœnda í máli skólameistara kom fram að í fyrra hefði verið ritað undir samning um endurmenntun skógar- bænda á Suðurlandi. Námið, Grænni skógar á Suðurlandi, stendur yfir í 3 ár og er metið til eininga við Garðyrkjuskólann. Ný- lega var svipuð námsleið tryggð fyrir norðlenska skógarbændur með þátttöku sömu aðila og á Suðuriandi. í stað Suðurlands- skóga taka Norðurlandsskógar, hliðstætt landshlutabundið skóg- ræktarverkefni, þátt í verkefninu. í tengslum við þetta nám var skrifað undir samninga við skógræktar- skóla í Noregi og Svíþjóð sem tryggja íslenskum skógarbændum aðgang að fræðslu í þessum höfuð- vígjum skógræktar á Norður- löndunum. Dekk meö slöngu Fyrir heyvinnuvélar Margar stærbir Skeifan 2 • 108 Reykjavík S. 530 5900 • Fax 530 5911 www.poulsen.is Amerfsk gæða framleidsla t £i va 30-450 Iftrar Umboðs- menn um land allt RAFVORUR ARMUll 5 • RVK • SIMI 568 6411 Meúhiiiiilliiii ájúgur- búlgu rnú sýklalyúimi Arangur Meðhöndlun á júgurbólgu með sýklalyfjum skilar því miður oft ekki þeim árangri sem vænst er, en fullkomin iækning er þó alls ekki útilokuð. Lykillinn að árangri er að rétt sé að meðhöndluninni staðið. En hvert tilfelli er sérstakt og engin aðferð sú eina rétta. Þegar um er að ræða bráða júgur- bólgu þarf að hefja lyfjagjöf sem allra fyrst. I öðrum tilfellum getur verið skynsamlegt, út frá hagkvæmnis- sjónarmiði, að bíða með meðhöndlun fram að geldstöðu. En litlar líkur eru á að mcðhöndlun skili árangri þegar um er að ræða kýr sem eru með langvarandi sýkingu í mörgum júgurhlutum. Góður árangur sýklalyfja- meðhöndlunar byggist á því að notuð séu lyf sem viðkomandi sýkill er næmur fyrir og á þann hátt og í þann tíma sem mælt er fyrir um. I þessu skyni er mikilvægt að taka spenasýni áður en sýklalyf eru gefín og senda þau til ræktunar á sýklum og athugunar á lyfjanæmi. Líkur á góðum árangri má stundum auka með því að lengja tíma meðhöndlunarinnar en styrkur lyfja umfram ráðlagðan skammt hefur ekki bætandi áhrif og er það því óhagkvæmt. Það er sjaldgæft að meðhöndla þurfí júgurbólgu með sýklalyfjum í meira en fímm daga. I alvarlegum tilfellum getur þó þurft að meðhöndla í lengri tíma en oft er hægt að miða við að hætta lyfjagjöf þegar átlyst er komin í eðlilegt horf og nyt farin að aukast þó að júgrið sé enn bólgið og strimlar í mjólkinni. Bóigubreytingarnar orsakast af skemmdum sem sýkingin veldur á júgur- vefnum og viðbrögðum varnarkerfís kýrinnar gegn sýkingunni. Sýklalyfin hjálpa til við að ráða niðurlögum sýkingarinnar, en hafa ekki áhrif á bólguna. Varnarkerfið heldur áfram að starfa þó að sýklunum hafi verið eytt og júgrið getur þess vegna verið bólgið í nokkurn tíma á eftir. Bólgan er ekki vísbending um að sýking sé enn til staðar og að lyfjameðhöndlunin hafí ekki haft áhrif. Hagkvœmni í bráðum alvarlegum júgurbólgu- tilfellum hefur sýklalyfjameðhöndlun oftast góð áhrif. Þó að ekki náist alltaf fullkominn árangur dregur í það minnsta oftast úr einkennum. Hefja þarf meðhöndlun eins fljótt og kostur er. Spenasýni ætti að taka í öllum tilfellum af alvarlegri júgurbólgu og ef í ljós kemur að lyfið sem byrjað var að nota hefur ekki virkni gegn viðkomandi sýkli þarf að skipta um lyf. Þegar orsök júgurbólgunnar eru stafylokokkar eða streptokokkar hafa sýklalyf oftast áhrif, en öðru máli gcgnir þegar um júgurbólgu af völdum kólísýkla er að ræða. 1 slíkum tilfellum þarf að grípa til annars konar meðhöndlunar. Meðhöndlun á vægum langvarandi júgurbólgutilfellum með sýklalyf jum, ber oftast ekki árangur og er því ekki hagkvæm. Rétt er að hafa dýralækni alltaf með í ráðum þegar ákvörðun er tekin um hvað skuli gera þegar kýr fær júgurbólgu og mikilvægur grundvöllur réttrar ákvörðunar eru upplýsingar um hvort kýrin hefur fengið júgurbólgu áður, hvernig hún var meðhöndluð og hvernig til tókst. Til að meta árangur meðhöndlunarinnar þarf að skrá upplýsingar um hvenær júgurbólgunnar varð fyrst vart og hvernig frumutalan þróast eftir að meðhöndlun lýkur, og ef júgurbólgan blossar upp aftur þarf að skrá hvenær það gerisL Það er mikilvægt að hafa í huga að venjulega er frumutalan ekki komin í eðlilegt horf fyrr en í fyrsta lagi þremur til fjórum vikum eftir að meðhöndlun hófst. Einföld aðferð til að meta lauslega hvort áhrif júgurbólgu á afkomu búsins fer vaxandi eða minnkandi er að skrá niður hversu mikið magn af framleiddri mjólk er ekki lagt inn vegna júgurbólgu og reikna út hversu stór hluti þetta er af heildarframleiðslu ársins og bera hlut- fallið saman á milli ára. Einnig gefur skráning á öllum júgurbólgutilfellum og lyfjameðhöndlun gagnlegar vísbendingar. Hvanneyri, júní 2002, Auður Lilja Arnþórsdóttir, dýralœknir júgursjúkdóma.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.